Fréttablaðið - 01.05.2013, Side 2
1. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Magnús, fylgja ofurgrúppum
ekki ofurgrúppíur?
„Jú. Við hlökkum óskaplega mikið
til að sjá þær en vonum að þær
gleymi ekki tannlíminu.“
Magnús Kjartansson fer fyrir sannkallaðri
ofurgrúppu tónlistarmanna úr Trúbroti, Nátt-
úru, Mánum og Pelican sem mun hita upp
fyrir Deep Purple í Laugardalshöll í júlí.
REIÐI Almenningur brenndi eftirmynd héraðsleiðtoga í reiði vegna dauða fimm ára
telpu sem var nauðgað. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
INDLAND, AP Fimm ára indversk telpa sem tveir menn nauðguðu fyrr
í mánuðinum lést í gær af völdum áverka sem hún hlaut í árásinni.
Mennirnir, sem eru í haldi lögreglu, lokkuðu stúlkuna inn á sveitabæ
þar sem annar maðurinn kom fram vilja sínum við hana.
Stúlkan varð fyrir heilaskaða þegar mennirnir héldu púða fyrir
vitum hennar til að kæfa í henni neyðarópin, en það dró hana til
dauða. Mikil reiðialda braust út í héraðinu þegar fréttir bárust af
dauða hennar og brenndu mótmælendur eftirmyndir af héraðs-
stjóranum sem er sakaður um aðgerðaleysi í málum sem þessum. - þj
Reiðialda eftir enn eitt grimmdarverkið í Indlandi:
Fimm ára lést eftir nauðgun
LÖGREGLUMÁL Karlmaður frá
Litháen var handtekinn í Leifs-
stöð á mánudag þegar hann reyndi
að flýja land. Hann var handtek-
inn í mars, en þá var jafnframt
lagt hald á 500 grömm af ætluðu
kókaíni. Eftir gæsluvarðhald var
maðurinn úrskurðaður í farbann.
Á mánudag ætlaði Litháinn
úr landi og hafði keypt miða til
Færeyja og þaðan til Bretlands
þar sem hann er búsettur. Hann
var handtekinn og úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 28. mars.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
fer með rannsókn málsins sem er á
lokastigi. Um tíma sat annar Lithái
og einn Íslendingur í gæsluvarð-
haldi í tengslum við sama mál. - shá
Í farbanni vegna fíkniefna:
Lithái reyndi að
flýja til Færeyja
FJÁRMÁL Orkuveita Reykjavíkur
gekk í gær frá stærstu afborgun
láns í sögu fyrirtækisins, sem var
um tíu milljarð-
ar króna. Eitt af
helstu markmið-
um eignasölu-
áætlunar sem
OR vinnur eftir
var að mæta
afborguninni.
Upphaflega átti
afborgunin að
nema um 15
milljörðum en á síðasta ári tókst að
fresta greiðslu fimm milljarða. Í
tilkynningu segir að engu að síður
hafi greiðslan verið helsta ógnin
við greiðsluhæfi OR. - shá
Greiddu 10 milljarða af láni:
Stór áfangi hjá
Orkuveitunni
BJARNI
BJARNASON
BANDARÍKIN Barack Obama Banda-
ríkjaforseti ítrekaði í gær áform
sín um að leggja niður fangabúð-
irnar í Guantanamo. Lokun búð-
anna var eitt af helstu kosningalof-
orðum Obama árið 2008, en þingið
stóð gegn öllum fyrirætlunum í þá
átt. Obama endurnýjaði heit sitt
í gær og lofaði að bera málið upp
við þingið.
Búðirnar sköðuðu orðspor
Bandaríkjanna á alþjóðavett-
vangi, en tugir fanga hafa verið í
mótmælasvelti að undanförnu. - þj
Obama Bandaríkjaforseti:
Lofar að loka
Guantanamo
ÞJÓÐGARÐAR „Ég hræðist ekki
þessa aðsókn þegar við getum
gert aðbúnaðinn góðan og fyrir-
tækjunum líður vel,“ segir Ólafur
Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður
á Þingvöllum, þar sem aðsókn í
köfun og snorkl í gjána Silfru var
verulega umfram það sem menn
áttu von á í mars og apríl.
Í byrjun mars tók gildi eitt
þúsund króna gjald fyrir köfun
í Silfru. Síðan hafa rúmlega tvö
þúsund manns verið skráðir þar í
köfun, langflestir á vegum ferða-
þjónustufyrirtækja. Rekstrar-
áætlun þjóðgarðsins gerir hins
vegar ráð fyrir sex til sjö þús-
und gestum á ári. Ólafur bendir
á að mars og apríl séu alls ekki á
háannatíma í köfuninni.
„Þetta er mest yfir sumarið og
bjartasta tímann en stendur ótrú-
lega lengi fram eftir haustinu.
Það er hægt að draga þær álykt-
anir að þetta fari töluvert fram úr
þeim sex til átta þúsundum sem við
gerðum ráð fyrir,“ segir þjóðgarðs-
vörður sem kveðst vera farinn að
vonast til að meira fé en áður var
gert ráð fyrir fáist til að bæta
aðstöðuna við Silfru. Uppstig fyrir
kafarana, fráleggsborð og gáma-
salerni hafi verið á áætlun ársins.
„Það sem er brýnast að gera
núna er að koma í veg fyrir gróður-
skemmdir á svæðinu, sérstaklega
fram með gjánni. Þar er allur
mosi uppsparkaður og tættur. Einu
skynsamlegu viðbrögðin eru að
leggja þar stíga svo þeir sem hafa
áhuga á að ganga fram á brúnirnar
og fylgjast með köfurunum geti
gert það án þess að spilla landinu.
Við gerðum ekki ráð fyrir að þetta
yrði hægt fyrr en næsta sumar
en ég er farinn að gæla við að við
getum hrint þessu í framkvæmd
strax í sumar,“ segir Ólafur.
Þjóðgarðsvörður undir strikar
að öllu fé sem innheimtist af
köfurunum eigi að verja í þjón-
ustu við þá sjálfa. Samstarfið sé
ánægjulegt og árekstralaust eftir
að nýjar öryggisreglur voru inn-
leiddar og gjaldið sett á.
„Hitt var alveg vonlaust, eins
og þetta var orðið. Hvorki landið
né aðstaðan þoldi þetta. Þetta er
ánægjuefni og skapar nýja mögu-
leika til að standa vel að þessu öllu
saman,“ segir Ólafur sem kveður
athyglisvert hversu köfunin sé
orðin vinsæl. „Þetta er áhugaverð
þjónusta fyrir Þingvelli og fyrir
þessi fyrirtæki og íslenska ferða-
þjónustu alla.“ gar@frettabladid.is
Tvö þúsund kafarar
borguðu ofan í Silfru
Aðsókn að köfun í gjánni Silfru í mars og apríl var miklu meiri en áætlað var áður
en eitt þúsund króna gjald tók gildi í byrjun mars. Þjóðgarðsvörður segir það fé
sem fáist aukalega verða nýtt til að bæta aðstöðuna og minnka gróðurskemmdir.
SILFRA Stigi auðveldar köfurum að komast upp úr Silfru en viðkvæmur gróður á
brúnum gjárinnar er óvarinn fyrir traðki forvitinna áhorfenda. MYND/HÖRÐUR JÓNASSON
Einu
skynsamlegu
viðbrögðin
eru að leggja
þar stíga svo
þeir sem hafa
áhuga á að
ganga fram á brúnirnar og
fylgjast með köfurunum
geti gert það án þess að
spilla landinu.
Ólafur Örn Haraldsson
þjóðgarðsvörður á Þingvöllum
NÁTTÚRA Björgunarfólki frá Þórshöfn tókst að
bjarga tveimur háhyrningum úr fjörunni við
Heiðar höfn á Langanesi. Fjögur af sex dýrum sem
upphaflega syntu á land drápust. Ákveðið var að
aflífa tvö dýr eftir að endur teknar til raunir til að
koma þeim á haf út báru ekki árangur.
Það fréttist af háhyrningunum sex um klukkan
tvö á mánudag. Þegar fór hópur manna þeim til
bjargar og náði fljótlega að bjarga einu dýri; tvö
drápust í fjörunni um daginn. Þrjú dýr voru eftir
í fjörunni og var stórri gröfu beitt til að moka frá
dýrunum.
Guðni Hauksson, formaður björgunarsveitar-
innar Hafliða, segir að eftir nokkurra tíma vinnu
í gærdag, þar sem fimmtán björgunarsveitar-
menn komu að björgun, hafi átta farið aftur um
nóttina.
„Þá tókst þeim að koma einum háhyrningi út
en verr gekk með tvö stærri dýrin af þessum
þremur. Þegar komið var með þau út í brimið sló
þeim alltaf fyrir og skolaði aftur upp í fjöruna.
Dýrin voru bara orðin of máttfarin og hjálpuðu
lítið til. Þá var ekkert annað eftir en að senda
eftir byssumanni,“ segir Guðni. - shá
Björgunarfólk á Þórshöfn lagði nótt við dag til að bjarga háhyrningum:
Tókst að bjarga tveimur dýrum
ALLT REYNT Fyrst var reynt með handafli og síðan með hjálp
gröfu. Tveimur tókst að bjarga. MYND/HILMA STEINARSDÓTTIR
REYKJAVÍKURBORG „Annað árið í röð
er taprekstur í borginni sem gefur
til kynna að aðhald í rekstri borgar-
innar sé ábótavant,“ segir í tilkynn-
ingu sem borgarstjórnarflokkur
sjálfstæðismanna sendi frá sér í til-
efni birtingar ársreiknings Reykja-
víkurborgar.
Meirihluti Besta flokksins og Sam-
fylkingar segir hins vegar að „birt
hafi til“ í ársreikningum sem sýni
að aðgerðaáætlun eigenda og stjórn-
enda Orkuveitu Reykjavíkur hafi
gengið framar vonum. Halli A-hluta
borgarinnar hafi aðeins verið 44
milljónir króna þrátt fyrir að gjald-
færsla vegna lífeyrisskuldbindinga
hafi verið 2,9 milljarðar en ekki 600
milljónir eins og áætlað hafi verið.
„Þetta er frábær árangur og gott
dæmi um þann stöðugleika sem
tekist hefur að ná hér í borginni á
síðustu þremur árum,“ segir Jón
Gnarr borgarstjóri í tilkynningu.
„Á tímabili núverandi meirihluta
hefur aðhaldið verið ófullnægjandi
og kerfið vaxið á kostnað borgar-
búa,“ segir hins vegar í tilkynn-
ingu sjálfstæðismanna. „Það er
auðvelt að stjórna með því að taka
stöðugt fé af fjölskyldum og fyrir-
tækjum í borginni,“ sagði Júlíus
Vífill Ingvars son sjálfstæðismaður
á borgarstjórnarfundi í gær. - gar
Öndverðar skoðanir um ársreikninga Reykjavíkurborgar í borgarstjórn í gær:
Frábær árangur segir Jón Gnarr
RÁÐHÚSIÐ Skiptar skoðanir eru um
ágæti ársreikninga borgarinnar.
SPURNING DAGSINS
Dagskrá skv. lögum félagsins er:
1. Setning fundar og dagskrá kynnt.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnarinnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
4. Umræða um skýrslu stjórnar.
5. Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir.
6. Umræða um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar.
7. Skýrslur nefnda, ef kjörnar hafa verið.
8. Tillögur/lagabreytingar frá stjórn, nefndum eða félagsmönnum.
9. Kjör stjórnar, varamanna og fastanefnda.
10. Kjör Skoðunarmanna.
11. Önnur mál.
12. Fundarslit.
Rétt til setu á aðalfundi hafa allir félagar í öllum deildum og móðurfélagi
sem hafa staðið full skil á gjöldum til félagsins. Hinir sömu hafa einnig
atkvæðisrétt á aðalfundi.
Stjórnin
Aðalfundur
Ferðaklúbbsins 4x4
verður miðvikudagskvöldið 8. maí kl. 20:00.
Fundarstaður er Hótel Natura (Loftleiðir).