Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.04.2013, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 15.04.2013, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 15. apríl 2013 | SKOÐUN | 13 FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU TÓMAS ÍSLEIFSSON FERÐAÞJÓNUSTUBÓNDI YTRI-SÓLHEIMUM ÖFLUG UPPBYGGING FERÐA ÞJÓN UST UNNAR „ – ÞESS VEGNA KÝS ÉG VG“ Alþingishúsið við Austurvöll – þessi gamla bygging sem búið er að berja svo mikið á undanfarin ár að manni er næstum farið að þykja vænt um hana og finnast hún veik- burða tákn veikburða þingræðis sem allir eru á móti. En þetta hús á sér raunar sögu sem kannski hefur gleymst meira en vert væri. Það er að minnsta kosti ómaksins vert að rifja hana upp á meðan við bíðum þess að þjóðin sendi fulltrúa sína á þing eftir allar þessar kannanir – og hannanir. Þriðjungur Landsjóðsins Um daginn var ég að snuðra í 19. öldinni að gamni mínu og eins og löngum fyrr varð fyrir mér ein af snilldarbókum Þorsteins Thorarensen, Móralskir meist- arar, ein af þessum stórum brúnu bókum hans sem fullar eru af fróð- leik, slúðri og spekúlasjónum um mannlíf og pólitík á síðustu ára- tugum 19. aldarinnar. Þar er sagt frá byggingu alþingishússins við Austurvöll og kannski allt í lagi að rifja upp þá gleymdu sögu; kannski hefur hún að geyma einhver fræ- korn þeirra kennda sem umvefja þetta hús þessi misserin og kannski má sjá þar upphaf ýmissa siða sem trúnaðarmenn þjóðar- innar á þessum stað hafa tamið sér gegnum tíðina. Þegar alþingi var endurreist á Íslandi um miðja 19. öld var það í Lærða skólanum í Reykjavík fyrstu þrjátíu árin. Þetta hafði margvísleg óþægindi í för með sér og þar kom að forseti þingsins, Jón Sigurðsson, stakk upp á því að leysa húsnæðisvanda þingsins með því að festa kaup á stórhýs- inu Glasgow, sem var gríðarleg- ur timburhjallur við Vesturgötu, á móti Naustinu – en brann löngu síðar til kaldra kola, eitt glæsileg- asta hús Reykjavíkur. Þetta átti að kosta milli 30 og 40 þúsund krón- ur. Þá reis til andmæla Benedikt Sveinsson sýslumaður og krafð- ist þess að byggt yrði úr íslensku grjóti, sem eitt af baráttumálum þess mikla hugsjónamanns og eld- huga. Jón Sigurðsson var farinn að heilsu þegar hér var komið og mætti ekki til þings 1879, og þá tóku kallarnir aldeilis að láta hend- ur standa fram úr ermum. Þeir samþykktu að verja 100 þúsund krónum til byggingar alþingis- húss. Heildartekjur Landsjóðsins voru þá um 360 þúsund krónur – án framlags Dana. Enginn mótmælti þessari fjárveitingu – að setja þriðjung landsjóðs í að reisa um sig hús – og var raunar stórhug- urinn slíkur á þessu þingi að sam- þykkt voru lög um að gera brýr yfir Ölfusá og Þjórsá, en þá sagði konungur hingað og ekki lengra og neitaði að staðfesta þau lög. Til tals kom að bjóða út verkið en þá reis upp Tryggvi Gunnars- son og taldi það hina mestu vit- leysu því að þá yrði of mikið horft í aurinn á öllum stigum – of mikið sparað – og viturlegra væri að skipa nefnd til að hafa yfirum- sjón með verkinu og sjá til þess að greiddir væru kostnaðarreikning- ar; þannig yrði byggingin traustari og betri. Tryggvi þótti hafa manna mest vit á framkvæmdum og peningum; hann byggði hús og reisti brýr og stýrði svo Landsbankanum síðar og enn njótum við verka hans í hinum fagra alþingisgarði. Að vísu segir meinhornið Benedikt Grön- dal í bréfi til Eiríks Magnússonar um eina af byggingum Tryggva, skólahúsið á Möðruvöllum, að það sé svo „afkáralega innréttað, að það er eins og tuttugu idiotar hafi verið að concúrrera til gullmedalí- unnar fyrir absúrditeter“. En hann var nú líka bara skáld. Sannleikurinn mun gera yður frjálsa Danskur húsameistari var feng- inn til verksins og hann flutti inn með sér sænska steinsmiði, enda leist honum ekkert á þá íslensku snikkara sem hér höfðu þróað með sér þess háttar tækni sem enn má sjá á Hegningarhúsinu við Skóla- vörðustíg. Til að gera langa sögu stutta kostaði alþingishúsið 130 þúsund krónur, fór langt fram úr áætlun, enda var hvergi til sparað. Að ráði Tryggva var húsameistar- anum danska síðan greiddur sér- stakur bónus fyrir vel unnin störf, enda væri slíkt alsiða meðal þeirra þjóða sem við bærum okkur helst saman við. Árið 1881 var húsið risið, og var nefnt „Frelsishöllin“ en í hornstein- inn var lagður spegilfagur silfur- skjöldur og á hann letruð orðin „Sannleikurinn mun gera yður frjálsa“, að ráði biskups, Péturs Péturssonar, ríkasta manns lands- ins, sem raunar fékk einnig kaup- hækkun um þessar mundir til að vera til jafns við landshöfðingjann. Þetta ár – 1881 – reyndist eitt versta harðindaár í sögu þjóðar- innar, einkum norðanlands. Víða kom ekkert sumar, það var gras- brestur, fiskileysi, hafís við land, hungursneyð og mislingafaraldur geysaði með tilheyrandi mann- felli. En nú var landsjóðurinn tómur eftir allan stórhuginn og engir peningar til að bregðast við hallærinu. Efnt var til mikillar fjársöfnunar um alla Evrópu og safnaðist mest í Englandi, sem sumir líta á sem gróna óvina- þjóð, og streymdi gjafakornið til Íslands en kornskipin komu til baka með íslenska útflytjendur á leið til Ameríku. Þau voru farin, höfðu flúið þetta volaða land. Alþingi tók til starfa í nýjum og glæsilegum húsakynnum, og hvað sem líður orðum í hornsteininum um sannleikann og frelsið þá hafði alþingi nú þegar sýnt fordæmi sem átti eftir að lýsa langt fram á veg. Það fordæmi snerist um óráðsíu, óraunsæi, ábyrgðarleysi, vanhæfni og spillingu yfirstéttar- manna sem láta sér kjör svelt- andi alþýðu í léttu rúmi liggja. Lygin mun gera okkur ófrjáls, sé að marka orðin úr ritningunni; og kannski kominn tími til að við horfumst í augu við þennan part af sögu þjóðarinnar líka um leið og við höldum því á lofti sem ástæða er til að vera stolt af. Frelsishöllin Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Þegar alþingi var endurreist á Íslandi um miðja 19. öld var það í Lærða skólanum í Reykjavík fyrstu þrjátíu árin. Þetta hafði margvísleg óþægindi í för með sér...

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.