Fréttablaðið - 26.04.2013, Síða 33
FRÉTTABLAÐIÐ
LÍFIÐ 26. APRÍL 2013 • 7
Uppáhalds
kemur mér á óvart að hún skuli
ekki verða orðin brjáluð á mér því
sjálf væri ég orðin svolítið pirruð.
Börnin alltaf dröslast með
Nú starfið þið saman mæðgurn-
ar í fyrirtækinu þínu Snyrtilegur
klæðnaður. Alda, hvernig gengur
samstarfið?
A: Það gengur vel. Hún er enn
í skóla og fær að aðstoða mig í
tökum eftir skóla og um helgar.
Frá því hún var krakki hefur henni
alltaf fundist skemmtilegast að
dröslast með mér.
J: Ég myndi nú segja að það
gengi bara nokkuð vel.
Hafið þið svipaða sýn á hlutina
eða hafið þið kannski ólíka kosti
og skoðanir?
A: Við erum frekar sammála
með hlutina. En hún hefur annan
stíl sem ég tel vera jákvætt í sam-
starfinu.
J: Já, í flestum tilfellum sam-
mála nema þegar við erum að
tala um hvaða frægu strákar eru
myndarlegir. En ég held svona án
gríns að við höfum aldrei rifist.
Segðu mér aðeins nánar frá hlut-
verki fyrirtækisins Alda?
A: Ég byrjaði að vinna sem stíl-
isti en það hefur undið upp á sig.
Fljótlega á ferlinum var ég beðin
um að finna fólk í auglýsingar og
gera leikmynd og leikmuni svo
núna rek ég fyrirtæki sem gerir
allt þetta. Fyrirtækið mitt Snyrti-
legur klæðnaður, sem mörgum
finnst mjög skrítið nafn, sér um
að finna fólk í auglýsingar, mynda-
tökur og bíómyndir. Við erum
einnig með húsnæði á skrá fyrir
kvikmynda- og auglýsingatökur,
við stíliserum og tökum að okkur
eins og fyrr segir að búa til leik-
myndir og leikmuni. Svo það má
segja að þú getir fengið hjá okkur
alla þá þjónustu sem snýr að útliti
í myndatökum.
Íslendingar þora ekki nóg
Hvernig upplifið þið Ísland í sam-
anburði við önnur lönd þegar
kemur að tísku. Hvar stöndum við?
A: Við erum smart og fylgjumst
vel með hvað er í tísku. Ég væri
samt til í að fleiri hefðu sinn eigin
stíl. Það er alltof algengt að fólk sé
gagnrýnt fyrir að vera öðruvísi og
að allir elti tískustraumana.
J: Ég held að að Ísland sé nú
ekkert sértaklega eftir á í tísku,
það er einfaldlega þannig að sumt
kemst bara ekki í tísku hér því
enginn þorir að klæðast því. Það
eru því miður allt of margir sem
þora ekki að klæðast því sem þeim
finnst flott, af því að það eru ekki
allir í því, sem er ömurlegt!
Ef þú lítur yfir farinn veg Alda,
hvaða verkefni standa helst upp
úr?
A: Það er svo margt skemmti-
legt sem maður hefur upplifað
á þessu ferðalagi og svo hef ég
unnið með mörgum einstökum
manneskjum sem hafa snert við
mér.
En hvert er þekktasta nafnið
sem þú hefur unnið með?
A: Ég er svakalega slæm að
muna nöfnin á þeim erlendu leik-
stjórum sem ég hef unnið með, en
hann Samuel Bayer er í smá upp-
áhaldi. Hann gerði til dæmis Nirv-
ana vídeóið Smells like teen spi-
rit. Ég vann með honum í mynda-
töku sem var fyrir sýningu sem
hann setti upp í LA. Svo gerðum
við eina „fashionstory“ saman. Ég
varð reyndar örlítið meira „star
MATUR Sushi og humar.
DRYKKUR Bjór.
VEITINGAHÚS Við tjörnina,
en ég fer oftast á Sushi train.
TÍMARIT Ítalska Vogue
og Numero.
VEFSÍÐA Sartorialist.
VERSLUN Collette í París.
HÖNNUÐUR Vivienne West-
wood/Eley Kishimoto/ Peter Jensen.
HREYFING Engin.
DEKUR Ég fer því miður alltof
sjaldan í svoleiðis.
LJÓSMYNDARI Inez van Lams-
weerde and Vinoodh Matadin.
MATUR Sushi og pitsa.
DRYKKUR Organic
ginger ale.
VEITINGAHÚS
Saffran.
TÍMARIT Wonderland.
VEFSÍÐA Rookiemag.
com og ebay.
VERSLUN
Urban Outfitters.
HÖNNUÐUR
Alexander McQueen
og Marc Jacobs.
HREYFING Skokk.
LJÓSMYNDARI
Tim Walker og Mario
Testino.
NÚ FÁ ÁSKRIFENDUR ELDBAKAÐA OG SKELLIHLÆJANDI SNILLD MEÐ 25% AFSLÆTTI.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
20%
afsláttur af
fatahreinsun
25%
afsláttur
alla sunnudaga
10%
afsláttur ef verslað
er fyrir 2.000 kr.
eða meira
40%
afsláttur af
bílaþvotti að utan
15%
afsláttur af vörum á bilinu
10.000 – 400.000 kr.
Sækja þarf um Olís
greiðslulykil til að fá afslátt
12%
afsláttur ef verslað
er fyrir 2.000 kr. eða m
eira
Það eina sem þarf að gera er að skrá kre
Þú f æ tarfsaðila.slárð sjálfkrafa af tt hjá fjölda sams
25% afsláttur af pizzum á matseðli.
ditkort heimilisins á stod2.is
AFSLÁTTUR
Byrjaðu strax að spara. Skráðu kortin ykkar
núna á www.stod2.is/vild
25% afsláttur af miðaverði á Ormstungu.
Miðapantanir í síma 568 8000
AFSLÁTTUR
Kynntu þér
tilboðin á
stod2.is/vild
ALDA JÚLÍA