Fréttablaðið - 26.04.2013, Qupperneq 46
26. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 26TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
JÓNA GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR
Kambaseli 51, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut föstudaginn 12. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Oddur Magnússon.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÓSK GUÐJÓNSDÓTTIR
Nykhól, Mýrdalshreppi,
síðast til heimilis á Dvalarheimilinu
Hjallatúni í Vík,
andaðist miðvikudaginn 17. apríl sl.
Útförin fer fram frá Skeiðflatarkirkju í Mýrdal
laugardaginn 27. apríl klukkan 13.00.
Hörður Þorsteinsson
Guðjón Harðarson Jóhanna Jónsdóttir
Jóhanna Þórunn Harðardóttir Guðmundur Oddgeirsson
Guðbjörg Klara Harðardóttir Hlynur Björnsson
Sigurlaug Linda Harðardóttir Gunnar Vignir Sveinsson
Steina Guðrún Harðardóttir Jóhannes Gissurarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
VALGEIR VILHELMSSON
vinnuvélaverktaki,
Fannborg 7, Kópavogi,
lést á heimili sínu 22. apríl sl. Útför hans fer
fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 2. maí
klukkan 13.
Stefán Þór Valgeirsson
Tryggvi Garðar Valgeirsson
Bragi Valgeirsson Erla Viggósdóttir
Kristján Steinar Tryggvason, Anna Eir, Brynhildur Íris
og Sandra Björk Bragadætur
Fjölbreytt úrval legsteina
Frí áletrun og uppsetning
Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88
Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum)
Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði
www.granithollin.is
Sími 555 38 88
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts
móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
GUÐBJARGAR EYVINDSDÓTTUR
Bræðraborgarstíg 9, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á deild A4
á Landspítalanum í Fossvogi fyrir hlýhug og
góða umönnun.
Laufey Ármannsdóttir
Steinþór Ómar Guðmundsson Jóhanna Jónsdóttir
Einar Ármannsson Ásdís Garðarsdóttir
Freydís Ármannsdóttir Helgi Sigurjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Það hefur verið nóg að gera hjá Auð-
uni Gestssyni síðustu daga. Hann hefur
tekið þátt í hátíðinni List án landamæra
af lífi og sál og lesið upp úr nýju ljóða-
bókinni sinni, Ljóðin mín. Hún var
gefin út í tilefni sjötíu og fimm ára
afmælis hans í febrúar og birtir fallega
sýn hans á heiminn.
Tvíburabróðir Emils í Kattholti
Gunna, frænka Auðuns, er í heimsókn
þegar blaðamaður bankar upp á hjá
honum í vistlegu sambýli á Vesturbrún.
Þar hefur hann stórt herbergi og ein-
staklega snyrtilegt. Íslenski fótboltinn
er í uppáhaldi og litlir búningar helstu
liðanna eru nældir upp á töflu. Fallegt
fjallamálverk eftir hann sjálfan er ofan
við skrifborðið og mynd af honum og
vini hans Emil í Kattholti líka. „Við
Emil erum tvíburabræður,“ segir Auð-
unn sposkur og fer með langa sögu um
það þegar hann fór í heimsókn í Smá-
löndin sem lítill strákur og Emil faðm-
aði hann að sér en pabbinn dæsti og
sagði: „Oh, er nú kominn annar prakk-
ari í Kattholt.“
Flatey á Breiðafirði eru æskuslóðir
Auðuns. Hann var einn af sjö systk-
inum en var kornungur þegar hann
missti mömmu sína. Þá tók stóra systir
hans Gerður við og hjá henni bjó hann
þar til fyrir fjórum árum. Hann fór síð-
ast til Flateyjar ekki alls fyrir löngu en
saknaði bæði sjónvarpsins og þess að fá
ekki blöðin daglega.
Auðunn á margar minningar úr
blaðasölunni. Hann bar blöðin niður
Laugaveginn og átti sína föstu við-
skiptavini. „Ég var oft hjá Pósthús-
inu niðri í bæ og líka nálægt Dóm-
kirkjunni, þar seldi ég þingmönnunum
blöð. Ég þekkti þá alla. En ég tók hornið
hans Óla við Apótekið þegar hann hætti
og leyfði blaðsölukrökkunum líka að
vera hjá mér.“ Hann segir víetnömsku
krakkana hafa verið sérstaka vini sína.
Er Víkingur frá fornu fari
Auðunn klippir úr blöðunum greinar
og myndir um íslenska boltann. Líka
fuglamyndir. Öllu raðar hann snyrti-
lega í skúffur. „Ég fór beint í fótbolt-
ann þegar ég kom til Reykjavíkur. Hélt
mikið með Þrótturum en er gamall Vík-
ingur og einu sinni hélt ég líka með
KR.“ Hann kveðst hafa fengið treyjur
margra liða í jóla-og afmælisgjafir og
klæðast þeim þegar við á. Uppi á vegg
hanga medalíur frá Vísi og í glugganum
eru bikarar, einn fékk hann þegar hann
var kjörinn blaðakóngur og annan hlaut
hann fyrir frammistöðu í skák hjá DV.
Eftir blaðasöluárin fór Auðunn að
dvelja í Lækjarási hluta úr degi og fást
þar við ýmis verkefni. Listrænir hæfi-
leikar komu þá líka betur í ljós og hann
fór að yrkja og mála. Ljóðabókin hans
er uppseld í bili en ný prentun væntan-
leg. „Svo ætla ég að gefa út aðra bók í
haust,“ segir hann ákveðinn.
gun@frettabladid.is
Yrkir um fugla, fótbolta
og blaðasöluárin
Auðunn Gestsson vann í 30 ár sem blaðasali og á hverjum degi les hann blöðin og klippir
út allt um íslenska fótboltann. Nú er hann búinn að gefa út ljóðabókina Ljóðin mín.
AUÐUNN GESTSSON Fyrrverandi blaðasali og núverandi ljóðskáld. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MERKISATBURÐIR
1834 Ofsaveður brestur á á Faxaflóa og farast þar 42 menn af
tveimur skipum og 14 bátum.
1909 Björn Jónsson ráðherra skipar þriggja manna rannsóknar-
nefnd til að rannsaka hagi Landsbanka Íslands.
1944 Við Tjarnargötu í Reykjavík finnst öskuhaugur þegar tek-
inn er grunnur að nýju húsi. Haldið er að hann sé frá tíð Ingólfs
Arnarsonar.
1966 Akraborg fer sína síðustu ferð til Borgarness.
1978 Kvikmyndasjóður Íslands er stofnaður.
1986 Kjarnaklúfur í Tsjernobyl springur.
2004 Fjölmiðlafrumvarp er lagt fram á Alþingi.
Litla stúlkan í Gullsmáranum
alltaf með sælgæti inni í skáp.
Hún setur sælgætið í dollu fyrir drenginn sinn
og lætur hann taka það með sér heim í Sólheima.
Hann gefur elstu systur með sér
meðan þau sitja og horfa á Leiðarljós.
ÚR BÓKINNI LJÓÐIN MÍN
Sími 551 3485,
svarað allan
sólarhringinn.
www.udo.is
Hinrik Davíð Jóhanna Óli Pétur