Fréttablaðið - 15.04.2013, Page 48

Fréttablaðið - 15.04.2013, Page 48
15. apríl 2013 MÁNUDAGUR| SPORT | 20 JEPPAR Notaðir Á TILBOÐI JEPPAVEISLA Í BRIMBORG TIL SUMARDAGSINS FYRSTA SPORT KÖRFUBOLTI Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, hélt því fram í rimmu sinni við Stjörnuna í undan- úrslitum Dominos-deild karla að Stjarnan væri að tefla fram dýr- asta liði Íslandssögunnar. Það eru ekki einu neikvæðu ummælin sem Stjörnumenn hafa mátt þola í vetur. Því er iðulega haldið á lofti að liðið sé með fjóra útlendinga og gárungarnir hafa á stundum kall- að það lið Sameinuðu þjóðanna. Hjá Stjörnunni eru tveir Íslend- ingar sem eru af erlendu bergi brotnir - Justin Shouse og Jovan Zdravevski - ásamt tveim Banda- ríkjamönnum. „Svona ummæli peppa okkur upp frekar en annað. Um leið og menn fara í svona umræður finnst mér það vera uppgjöf og veikleika- merki,“ sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar. „Við erum með nákvæmlega sama lið og í fyrra nema að það eru nýir útlendingar hjá okkur eins og hjá öðrum.“ Teitur segir að umræðan um ríkisfang þeirra Shouse og Zdra- vevski komi reglulega upp. „Hvenær ertu Íslendingur? Hann stendur í skólanum á morgn- ana, fer í búðina á leið heim úr vinnu og kaupir sér þorramat í flottu lopapeysunni sinni. Hann greiðir skatta til samfélagsins og borgar laun hjá fólki sem er á bótum og rífur kjaft. Svo eru til íslenskir leikmenn sem hafa varla unnið handtak og eru að fá greitt svart. Hvor þessara tveggja er meiri Íslendingur?“ Teitur segir sitt lið eðlilega njóta góðs af því að hafa menn eins og Shouse og Zdravevski í sínu liði. „Þetta eru samt ekki fyrstu gaurarnir sem fá ríkisborgara- rétt. Við erum með sama lið og síðustu ár en með betri útlendinga og okkur gengur betur. Þá kemur kannski öfund. Maður heyrði þetta ekki í fyrra. Öfundin er hluti af þessu. Þegar menn tapa þá fara þeir í alls kyns pakka. Hvað eigum við að senda Justin og Jovan í önnur lið? Myndu þau segja nei við því að fá þá? Við erum lánsamir að hafa þessa menn og svona umræða fellur alltaf um sig sjálfa.“ Teitur furðar sig einnig á umræðunni um að þetta sé dýrasta lið Íslandssögunnar. „Það er þvæla að Bandaríkja- mennirnir séu sérstaklega dýrir. Þeir eru ekki nálægt því að vera dýrustu Kanarnir í deildinni,“ sagði Teitur en hermt hefur verið að maður eins og Jarrid Frye væri með um 500 þúsund krónur í mán- aðarlaun hjá Stjörnunni. „Ætli það sé ekki um helmingi minna. Ætli Kanarnir á Íslandi séu ekki með um 215 til 260 þús- und krónur á mánuði. Einhverjir eru kannski dýrari en þeir komu þá síðasta sumar. Þeir sem koma síðar eru þá með lausan samn- ing og fást á minni pening,“ sagði Teitur. En hvað með Íslendingana? „Marvin var búinn að spila í 1. deildinni í mörg ár og það virt- ist enginn hafa áhuga á honum er við náðum í hann. Sá hefur heldur betur staðið sig. Fannar var orðin áttundi eða níundi maður hjá ÍR er hann kom til okkar. Hann er fyr- irliði okkar og byrjunarliðsmaður. Jovan er örugglega ekki á miklum launum eftir árið í fyrra. Hann er örugglega að borga til baka. Þessi umræða er bara þvæla. Það eru engin rök fyrir þessu tali og við nýtum okkur svona umræðu til þess að þjappa okkur saman.“ Teitur er að klára sitt fjórða ár með Stjörnuliðið og það hefur styrkst með hverju ári. Er hann loksins kominn með liðið sem fer alla leið? „Þetta er örugglega sterkasta liðið sem ég hef verið með í hönd- unum. Ég hef ekki þurft að púsla miklu saman því þá voru Justin, Jovan og Fannar þarna en þetta eru þrír byrjunarliðsmenn. Liðið var aftur á móti búið að vinna einn leik og tapa níu er ég kem að því. Liðið var þá neðst í deild- inni. Kjarninn hefur verið til stað- ar lengi,“ sagði Teitur og bendir á að sitt lið hafi alltaf fallið úr leik gegn sterku liði. „Síðustu þrjú ár hefur liðið sem við töpuðum gegn orðið Íslands- meistari. Stefnan er að breyta því að þessu sinni,“ sagði Teitur en Stjarnan hefur aldrei orðið Íslandsmeistari í körfubolta. henry@frettabladid.is Allt þetta tal er bara öfund Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, segir að allt tal um að Stjarnan tefl i fram dýrasta liði í sögu Íslands og sé lið Sameinuðu þjóðanna geri ekkert annað en að þjappa sínum mönnum saman. Stjarnan er skrefi frá fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í sögu félagsins en úrslitarimman gegn Grindavík er handan við hornið. BLÆS Á ALLT TAL UM OFURLAUN Teitur Örlygsson skilur ekki af hverju talað er um Stjörnuna sem eitthvað sérstaklega dýrt lið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Kolbeinn Sigþórsson og félagar í Ajax eru komnir í mjög vænlega stöðu í baráttunni um hollenska meistaratitilinn. Liðið er með fimm stiga forskot á toppnum eftir gríðarlega mikil- vægan sigur, 2-3, á útivelli gegn PSV Eindhoven. Kolbeinn skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Ajax en hann fór svo af velli fjórum mínútum fyrir leikslok. Kol- beinn er óðum að finna sitt fyrra form hjá Ajax eftir langvarandi meiðsli. Íslensku strákarnir í hollenska boltanum voru annars í stuði í gær en þrír þeirra komust á blað. Alfreð Finnbogason skoraði tvö mörk fyrir Heerenveen sem vann góðan sigur á Willem II, 3-2. Alfreð er búinn að skora 23 mörk í hollensku deildinni í vetur og er næst markahæstur. Hann jafnaði einnig met Péturs Péturs- sonar yfir flest mörk skoruð í efstu deild erlendis á einu tíma- bili. Pétur skoraði 23 mörk fyrir Feyenoord leiktíðina 1979-80. Aron Jóhannsson stimplaði sig síðan inn í lið AZ Alkmaar með sínu fyrsta marki fyrir félagið. Það kom í 6-0 sigri á Utrecht. Aron kom af bekknum og skoraði á 90. mínútu eftir sendingu frá Jóhanni Berg Guðmundssyni. - hbg Mikilvægt mark Kolbeins MARKI FAGNAÐ Kolbeinn fagnar marki sínu í gær. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.