Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.04.2013, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 26.04.2013, Qupperneq 48
26. apríl 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 28 BAKÞANKAR Stígs Helgasonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 KROSSGÁTA PONDUS Eftir Frode Øverli GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman MYNDASÖGUR Ég er bara að meina að það myndi ekki skaða ef þú myndir breyta aðeins til! Jesús! Á ég að verða eins og Kalli Berndsen? Alls ekki! En aðrir menn geta klætt sig mjög fínt! Maðurinn hennar Söru og ... Er ég að skilja þetta rétt? Skammastu þín fyrir mig þegar ég geng í Kizz- bolum? Skammast og ekki skamm- ast... There you go! Næst er kannski taglið mitt ekki nógu gott fyrir þig heldur! Ok, núna er þetta að verða persónulegt! Nei, nei.... það er flott! Venjulegt vandamál Ég get séð þig. Ég get heyrt í þér. Samt get ég ekki skilið neitt af því sem þú segir eða gerir. Hvernig slæ ég? S. 6006721 Halló. Pabbi er kominn! Hvað komstu með fyrir okkur? Pant fá bréfa- klemmu na! Má ég eiga tygg jóið? Er þetta nammi eða verkja- tafla? Ég sé að þú ert búinn að hitta krakkana. Jebb. Knúsaður og rændur. Í íslenskri menningu er hrafninn heldur illa liðinn fugl. Hann er hrææta, kropp- ar augun úr hrútshausum, gjarnan bendl- aður við sjálfan djöfulinn, feigðarboði og sálnasækir. Þetta rímar ekki við mín einu kynni af hrafninum, þar sem hann birt- ist mér sem skynugasta og sanngjarnasta skepna sem ég hef fyrir hitt. ÞAÐ var í dýragarðinum Slakka í Laugarási fyrir margt löngu, þar sem Krummi hímdi einn í stærðar búri í garðinum miðjum. Allt í kring voru krúttlegir ungar hinna og þessa tegunda sem buðu manni að klappa sér. MINNUGUR þess að hafa sem smá- barn heyrt að hrafnar væru glysgjarn- ir fuglar sótti ég eina krónu í vasann og sýndi honum. Hann hallaði höfðinu til hliðar og hefði hann verið hundur hefði hann sperrt eyrun. En hann var fugl og ekki með nein eyru þannig að hann mændi bara til mín þangað til ég lagði pen- inginn á jörðina, hálfan inn um vírgirðinguna. Þá flögraði hann niður úr hríslunni eins og sannur tildur hani, greip krónuna í gogginn og kjagaði með hana inn í mitt búr, sótti sér svo lítið sprek og kom því fyrir ofan á myntinni, eins og til að fela hana fyrir mér, og virtist hreykinn af dagsverkinu. EINHVERRA hluta vegna var ég hins vegar ekki tilbúinn að lúffa svo auðveld- lega fyrir þessum fiðraða leikfélaga mínum, svo að ég hélt kyrru fyrir og mændi á hann í dágóða stund. Ég man ekki hversu lengi, kannski í tvær mínútur – varla meira en tíu, háðum við sálfræðistríð í gegnum vír- netið og skyndilega þraut keppinaut minn örendið. Hann skjögraði sneyptur að krón- unni, færði sprekið af henni, tók hana upp og skilaði mér henni. Síðan sneri hann í mig stélinu. ÞANNIG lauk þöglum samningaviðræð- um mínum við krumma. Ég bauð ekkert í staðinn, en eflaust hefur hann vonað að ég mundi láta hann í friði. Sem ég og gerði. KANNSKI hefði ég átt að halda í þessa krónu, gera úr henni heillagrip, bora í hana gat og ganga með hana í keðju um háls- inn eins og fífl það sem eftir lifði, strjúka henni fyrir svefninn og vona að hún færði mér gæfu. Ákalla pening. Eins og fífl. En ég gerði það ekki. Ég veit ekki einu sinni hve- nær hún var slegin – mögulega fæðingar- árið mitt – og líklega hef ég hent henni niður um ræsisrist við fyrsta tækifæri. EF þú ert að bíða eftir líkingu við yfirvof- andi samningaviðræður íslenskra stjórn- valda um krónueign erlendra kröfuhafa þá verð ég að valda þér vonbrigðum. Þetta er bara saga um fugl og smámynt – og þarf heldur ekki að vera neitt meira. Samið við hræfuglLÁRÉTT2. loðfeldur, 6. skóli, 8. merki, 9. nytsemi, 11. skst., 12. hlutdeild, 14. hégómi, 16. átt, 17. hyggja, 18. of lítið, 20. stefna, 21. hlýja. LÓÐRÉTT 1. fylla, 3. eftir hádegi, 4. jarðbrú, 5. sjáðu, 7. véfrétt, 10. málmur, 13. hlé, 15. höggva, 16. síðan, 19. ónefndur. LAUSN LÁRÉTT: 2. pels, 6. fg, 8. hak, 9. not, 11. no, 12. aðild, 14. snobb, 16. sv, 17. trú, 18. van, 20. út, 21. orna. LÓÐRÉTT: 1. efna, 3. eh, 4. landbrú, 5. sko, 7. goðsvar, 10. tin, 13. lot, 15. búta, 16. svo, 19. nn. Miðasala fer fram á Miði.is, Harpa.is, í miðasölu Hörpu og í síma 528-5050. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX Í DAG! #laddilengirlifid „Laddi er e ngum líkur ...Hann er þ jóðargerse mi.“ Pressan.is „Stórkostle g sýning!“ - Heimir Ka rlsson, Bylg jan „Sprenghlæ gileg sýning fyrir allan a ldur!“ - Sirrý, Rás 2 EINLEIKIN GAMANSEMI Í HÖRPU EFTIR KARL ÁGÚST, LADDA OG SIGGA SIGURJÓNS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.