Fréttablaðið - 26.04.2013, Qupperneq 6
26. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
SJÁVARÚTVEGUR Mjög góð þorskveiði var
í netaralli Hafrannsóknastofnunar sem
lauk 18. apríl. Aflinn var litlu minni en í
fyrra sem var metár. Netarallið, eins og
stofnmat Hafró, staðfestir vöxt í hrygn-
ingarstofninum á undanförnum árum.
Markmið verkefnisins er að safna upp-
lýsingum á hrygningarsvæðum þorsks.
Einnig að meta árlega magn kynþroska
þorsks er fæst í þorskanet á hrygningar-
stöðvum og breytingar í gengd hrygning-
arþorsks á mismunandi svæðum.
Um 300 netatrossur voru lagðar af sex
bátum og er þeim dreift á helstu hrygn-
ingarsvæðin. Úrvinnsla gagna er á frum-
stigi en mjög góð veiði var á flestum
svæðum og var þorskaflinn rúmlega 850
tonn sem er heldur minni afli en í fyrra.
Eina undantekningin hvað varðar
þorskafla var kanturinn austur af Eyjum
en þetta er fimmta árið í röð sem afli
hefur verið lélegur þar. Netabátar hafa
ekki verið að sækja þorsk í kantinn síð-
ustu ár heldur hafa verið í mjög góðri
veiði uppi á grunninu. Netarallið er því
eina vísbendingin um þróunina þar og
líklegt er að þorskurinn gangi nú fyrr og
meira upp á kantinn en áður. - shá
300
netatrossur
voru lagðar af
6 bátum.
Afl inn var
rífl ega 850
tonn.
UMHVERFISMÁL „Þetta er rotnandi þari sem safn-
ast saman þarna inni í krikanum. Ef maður skefur
ofan af þessu þá gýs upp brennisteinsfnykur,“ segir
Valur Þór Hilmarsson, umhverfisfulltrúi Fjalla-
byggðar um ólyktina í fjörunni neðan Eyrarflatar
á Siglufirði.
Eins og kom fram í Fréttablaðinu á þriðjudag
hafa íbúar á Eyrarflöt talið fýluna stafa af ófull-
nægjandi frárennsli í fjörunni í grennd við land-
fyllingu sem þar er. Valur segir hins vegar þarann
rotnandi vera sökudólginn.
„Það er lítið streymi einmitt hér í víkinni og á
flóði berst þarinn þarna inn og situr svo eftir þegar
flæðir frá. Svo rotnar þarinn og er þarna í alveg
metra þykku lagi,“ segir Valur.
Íbúarnir telja ólyktina færast í aukana. Valur
segir það óvíst. „Ég hef rætt við gamla Siglfirð-
inga og þeir telja að þetta hafi verið til staðar. En
við finnum reyndar mjög mikið fyrir þessu núna,“
segir umhverfisfulltrúinn sem boðar tillögur til
úrbóta sem lagðar verði fyrir bæjarráð í næstu
viku. Það eigi reyndar einnig við um frárennslið
sem sé í óásættanlegu ástandi. Þar sé hugmyndin
að leysa málið með hreinsibúnaði
„Það er ekki ódýrt en það er samt ekki hægt að
ýta því á undan sér mikið lengur,“ segir Valur Þór
Hilmarsson. - gar
Umhverfisfulltrúi skoðar leiðir til úrbóta vegna lyktarmengunar á Siglufirði:
Ólyktin frá þara en ekki skolpi
FJARAN VIÐ EYRARFLÖT Rotnandi þari safnast í krikanum
við landfyllinguna og gefur frá sér brennisteinslykt.
MYND/VALUR ÞÓR HILMARSSON
Enn staðfesta rannsóknir mikinn vöxt í hrygningarstofni þorsks við Ísland:
Góð þorskveiði í netaralli Hafró
1. Hversu margir fóru í hvalaskoðun
hérlendis í fyrra?
2. Hversu margra leikja bann fékk
Luis Suarez fyrir að bíta leikmann
Chelsea?
3. Hvaða leikkona er í 1. sæti yfi r
fallegustu konur heims í People
Magazine.
SVAR:
KÓREA, AP Yfirvöld í Norður-
Kóreu heita því að setja aukinn
kraft í þróun kjarnavopna og bera
við ofsóknum Bandaríkjamanna.
Yfirlýsing þess efnis var gefin
út eftir að bandaríska utanríkis-
ráðuneytið birti skýrslu þar sem
stjórnvöld í Norður-Kóreu eru
sökuð um brot á mannréttindum.
Nokkuð hefur dregið úr yfirlýs-
ingum frá Pjongjang eftir óvissu-
ástand síðustu vikna, en mikil
óvild er enn undirliggjandi.
- þj
Norður-Kórea ógnar enn:
Hóta frekari
kjarnorkuógn
FJARSKIPTI Skráadeilingarvefur-
inn Pirate Bay hefur verið skráð-
ur á Íslandi síðan 11. apríl síðast-
liðinn. Vefurinn er einn fjölsóttasti
„niður halsvefur“ í heimi en á
honum má nálgast skrár sem fólk
hvaðanæva úr heiminum deilir
með öðrum. Meðal efnis sem finna
má í tenglalistum síðunnar er höf-
undavarið efni, tónlist og mynd-
bönd, auk kláms.
Pirate Bay-vefurinn hefur verið
skráður í Svíþjóð undanfarin ár
en hérlendis er Fredrik Neij, einn
stofnenda Pirate Bay í Svíþjóð,
skráður fyrir léninu hjá Isnic. Svo
virðist sem Neij hafi skráð rangt
símanúmer við skráningu léns-
ins hér á landi. Þegar hringt var í
númerið fékkst samband við grun-
lausa sænska konu sem kvaðst
orðin þreytt á að svara spurning-
um blaðamanna í Kanada, Banda-
ríkjunum og víðar.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins er vefþjónninn sem hýsir
thepiratebay.is í Þýskalandi. En
forsvarsmenn vefsins flytja vef-
þjóna og skráningar reglulega á
milli landa.
„Þessi síða er alveg kolólögleg,“
sagði Snæbjörn Steingrímsson,
framkvæmdastjóri SMÁÍS (Sam-
tök myndréttarhafa á Íslandi), í
samtali við Vísir.is í gær. Hann
sagðist eiga eftir að ráðfæra sig
við sína menn en víst sé að vin-
samlegum tilmælum verði beint
til ISNIC um að svipta vefinn lén-
inu. Skýrt ákvæði sé um vernd á
hugverki í íslenskum lögum. Frek-
ari aðgerðir verða skoðaðar takist
þetta ekki.
Jafnframt sagðist Snæbjörn
hafa það á tilfinningunni að flutn-
ingur skráningarinnar hefði með
þingkosningarnar á morgun að
gera. Þar vísaði hann til Pírata-
flokksins, sem er systurflokkur
Piratpartiet í Svíþjóð.
Birgitta Jónsdóttir, þingmað-
ur og kapteinn Pírata, sagði í
gærdag fráleitt að um kosninga-
bragð væri að ræða enda hefði
hún ekkert vitað um skráninguna
hér fyrr en um hana var fjallað í
gær. „Þannig að þetta er nú ekkert
ofboðslega strategíst hjá okkur,“
sagði Birgitta.
Spurð um tengingu Pírata-
flokksins á Íslandi við Pirate Bay
í Svíþjóð sagði Birgitta þau engin.
„Sum okkar þekkja fólk sem hefur
verið í þessu. Það eru hins vegar
ekki þannig tengsl að hægt sé að
segja að við séum í samstarfi með
Pirate Bay.“
birgirh@frettabladid.is
Sími grunlauss Svía í
höndum sjóræningja
The Pirate Bay er skráð með lén á Íslandi en vefþjónarnir eru í Þýskalandi. SMÁÍS
segir skráninguna ólöglega og tengjast framboði Pírata til Alþingis. Því hafnar
Birgitta Jónsdóttir, oddviti Pírata. Engin tengsl séu á milli flokksins og síðunnar.
➜ iTunes
Vefverslun Apple-tölvurisans með tónlist, myndbönd, bækur og annað
höfundavarið efni. Íslendingum býðst ekki að versla þar en hægt er að
nálgast efni þar löglega með því að stofna erlendan aðgang og kaupa
inneign.
➜ Spotify
Tónlistarvefurinn Spotify var nýlega kynntur á íslenskum markaði en nú
geta Íslendingar stofnað aðgang og tengt hann íslenskum greiðslukortum.
Þar má nálgast gríðarlegt magn af tónlist fyrir fast mánaðargjald.
➜ gogoyoko
Íslenskur tónlistarvefur þar sem stofna má aðgang og hlusta á úrval tón-
listar sem fæst á vefnum. Viljir þú eignast tónlistina getur þú keypt hana
þaðan í vefversluninni.
➜ Tónlist.is
Íslenska tónlist má einnig nálgast hér. Hægt er að kaupa gamlar plötur
með vinsælum íslenskum hljómsveitum auk tónlistar erlendis frá. Vefur-
inn býður upp á sýnishorn af allri tónlist sem þar er seld.
➜ Netflix
Bandaríski vefurinn Netflix býður notendum sínum upp á að kaupa þætti
og bíómyndir og streyma því beint yfir netið. Ekki er þó hægt að stofna
íslenskan aðgang enn.
Löglegt efni á vefnum
1. 175 þúsund. 2. Tíu leikja bann. 3. Gwy-
neth Paltrow.
Þannig
að þetta er nú
ekkert of-
boðslega
strategíst hjá
okkur.
Birgitta Jónsdóttir
alþingismaður og kapteinn Pírata
VEISTU SVARIÐ?
Save the Children á Íslandi