Fréttablaðið - 26.04.2013, Blaðsíða 2
26. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
STJÓRNMÁL Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarflokkur eru með 49,1 pró-
sents fylgi samkvæmt nýjustu
skoðanakönnun MMR, sem birt
var í gær.
Sjálfstæðisflokkurinn mældist
með 26,7 prósent, miðað við 27,5 í
síðustu könnun. Framsókn mæld-
ist með 22,4 prósent, en 25,6 í síð-
ustu könnun.
Samfylkingin mældist með 13
prósent, en var með 13,5 síðast,
og VG mældist með 11,6 prósent
en fékk 8,1 síðast. Björt framtíð
og Píratar mældust með 7,7 og 7,5
prósent. Aðrir flokkar ná ekki yfir
fimm prósent en Lýðræðisvaktin
er næst því, með 3,5 prósent. - þeb
Ný könnun MMR:
Stærstu flokk-
arnir ná 49,1%
BANGLADESS, AP Að minnsta kosti 238 manns létust þegar fataverksmiðja
í Bangladess hrundi til grunna á miðvikudag.
Enginn þeirra tvö þúsund starfsmanna sem unnu í verksmiðjunni
átti að vera þar á miðvikudag. Yfirvöld segja að eigendur fataverk-
smiðjunnar hafi hundsað skipun lögreglunnar um að loka henni vegna
djúpra sprunga í veggjum.
Hundruð starfsmanna lifðu af hrun byggingarinnar en voru fastir í
rústum hennar. Einhverjum hafði tekist að bjarga í gær, en fjölmargir
voru enn fastir. Slysið hefur vakið athygli á ný á hræðilegum aðstæðum
starfsfólks í verksmiðjum í landinu. - þeb
Fataverksmiðja hrundi í Bangladess og minnst 238 létust:
Áttu að hafa lokað byggingunni
VERKSMIÐJAN HRUNIN Heyra mátti óp fólks sem var fast í rústum hússins í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
MENNINGARMÁL „Ég hafði bara sex
mánuði en ég var búinn að segja að
ég þyrfti tvö ár í þetta,“ segir Þor-
valdur Þór Björnsson, hamskeri
hjá Náttúrfræðistofnun, sem ann-
ast hefur verkun beinagrindar úr
steypireyðinni sem skolaði á land
á Skaga sumarið 2010.
Kjötið af steypireyðinni var
urðað á staðnum nyrðra en Nátt-
úrufræðistofnun fékk aðstöðu til að
verka beinin í hvalstöð Hvals hf. í
Hvalfirði. Fjárveitinguna til verks-
ins segir Þorvaldur hafa verið of
litla og tímarammann of knappan.
„Bjargvætturinn var Kristján
Loftsson í Hval. Hann átti stóran
pott fyrir þetta og veitti mér þá
aðstoð sem hægt var á þeim tíma
– sem bjargaði þessu alveg. Þann-
ig að hann á allan heiður skilið að
verkið sé þó komið þetta langt,“
segir Þorvaldur.
Notað var 130 gráðu heitt vatn úr
borholu við Hvalstöðina til að sjóða
kjöt og fitu af beinunum. Hitinn
reyndist of mikill og beinin misstu
styrkinguna og urðu sum eins og
svampur. Hauskúpan er illa löskuð.
„Þetta voru alveg skelfilegar
aðstæður sem maður hafði og það
var farið svolítið skart í þetta.
Þetta tókst þó ágætlega miðað
við aðstæður nema það eru þarna
ákveðin bein sem verður að gera
við. Það þarf að gera við hauskúp-
una meira og minna. Það er hægt
að nota stærsta hlutann af þessu
eða bara gera hausinn hrein-
lega úr gerviefni,“ segir Þorvald-
ur sem kveður alls engan vafa á
beinagrindin verði að lokum sýn-
ingarhæf. Grindin sé nú í geymslu
í Keflavík og verði tilbúin til upp-
setningar eftir tvö ár.
Þorvaldur hefur áður verkað
beinagrindur úr meira en tíu smá-
hvölum. Engin þeirra stenst sam-
anburð við steypireyðina. Þor-
valdur kveðst því hafa leitað ráða
erlendis og þá gert dálitla uppgötv-
un eftir að hafa gengið eftir skýr-
ingum.
„Þá kom í ljós að þeirra hval-
ir eru meira og minna úr plasti,“
segir Þorvaldur og bætir við að
hvalreki eins og sá á Skaga sé mjög
sjaldgæfur. Grindin úr steypi-
reyðinni þaðan verði ein af fáum í
heiminum sem gæti orðið alveg úr
beinum. „Þannig að þessi hreins-
un heppnaðist þokkalega en það
sem ég veit í dag hefði ég viljað
vita þá.“
gar@frettabladid.is
Steypireyður laskaðist
í hraðsuðu í Hvalfirði
Hamskeri hjá Náttúrufræðistofnun segir of knappan tímaramma og þröngan fjár-
hagslegan stakk af hálfu stjórnvalda hafa leitt til þess að beinagrind úr steypireyð-
inni af Skaga hafa verið soðin of hratt. Grindin hafi skemmst en því megi bjarga.
STEYPIREYÐURIN SKORIN Ríkisstjórnin ákvað að beinagrindin úr hvalnum á Skaga
yrði gerð sýningarhæf og hún mun verða það – þótt snurða hafi hlaupið á þráðinn
við hreinsun beinanna. MYND/VALUR ÖRN ÞORVALDSSON
Bergur, skjálfið þið nokkuð á
beinunum á Húsavík?
„Við skjálfum dálítið en grindin
af hvalnum mun veita okkur þann
stöðugleika sem upp á vantar.“
Húsvíkingar og Náttúruminjasafn Íslands
vilja bæði fá til sýninga beinagrind úr steypi-
reyði sem rak á land 2010. Menningarmála-
ráðherra segir Húsvíkinga fyrsta í röðinni
samkvæmt fyrri ákvörðun ríkisstjórnarinnar.
DANMÖRK 875 þúsund börn munu líklega snúa aftur
í skóla sína í Danmörku eftir helgi, eftir margra
vikna verkbann kennara.
Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra lands-
ins, hélt blaðamannafund í gær og tilkynnti að hún
myndi leggja frumvarp fyrir þingið til að leysa úr
málinu. Það fær flýtimeðferð í þinginu og verði það
samþykkt mun skólastarf hefjast að nýju á mánu-
daginn.
Forsætisráðherrann sagði að nauðsynlegt hefði
verið að grípa inn í deilu kennara við sveitarfélög,
sem settu á verkbannið í upphafi mánaðarins eftir
að kjaradeilur höfðu siglt í strand. Það sem virðist
hafa fyllt mælinn voru fjölmenn mótmæli foreldra á
miðvikudag.
Vinnufyrirkomulag hjá kennurum breytist með
lagasetningunni og laun þeirra verða hækkuð.
Stjórnvöld leggja til 300 milljónir danskra króna,
eða 6,1 milljarð íslenskra króna. Það þýðir að
grunnskólakennarar geta búist við að árslaun þeirra
hækki um 67 til 84 þúsund íslenskar krónur. Sam-
kvæmt danska ríkisútvarpinu, Danmarks radio,
verður vinnufyrirkomulaginu breytt til samræmis
við aðra opinbera starfsmenn.Þannig munu kennar-
ar missa rétt til að minnka við sig vinnu frá sextugu
án þess að tekjur minnki. Breytingarnar taka gildi í
ágúst á næsta ári. - þeb
Tæplega 900 þúsund skólabörn í Danmörku mæta aftur eftir helgina:
Stjórnvöld gripu inn í verkbann
MÓTMÆLT Bæði kennarar, foreldrar og börn hafa mótmælt
verkbanninu sem hófst þann 2. apríl. Þessi mynd er frá fjöl-
mennum kennaramótmælum á Ráðhústorginu í Kaupmanna-
höfn fyrr í mánuðinum. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Davíð Örn Bjarnason
var í gær dæmdur í eins árs og
tíu daga skilorðsbundið fangelsi í
Tyrklandi fyrir að hafa ætlað að
fara með úr landi marmarastein
sem sagður er fornminjar. Þetta
kom fram hjá fréttastofu RÚV.
Davíð sagðist feginn að niður-
staða væri komin í málið. Hann
ætli aldrei aftur til Tyrklands.
Davíð og kona hans voru á leið
frá Tyrklandi þegar tollverðir
fundu marmarastein í farangri
Davíðs. Steininn sögðust þau hafa
keypt á útimarkaði og án þess að
vita að hann teldist til fornminja.
Davíð sat í varðhaldi í Tyrklandi
í tæpan mánuð. - gar
Dómur fyrir marmarastein:
Fer ekki aftur
til Tyrklands
MENNINGARMÁL Vestmanna-
eyingar minntust þess í gær að 160
ár eru frá embættistöku Andreas
Augusts Kohl árið 1853-1860).
Kohl er einna frægastur fyrir
að hafa stofnað einu íslensku her-
deildina sem starfrækt hefur
verið. Í henni voru allt að eitt
hundrað menn sem telst nokkuð
margt því þá bjuggu aðeins um
fjögur hundruð manns í Eyjum.
Mikil óregla var á Eyjamönnum
þegar Kohl bar að garði og gerði
hann að skilyrði að menn væru
algjörir reglumenn á vín og tóbak
til að geta gerst hermenn.
Einu sinni á ári stóð Kohl fyrir
hersýningu. Þá marseraði her-
inn úr bænum og inn í dal með
bumbuslætti og íbúar fylgdu á
eftir. Margir segja þetta upphaf
þjóðhátíða í Eyjum. Talið er að
afkomendur Kohls á Íslandi séu
mörg hundruð. - gar, ópf
Blásið í herlúðra Eyjum á sumardaginn fyrsta vegna 160. ártíðar frá embættistöku Andreas Augusts Kohl:
Minntust sýslumanns og hershöfðingja
VIÐBÚNAÐUR Á SKANSINUM
Karl Gauti Hjaltason sýslumaður fór
fyrir ímynduðum her og minntist for-
vera síns í embætti.
Bjarg-
vætturinn var
Kristján
Loftsson í
Hval. Hann
átti stóran pott
fyrir þetta og
veitti mér þá aðstoð sem
hægt var á þeim tíma –
sem bjargaði þessu alveg.
Þorvaldur Þór Björnsson, hamskeri hjá
Náttúrufræðistofnun.
SPURNING DAGSINS
FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU
Ertu ekki viss um hvað þú ætlar að kjósa?
Viltu fá svör við ákveðnum spurningum?
Hringdu í Vg númerið 863 7038 og tilgreindu
það málefni sem brennur á þér.
Við finnum rétta frambjóðandann til þess að
hafa samband við þig og svara spurningum þínum.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
HVAÐ
VILTU VITA?