Fréttablaðið - 26.04.2013, Síða 30
FRÉTTABLAÐIÐ Hönnun, heilsa og haming ja. Alda B. og Júlía spjalla. Tíska og menning. Spjörunum úr og helgarmaturinn.
4 • LÍFIÐ 26. APRÍL 2013
Húsið iðar af lífi enda þrír fjörug-
ir strákar á heimilinu. Í næsta þætti
af Heimsókn bankar Sindri upp
á hjá Hálfdáni Steinþórssyni við-
skiptafræðingi og Erlu Björnsdótt-
ur sálfræðingi, sem
búa í fallegri íbúð
á Ránargötunni í
miðbæ Reykjavík-
ur. Heimsókn er í
opinni dagskrá,
alla laugardaga,
strax að loknum
fréttum á
Stöð 2.
FALLEGT
HEIMILI SEM
IÐAR AF LÍFI
HEIMSÓKNIN HÁLF-
DÁN STEINÞÓRSSON
Hálfdán Steinþórs-
son og Erla Björns-
dóttir ásamt fjör-
ugu gaurunum
sínum.
Hjónin hafa augljós-
lega gott auga fyrir
fallegum hlutum.
Vel nýtt rými undir
stiga.
Skærir litir brjóta upp
klassíkina.
Hlauparáð Silju Úlfars
■ Settu þér markmið
Hvert er þitt markmið? Bæta tímann í
5km hlaupi, 10km hlaupi, eða taka þátt
í Reykjavíkurmaraþoninu? Líða vel eða
rækta líkamann? Skrifaðu niður þín pers-
ónulegu markmið og leiðina að þeim.
Mikilvægt er að hafa raunhæf skamm-
tíma- og langtímamarkmið og svo er
virkilega nauðsynlegt að fagna hverjum
áfanga.
■ Góður skóbúnaður
Góðir skór skipta miklu máli þegar þú
byrjar að hlaupa og geta líka eflt sjálfs-
traust þitt. Allt of margir fara út á göturn-
ar í gömlum og lélegum skóm og enda
því miður með álagsmeiðsli í hnjám,
blöðrur á tám eða önnur meiðsli sem
geta dregið úr manni. Að skóa sig upp
getur verið tilvalið skammtímamarkmið
númer eitt.
■ Fjölbreyttar hlaupaæfingar
Lykilatriði að bættum árangri er að hafa
æfingarnar fjölbreyttar og skemmtilegar.
Góð leið til þess er að bæta langhlaup-
in er að spretta, fara í hraðleiki, taka
brekkuspretti eða tröppuhlaup svo dæmi
séu tekin.
■ Styrktarþjálfun er mikilvæg
Þrátt fyrir að útihlaupin geti verið yndis-
leg þá er ekki nóg að stunda þau ein-
göngu. Þú þarft að hugsa vel um þig og
styrkja vöðvana, forðast meiðsli og svo
er auðvitað ekkert verra að líta vel út.
Styrktarþjálfun getur verið bæði skemmti-
leg og fjölbreytt og getur verið hluti af
upphituninni, þrekhringur í lok æfingar,
eða alveg séræfing.
■ Hugsaðu vel um þig
Til að fá sem mest út úr hverri æfingu eru
nokkrir klassískir hlutir sem skipta miklu
máli, eins og að nærast vel fyrir og eftir
æfingu og jú, auðvitað einnig allan dag-
inn! Einnig skiptir máli að teygja vel eftir
æfingar, rúlla sig (bandvefslosun) og hvíl-
ast vel.
■ Skemmtilegur æfingafélagi
Skemmtilegur æfingafélagi er mikilvæg-
ur þáttur til að gera æfingarnar enn þá
betri. Helst félagi sem segir brandara og
hvetur þig áfram. Það er ekki verra ef
hann eða hún er með flott sólgleraugu.
En ef skortur er á góðum félaga settu þá
góða tónlist í eyrun.
■ Dæmi um góða æfingu:
Góð upphitun: Skokk, léttar styrktar-
æfingar og hreyfiteygjur.
Hlaup: Til dæmis interval, brekkusprettir,
hraðaleikir eða tröppuhlaup.
■ Styrktaræfingar með eigin líkamsþyngd:
3 umferðir
10 armbeygjur
20 hnébeygjur eða framstig
30 bakæfingar
40 uppsetur eða planki í eina mínútu
5 jafnfætishopp
Teygja vel í lokin, sérstaklega á fótum
og mjöðmum
Gleðilegt æfingasumar!
www.siljaulfars.is
AÐ MÖRGU AÐ HUGA ÞEGAR HLAUPIÐ ER
Silja Úlfarsdóttir, hlaupari og einkaþjálfari, ætlar að halda námskeið í sumar fyrir hlaupaáhugafólk þar sem aðaláherslan verður á sprettþjálfun, meiðslafor-
varnir, styrktaræfi ngar og liðleikaþjálfun. Hún segir fátt dásamlegra en að æfa utandyra en bendir á að það sé að mörgu að huga áður en fólk æðir af stað.