Fréttablaðið - 15.04.2013, Síða 15

Fréttablaðið - 15.04.2013, Síða 15
Umhverfisátak Endurvinnsla á efnum leiðir til mun minni mengunar á vatni en framleiðsla úr frumefnum. Með því að nota endurunnin efni drögum við úr eyðingu skóga og votlendis og mengun vatnsfalla og annarra staða sem eru villtum dýrum nauðsynlegir. ÖTULL RÆKTANDI Carl byrjaði í ávaxta- trjárækt sumarið 2010 og er nú með um 60 tré á sumarbústaðalandi í Grímsnesi ásamt föður sínum. MYND/GVA KLÚBBURINN Vilji fólk kynna sér starf Ávaxta- klúbbsins er því bent á heimasíðu Garðyrkjufélagsins og Facebook-síðu þess. Ávaxtaklúbburinn er félag áhuga-manna innan Garðyrkjufélags-ins sem sinnir ávaxtatrjárækt á Íslandi. „Tilgangur klúbbsins er að efla áhuga fólks á ávaxtatrjárækt með fræðslu, leiðsögn, kynningum á trjám og fleiru. Þá sendum við líka út pönt- unarlista til félagsmanna þar sem þeir geta pantað ávaxtayrki sem kemur svo á vorin,“ segir Carl Jóhann, formaður Ávaxtaklúbbsins. Helstu ávextirnir sem ræktanlegir eru hér á landi eru epli, plómur, kirsuber og perur. „Ávaxtaklúbburinn er í sam- starfi við Landbúnaðarháskólann um að finna yrki sem henta vel við íslenskar aðstæður svo við skráum niður hvernig ræktunin gengur. Sum tré þurfa betri að- stæður og lengra sumar en er á Íslandi og því þarf að rannsaka hvaða yrki henta best. Mikil sól og gott skjól skiptir mestu máli fyrir ávaxtatré.“ Carl byrjaði sjálfur í ávaxtatrjárækt upp úr 2010 og er í dag með um 60 tré í sumarbústaðalandi fjölskyldunn- ar í Grímsnesi. „Afi var með nokkur ávaxtatré í gróðurhúsi og ég tók eigin- lega við af honum. Ég og pabbi erum með þessi 60 tré í Grímsnesinu og skipt- umst á að huga að þeim.“ Fyrstu trjánum þar var plantað eins árs gömlum árið 2011. „Það er því í fyrsta lagi í ár sem búast má við blómum á þeim.“ Carl er sannfærður um að eftir tíu ár verði hægt að fara út í búð og kaupa ís- lensk epli sem ræktuð eru utandyra á Íslandi enda margir farnir að rækta. „Það sem heillaði mig við þetta er kannski svolítið rómantískt. Það var tilhugsunin um að geta rölt út í garð að morgni til og náð mér í epli með morgunmatnum.“ Carl þarf þó að bíða enn um stund áður en þessi draumur rætist, enda tekur ávaxtatrjárækt tíma. „Þetta er ekki fyrir óþolinmóða og krefst tíma, vinnu og yfir- legu.“ ■vidir@365.is ÁVAXTASPRENGJA ÁVAXTAKLÚBBURINN Carl Jóhann Gränz, formaður Ávaxtaklúbbs Garðyrkjufélagsins, segir sprengingu hafa orðið í ávaxtatrjárækt undanfarin ár og ekki langt þar til íslenskir ávextir verði fáanlegir í matvöruverslunum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.