Fréttablaðið - 25.04.2013, Side 6

Fréttablaðið - 25.04.2013, Side 6
25. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 NÝSKÖPUN Lækningavörufyrir- tækið Kerecis á Ísafirði hefur tryggt fjármögnun til að ljúka ofnæmis- og ónæmisprófunum á nýjustu vöru fyrirtækisins ásamt því að taka fyrstu skref í sölu- og markaðsstarfi erlendis. Nýja varan, MariGen Wound, er sára- meðhöndlunarefni unnið úr þorsk- roði. Fyrirtækið hefur þegar hafið sölu í Bretlandi og í Mið-Austur- löndum. Nú er stefnt á Banda- ríkjamarkað en fyrst þarf að uppfylla kröfur þarlendra yfir- valda, meðal a n na rs með prófu num á fólki sem endurspegla kynþátta- samsetningu þar í landi. Guðmundur F. Sigurjónsson, stjórnarformaður Kerecis, segir að nýverið hafi verið gengið frá um 120 milljón króna hlutafjár- aukningu frá núverandi og nýjum hluthöfum fyrirtækisins. Um vöruna sem um ræðir segir Guð- mundur að varan byggi á Mari- Gen Omega3 tækni félagsins og sé ætluð til meðhöndlunar á þrálátum sárum. Varan, sem heitir MariGen Wound er unnin úr þorskroði og er lögð beint ofan í sár sem síðan er búið um með hefðbundnum sára- umbúðum. Frumur líkamans vaxa inn í efnið og breyta því að lokum í heilbrigða húð. MariGen Wound hefur fengið samþykki evrópskra reglugerðar- yfirvalda og er sala hafin í Bretlandi og einnig í Mið- Austurlöndum. Hins vegar er stærsti markaður í heimi fyrir lækningavörur sem þessar í Bandaríkjunum. „Við erum að vinna að því að skrá MariGen Wound þar í landi en bandaríska lyfjaeftirlitið (FDA) vill að við framkvæmum Vantar þeldökka til að ljúka vöruþróun Fyrirtæki á Ísafirði hefur tryggt fjármagn til að ljúka prófunum á sáraumbúðum úr þorskroði. Prófanir á Íslendingum er lokið en leitað er að fólki af afrískum, spænskum og suður-amerískum uppruna vegna krafna Bandaríkjamarkaðar. ➜ Markmið Kerecis er að þróa og markaðssetja lausnir til meðhöndlunar á vefjaskaða. MariGen Omega3 eru vörur sem byggjast á fyrstu kynslóð tækni Kerecis. Sala hófst nýlega á fyrstu vöru MariGen Wound, sem er stoðefni til meðhöndlunar á þrálátum sárum. ➜ Þrálát sár eru verulegt óleyst heilbrigðisvandamál, en árlega eru fram- kvæmdar yfir 100 þúsund aflimanir í Bandaríkjunum einum vegna sára sem ekki gróa, m.a. hjá sykursjúkum. ➜ Þróunaráætlun Kerecis gerir ráð fyrir að næstu kynslóðar tækni fyrir- tækisins innihaldi lifandi frumur og er markmiðið að nota þá tækni til meðhöndlunar og jafnvel uppbyggingar á sköðuðum líffærum. ➜ Kerecis gekk nýlega frá dreifingarsamningi við alþjóðafyrirtækið Medline Industries. Til að byrja með mun Medline selja sáravöru Kerecis í Bretlandi og í Mið-Austurlöndum. Medline er leiðandi dreifingaraðili á lækninga- vörum og þjónustu á heimsvísu. Ársvelta Medline er um fimm milljarðar Bandaríkjadala og er fyrirtækið með starfsemi í níutíu löndum og rekur í þeim 48 dreifingarstöðvar. Þorskroð nýtt til að byggja upp líffæri ÞORSKROÐIÐ PRÓFAÐ Helstu samkeppnisvörur Kerecis eru unnar úr vef svína og einnig úr manns- húð. MYND/KERECIS GUÐMUNDUR F. PRÓF Um einfalt próf er að ræða sem tekur nokkra daga. MYND/KERECIS fleiri prófanir. Þessar rannsókn- ir hafa farið fram á Ísafirði og í Reykjavík og er lokið hvað varðar okkur Íslendingana. Okkur vant- ar almennt útlendinga í prófunina, því FDA gerir kröfur um að próf- in endurspegli kynþáttasamsetn- ingu þar í landi og okkur vantar því um tuttugu þeldökka, spænska og suður-ameríska þátttakendur. Þess vegna höfum við auglýst eftir þátttakendum því það ætti ekki að koma neinum á óvart að kynþátta- samsetningin í Bandaríkjunum er mjög ólík því sem gerist hér á Íslandi,“ segir Guðmundur, en FDA gerir kröfur um ofnæmis- rannsókn á fimmtíu sjúklingum, og ónæmisrannsókn á 76 sjúkling- um eða 126 einstaklingum alls. Markaður fyrir lækningavörur fyrirtækisins er gríðarstór; velt- ir um milljarði Bandaríkjadala á ári. Helstu samkeppnisvörurnar eru unnar úr vef svína og einnig úr mannshúð. svavar@frettabladid.is DÓMSMÁL Már Guðmundsson seðlabankastjóri fær ekki þá launaleiðréttingu sem hann krafðist fyrir dómi. Hæstiréttur staðfesti niður- stöðu Héraðs- dóms Reykja- víkur þess efnis í gær. Már stefndi Seðlabankanum eftir að hann tók við stöðu seðlabanka- stjóra haustið 2009, vegna þess að í sama mánuði og hann tók við var lögum um kjararáð breytt. Það leiddi til þess að laun hans voru lækkuð svo að hann væri ekki með hærri laun en for- sætisráðherra. Hann taldi þetta vera samningsbrot en dómstólar eru ósammála. - sh Seðlabankastjóri tapar: Fær launin sín ekki leiðrétt MÁR GUÐMUNDSSON KÍNA, AP Alþjóðaheilbrigðisstofn- unin segir nýtt afbrigði af fugla- flensunni, sem kom upp í Kína fyrir stuttu og kallast H7N9, virð- ast eiga greiðara með að smitast úr fuglum í fólk en önnur þekkt afbrigði, eins og H5N1. Vísindamenn fylgjast nú grannt með veirunni en segja að hingað til bendi fátt til þess að veiran smitist jafn auðveldlega milli fólks. 360 manns hafa látið lífið af völdum H5N1 frá árinu 2003, en flestir þeirra smituðust af fuglum. Tuttugu hafa látist af völdum H7N9 til þessa. - þj Nýtt afbrigði af fuglaflensu: Greiðara smit úr fuglum í fólk FUGLAVÁ Svo virðist sem nýtt afbrigði af fuglaflensu smitist greiðar á milli fugla og fólks en áður hefur þekkst. STJÓRNMÁL Alls varð 186 millj- óna króna afgangur af rekstri samstæðu Kópavogsbæjar í fyrra. Til samanburðar var 751 milljónar halli á rekstrinum 2011. Þetta kemur fram í árs- reikningi Kópavogsbæjar sem lagður var fyrir bæjarstjórn á þriðjudag. Ármann Kr. Ólafsson segir að ársreikningurinn sýni bætta stöðu Kópavogsbæjar og gefi góð fyrirheit um framhaldið. Tekjur Kópavogsbæjar voru 20,6 milljarðar króna árið 2012 en rekstrargjöld voru 15,7 milljarðar. Veltufé frá rekstri nam tæpum 2,8 milljörðum. Þá kemur fram í ársreikningnum að skuldahlutfall Kópavogs var 206% um áramótin en var 242% þegar það fór hæst árið 2010. - mþl Ársreikningur 2012 birtur: Rekstrarafgang- ur hjá Kópavogi MENNINGARMÁL „Það er ekki á hendi Náttúrfræðistofnunar hvar beinagrindin verður heldur menntamálaráðuneytisins,“ segir Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, vegna umræðunnar um framtíðarstað- setningu beinagrindar úr steypi- reyði sem rak á land á Skaga 2010. Eins og fram kom í Frétta- blaðinu gær vill bæjarráð Norður- þings að ráðherrann lýsi því yfir að beinagrindin verði á Hvalasafninu á Húsavík. Forstjóri Náttúrufræði- stofnunar sagði grindina hins vegar myndu enda á sýningu Náttúru minjasafns Íslands í Perl- unni ef óskað væri eftir því. Ann- ars væri Húsavík næsti kostur. Katrín segir að þegar stjórn- völd hafi ákveðið að setja steypi- reyðina í það ferli að beinin yrðu þurrkuð hafi líka verið samþykkt annars vegar framlag og hins vegar að mennta- og menningar- málaráðherra myndi kanna hvort gera ætti samkomulag við Hvala- safnið á Húsavík um uppsetningu og varðveislu beinagrindarinnar. Þetta ætti ráðherrann að gera í samráði við Náttúrufræðistofnun, Náttúruminjasafnið og umhverfis- ráðuneytið. Það hafi ekkert breyst. „Það verða væntanlega hafnar viðræður við Húsvíkinga þegar við sjáum fyrir endann á ferlinu með þurrkun beinanna. En það ligg- ur líka fyrir að þeirra hugmynd- ir um hvernig þeir ætla að byggja yfir grindina eru á frumstigi. Það þarf líka að skýra fjármögnunina,“ segir ráðherrann. - gar Mennta- og menningarmálaráðherra hafnar yfirráðum Náttúrufræðistofnunar yfir steypireyði af Skaga: Húsavík fyrsti kostur fyrir hvalabeinagrind HVALASAFN Á HÚSAVÍK Frumhönnum dregur upp glæsilega mynd af Hvala- safninu á Húsavík. MYND/HVALASAFNIÐ HÚSAVÍK VEISTU SVARIÐ? 1. Hvenær á smíði á nýjum Herjólfi að ljúka, gangi allt eftir? 2. Hvað létust margir vegna ölvunar- aksturs hér á landi í fyrra? 3. Hver leikur Tony Stark í Iron Man- myndunum? SVÖR 1. Í lok árs 2015. 2. Enginn. 3. Robert Downey Jr. Frá kr. 99.900 11 nátta ferð - ótrúleg kjör! Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á Aguamarina íbúðarhótelinu þann 9. maí í 11 nætur. Ath. mjög takmarkaður íbúða í boði - verð getur hækkað án fyrirvara. Flogið er til Íslands með viðkomu í Kaupmannahöfn. Costa del Sol 9. maí í 11 nætur Aguamarina *** Kr. 99.900 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í íbúð með einu svefnherbergi. SKÓLAMÁL „Ég ákvað að blása þetta bara af þegar krakkarnir voru komnir inn í skólann en þá var hópur nemenda orðinn áber- andi ölvaður,“ segir Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari VMA. Á annað hundrað nemendur dimitteruðu frá skólanum í gær en Hjalti Jón segir ekki boðlegt að nemendur séu ölvaðir inni í skól- anum. „Auðvitað eru þeir nemend- ur sem áttu enga sök að máli mjög óánægðir. En það þarf stundum að taka óvinsælar ákvarðanir,“ segir Hjalti og bætir við að sumir nem- endur hafi byrjað að neyta áfengis klukkan sex að morguni. - hó Skólameistari VMA ósáttur: Ölvun batt enda á dimissio

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.