Fréttablaðið - 26.04.2013, Side 19
FÖSTUDAGUR 26. apríl 2013 | SKOÐUN | 19
Eitt af því sem fékk mig til
þess að gefa mig að stjórn-
málum var þetta ákall sem
maður heyrði óma alla
daga um breytt stjórnmál.
Alls staðar þar sem maður
kom voru allir að tala um
hversu ömurleg stjórn-
málamenningin væri hér
á landi. Hér réðu formenn
flokka öllu og í kringum
þá væri klíka og jábræður
sem lytu valdi flokkselít-
unnar í einu og öllu. Þetta
var umræðan fyrir fjórum
árum og þetta er umræðan enn
þá. Í rannsóknarskýrslu Alþingis,
sem furðu margir virðast hrein-
lega hafa gleymt, kemur þetta
m.a. fram og í áttunda bindi henn-
ar bls. 184 er vitnað í fyrrverandi
stjórnmálamann með langa setu á
Alþingi og ráðherradóm að baki.
Hann segir:
„Auðvitað er það svo að flokks-
ræðið nánast í öllum stjórnmála-
flokkunum hefur þróast í ofur-
vald foringjans og klíkunnar. Þess
vegna er lýðræðið okkar svona
brothætt og veikt og ég velti því
fyrir mér hvort í rauninni þurfi
ekki að stíga mörg sterk skref
vegna þessarar reynslu til að
tryggja sterkari stjórnmálamenn
og minna foringjaræði.“
Hefur þetta ástand í stjórnmál-
unum breyst síðan þetta var skrif-
að og gert opinbert? Að mínu viti
hefur svo ekki gerst nema að mjög
takmörkuðu leyti og þegar horft er
til þeirra flokka sem setið hafa á
Alþingi síðasta kjörtíma-
bil þá hefur foringjaræðið
ráðið ríkjum. Eina sjáan-
lega breytingin hvað þetta
varðar er hjá Reykjar-
víkurborg og hefur verið
aðdáunarvert að fylgjast
með hvernig þróunin hefur
verið á þeim bæ frá síð-
ustu sveitarstjórnarkosn-
ingum. Lágstemmd pólitík
þar sem stöðugt er unnið
að breytingum íbúunum
til heilla og eru aðgerðir
þeirra til aukins íbúalýð-
ræðis einkar athyglisverðar.
Björt framtíð hefur það sem
eitt af sínum meginmarkmiðum
að reyna að breyta þeirri stjórn-
málamenningu sem hér hefur
verið ríkjandi og leitar m.a. í hug-
myndasmiðju Besta flokksins í
þeim efnum. En einnig leitum við
í smiðjur fræðimanna sem láta sér
samfélagsmál mikið varða og eru
þar margir góðir sem til greina
koma. Sá sem ég heillast hvað
mest af er dr. Páll Skúlason, heim-
spekingur og fyrrverandi rekt-
or Háskóla Íslands. Hann hefur
skrifað margar góðar greinar um
það hvernig farsælast sé að iðka
stjórnmál almenningi til heilla.
Í erindi sem birtist í TMM 2009
og aðgengilegt er á heimasíðu Páls
segir hann þetta um það hvað hann
telji vera meginhlutverk stjórn-
mála:
Í fyrsta lagi: „að opinber
umræða fari fram um sameigin-
leg mál okkar“, í öðru lagi: „að við
mótum skynsamlegar leiðir til að
taka ákvarðanir í sameiginlegum
málum okkar“ og í þriðja lagi: „að
við vinnum markvisst að því að
skapa samfélag þar sem fjölbreytt
mannlíf fær dafnað og sátt ríkir
um viss grundvallargildi.“
„Samkvæmt þessum skilningi
er stjórnmálaflokkur samtök sem
vilja hafa áhrif á það hvernig
stjórnmálin eru stunduð, hvernig
við ræðum um sameiginleg mál,
hvaða leiðir við höfum til að taka
ákvarðanir um þau og vinna að
eflingu samfélagsins. Þetta er í
mínum huga það sem mestu skipt-
ir til skilnings á hlutverki stjórn-
mála og þeirra sem taka þátt í
þeim. Við lifum saman, deilum
lífinu, og komumst ekki hjá því að
hugsa um og ræða hvað er okkur
sem heild fyrir bestu, hverjir séu
okkar sameiginlegu hagsmunir,
hver sé almannaheill.“
Við í Bjartri framtíð erum full-
komlega sammála nafna mínum í
þessum málum og munum leggja
okkur öll fram um að starfa sam-
kvæmt þessu í framtíðinni. Björt
framtíð vill breyta stjórnmálun-
um. Vinna að friði. Vil viljum tala
af virðingu og sanngirni hvert um
annað. Þannig eflum við traust.
Björt framtíð trúir því að samein-
uð leysum við öll þau vandamál
sem að íslensku þjóðfélagi steðja.
Senn lýkur einu viðburða-
ríkasta kjörtímabilinu í
sögu lýðveldisins. Þegar
ríkisstjórn Samfylkingar-
innar og VG tók við stjórn
landsins blasti við afar
dökk mynd af stöðu efna-
hagsmála; þjóðargjaldþrot
var yfirvofandi. Fjármála-
markaðurinn var hruninn,
verðbólga nálgaðist annan
tug prósenta, atvinnuleysi,
skuldir heimila og fyrir-
tækja og halli ríkissjóðs náðu for-
dæmalausum hæðum. Gjaldmiðill
landsins og kjör almennings voru í
frjálsu falli. Ísland var einangrað
frá alþjóðlegum fjármálamarkaði,
rúið trausti eins og lánshæfismat
og skuldatryggingarálag ríkissjóðs
sýndi.
Að fjórum árum liðnum blasir
við gjörbreytt mynd. Hagvöxt-
ur hefur verið tvö ár samfleytt
og er landsframleiðsla nú svipuð
og hún var árið 2006. Hagvöxtur
hefur verið meiri hér á landi en í
okkar helstu samanburðarlönd-
um. Þrátt fyrir verri viðskipta-
kjör eru hagvaxtarspár talsvert
jákvæðari fyrir Ísland en önnur
Evrópuríki. Halli ríkissjóðs hefur
minnkað úr 216 milljörðum í tæpa
fjóra milljarða. Kaupmáttur hefur
aukist þrjú ár í röð og hafa laun á
hverja vinnustund ekki verið hærri
frá hruni í samanburði við laun í
helstu viðskiptalöndum okkar.
Minni verðbólga og atvinnuleysi
Verðbólgan er nú einungis þriðj-
ungur af því sem hún var og
atvinnuleysi hefur minnkað um
tæpan helming. Eftir hrun var
tæplega einn af hverjum tíu vinnu-
færum mönnum án vinnu. Nú er
atvinnuleysi hið næstminnsta í
allri Evrópu. Atvinnulausum hefur
fækkað um meira en 12.000 og er
það ekki síst aðgerðum stjórnvalda
að þakka.
Afkoma heimilanna og eigna-
staða hefur batnað jafnt og þétt
undanfarin tvö ár. Gjaldþrotum
fækkar og árangurslausum fjár-
námum sömuleiðis. Frá miðju ári
í fyrra hafa fleiri flutt til landsins
en frá því. Góður afgangur er nú
af utanríkisviðskiptum og ferða-
þjónusta og hinar skapandi greinar
eru í miklum vexti, ekki síst vegna
stóraukins stuðnings stjórnvalda.
300 milljarða lækkun
skulda heimila
Skuldir heimila og fyrir-
tækja hafa lækkað um
tæpan helming frá haust-
inu 2008. Sé litið til alls
kjörtímabilsins hafa
skuldir heimila og fyrir-
tækja lækkað sem nemur
tvöfaldri landsfram-
leiðslu, um 3.000 millj-
arða króna. Skuldir heim-
ilanna hafa lækkað um
meira en 300 milljarða króna og
er skuldastaða þeirra nú svipuð
og árið 2006.
Skuldir hins opinbera lækka
einnig þrátt fyrir áföll hruns-
ins og eru þær nú svipaðar og í
ýmsum öðrum iðnríkjum á borð
við Bandaríkin, Belgíu og Írland.
Við stöðvuðum skuldasöfnun hins
opinbera og endurreistum traust
alþjóðasamfélagsins á íslensku
efnahagslífi. Skuldatryggingar-
álag ríkissjóðs hefur ekki verið
jafn lágt síðan á miðju ári 2008 og
hafa öll alþjóðlegu matsfyrirtæk-
in sett Ísland í fjárfestingarflokk.
Merkin sýna verkin
Enn blasa við krefjandi verkefni.
Ríkisstjórnin hefur stigið mikil-
væg skref til að ýta undir aukna
fjárfestingu í landinu. Þær aukast
um fimmtung á þessu ári sam-
kvæmt þjóðhagsspá Hagstofunnar.
Fjölmargir fjárfestingarsamning-
ar hafa verið undirritaðir um lög-
festar ívilnanir vegna nýfjárfest-
inga á Íslandi. Gangi þau áform
eftir til ársins 2017 væri um 2.200
ársverk að tefla í fjárfestingum
fyrir meira en 290 milljarða króna.
Sérstök þriggja ára fjárfesting-
aráætlun ríkisstjórnarinnar getur
skapað 4.000 bein störf en á þessu
ári verður yfir 10 milljörðum varið
til verkefna vítt og breitt um land-
ið í nafni hennar. Þá bind ég mikl-
ar vonir við það víðtæka sam-
ráð sem ég setti af stað á grunni
skýrslu McKinsey um hvernig
auka megi framleiðni og fjárfest-
ingu á Íslandi.
Sterk staða Íslands
Efnahagslegur árangur ríkis-
stjórnarinnar hefur vakið heims-
athygli enda tala tölurnar sínu
máli. Það er einmitt á grunni þessa
árangurs sem allir stjórnmála-
flokkar landsins telja sig nú geta
lofað auknum útgjöldum og skatta-
lækkunum.
Sterk staða Íslands til að leysa
vandann sem við blasir vegna fjár-
magnshafta, snjóhengjunnar og
uppgjörs vegna þrotabúa gömlu
bankanna er einnig til komin
vegna faglegrar vinnu ríkisstjórn-
arinnar og afdráttarlausrar laga-
setningar sem kyrrsetti erlendar
eignir kröfuhafanna í þrotabúum
gömlu bankanna. Hvorki Sjálf-
stæðisflokkurinn né Framsóknar-
flokkurinn studdu þá lagasetningu
þótt þeir byggi nú stórkarlaleg
kosningaloforð á þessari aðgerð
ríkisstjórnarinnar og góðri stöðu
Íslands.
Kjósum öryggi í stað áhættu
Ný ríkisstjórn getur glutrað niður
þeim góða árangri sem þjóðin
hefur náð á liðnu kjörtímabili með
miklum fórnum allra landsmanna.
Það skiptir því máli að þjóðin kjósi
stjórnmálaflokka sem þeir geta
treyst til að halda áfram uppbygg-
ingarstarfi liðinna ára og sýna
ábyrgð og festu í ríkisfjármálum
og efnahagsmálum. Aðeins á þeim
grunni byggjum við velferð þessa
lands.
Munum að með stefnu sinni
og aðgerðum, t.d. einkavæðingu
bankanna, kölluðu Sjálfstæðis-
flokkurinn og Framsóknarflokk-
urinn skelfilegar afleiðingar
hrunsins yfir íslensk heimili. Það
voru líka þessir flokkar sem ollu
hér meiri ójöfnuði en áður hafði
sést. Það voru hins vegar jafn-
aðarmenn sem leiddu þjóðina út
úr vandanum, komu Íslandi í hóp
þeirra þjóða þar sem jafnrétti og
jöfnuður eru hvað mest í heimin-
um og lögðu grunn að þeim eftir-
sóknarverðu tækifærum þjóðar-
innar sem nú blasa við flestum.
Kjósum öryggi í stað áhættu.
Gleðilegt sumar!
➜ Munum að með stefnu
sinni og aðgerðum, t.d.
einkavæðingu bankanna,
kölluðu Sjálfstæðisfl okkur-
inn og Framsóknarfl okkur-
inn skelfi legar afl eiðingar
hrunsins yfi r íslensk heimili.
➜ Hér réðu formenn fl okka
öllu og í kringum þá væri
klíka og jábræður
Það skiptir máli hverjir stjórna
STJÓRNMÁL
Jóhanna
Sigurðardóttir
forsætisráðherra
Kveðið hefur verið upp
úr með það að almenn
niðurfærsla allra hús-
næðisskulda eigi að bæta
rýrnun sem orðið hafi á
eignarhlut í íbúðarhús-
næði vegna hækkunar
skulda og lækkunar á
íbúðaverði frá 2008. Svo
mikil hafi röskunin orðið
að forsendur hafi brostið
og réttur skapast á bótum
fyrir atbeina ríkisvalds-
ins.
Þarna er augljóst ósamræmi
milli vandans og lausnarinnar.
Eignarhluti ræðst bæði af íbúðar-
verðinu og skuldinni. Þess vegna
þarf bæði að líta á skuldina til
þess að ákveða hvort forsend-
ur hafi í raun brostið og athuga
þróunina á verði íbúðarinnar frá
kaupdegi. Með því að einblína á
skuldina verður háum fjárhæð-
um varið til niðurfærslu skuldar
hjá mörgum íbúðareigendum sem
engu hafa tapað af sínum eignar-
hlut. Um 30% heimilanna eiga
meira en 30 m.kr. í eigið fé hvert,
en bera samtals tæplega helming
allra skuldanna. Þessi hópur mun
fá úr ríkissjóði allt að 70 milljörð-
um króna í hreint gjafafé.
Árin 2008-2010 hækkuðu lánin
um 30% og verð íbúða á höfuð-
borgarsvæðinu lækkaði um 15%.
Þetta er forsendubresturinn svo-
nefndi. En árin 2004-2007 varð
þróunin á annan veg. Þá hækk-
aði íbúðaverð um 92% og neyslu-
verðsvísitalan aðeins um 22%.
Þetta er í raun jafnmikil for-
sendubreyting. Önnur bjó til eign-
arhluta og hin minnkaði hann.
Þegar litið er til þróunarinnar frá
2000-2012 hefur verðþróunin búið
til eign, íbúðaverð hefur hækkað
um 150% en skuldir um 98%.
Vegna þess hvernig verðþróun-
in hefur verið undanfarin ár mun
almenn lækkun skulda dreifast
þannig að þeir íbúðareigendur fá
mesta lækkun skulda sem keyptu
stórt og hafa notið mestrar hækk-
unar á verði íbúðar sinnar. Marg-
ir þeirra hafa engu tapað og nið-
urfærslan yrði þeim hreinn gróði.
Þeir íbúðareigendur sem keyptu
seint á þensluárunum og skömmu
fyrir hrun munu fá minnst, m.a.
af því að þeir hafa þegar fengið
lækkun skulda vegna 110% leið-
arinnar. Forsendubrestur ann-
arra, svo sem þeirra tugþúsunda
sem hafa misst atvinnuna eða
hafa mátt þola sérstaka skerðingu
á tekjum sínum eins og ellilífeyr-
isþegar, er léttvægur fundinn og
til einskis metinn. Tugþúsund-
ir heimila aldraðra og leigjenda
í brýnni þörf eru sniðgengn-
ar. Sanngirnin á sér greinilega
sveigjanlegar forsendur.
Sveigjanlegar forsend-
ur fyrir sanngirni
Breytum stjórnmálum
„… HEILLAÐI MIG OG
GREINILEGA ÞÚSUNDIR
ANNARRA LESENDA
GERSAMLEGA UPP
ÚR SKÓNUM.“ The Guardian
Sönn saga ljósmóður í fátækustu
hverfum Lundúnaborgar á sjötta
áratug síðustu aldar
NÝ
KILJA
STJÓRNMÁL
Páll Valur
Björnsson
1. sæti Bjartrar
framtíðar í
Suðurkjördæmi
FJÁRMÁL
Kristinn H.
Gunnarsson
fv. alþingismaður
➜ Þeir íbúðar-
eigendur sem keyptu
seint á þensluárunum
og skömmu fyrir hrun
munu fá minnst