Fréttablaðið - 01.05.2013, Page 6
1. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvað heitir formaður SFR?
2. Hversu margir háhyrningar syntu
upp í fjöruna á Langanesi?
3. Hvert er Sigurður Guðmundsson,
kenndur við hljómsveitirnar Hjálma
og Memfi smafíuna, að fl ytja?
SVÖR:
1. Árni Stefán Jónsson. 2. Sex. 3. Til
Noregs.
LÖGREGLUMÁL Fatlaðar konur eiga
frekar á hættu að verða fyrir kyn-
ferðisofbeldi en aðrar konur. Nýleg
sænsk rannsókn sýnir að þrisvar
sinnum líklegra sé að þroska-
heftar konur
ver ð i f y r i r
slíkum brotum,
en engar rann-
sók n i r h a fa
verið gerðar á
slíku hér lendis
þótt vísbend-
ingar bendi í
svipaða átt.
Lögreglan á
höfuðborgar-
svæðinu er langt á veg komin með
að rannsaka nauðgun á fatlaðri
konu í Kópavogi um miðjan mars
síðastliðinn. Bílstjóri konunnar,
maður á fimmtugsaldri, var
kærður fyrir brotið og hefur hann
verið yfirheyrður. Nauðgunin
átti sér stað í bíl á vegum Ferða-
þjónustu fatlaðra í Kópavogi og
hefur maðurinn verið leystur frá
störfum. Hann hefur ekki áður
komið við sögu hjá lögreglu en
öllum starfsmönnum er skylt að
framvísa sakavottorði til Kópa-
vogsbæjar áður en þeir eru
ráðnir. Ekki er hægt að fá upp-
gefið hvort maðurinn hafi gengist
við glæpnum.
Friðrik Smári Björgvinsson,
yfirmaður rannsóknardeildar lög-
reglunnar, segir manninum hafa
verið sleppt að lokinni skýrslu-
töku. Hann segir að brot sem
þessi séu ekki algeng en þau komi
vissulega fyrir eins og hjá öðrum.
Spurður hvort hann telji líklegt
að maðurinn verði ákærður segir
hann það vera alfarið í höndum
ákæru valdsins.
Gunnar Torfason, yfirmaður
Ferðaþjónustu fatlaðra í Kópavogi,
segir þetta vera í fyrsta sinn sem
svona mál komi upp innan stofn-
unarinnar.
„Það verður klárlega farið yfir
málin,“ segir hann. „Það er búið að
ræða þetta og við erum að skoða
þetta.“ Hann vildi ekki tjá sig um
málið sem slíkt. „Maðurinn var
boðaður til skýrslutöku og búið. Ég
veit ekkert um aðstæður eða neitt
slíkt. Ég veit bara ekkert um þetta
mál,“ segir hann.
Guðlaug Ósk Gísladóttir, yfir-
maður þjónustudeildar fatlaðra
í Kópavogi, vildi ekki tjá sig um
málið og vísaði í félagsmálastjóra.
Ekki náðist í hann við vinnslu
fréttarinnar. sunna@frettabladid.is
Líklegra að brotið sé
á fötluðum konum
Fatlað fólk er berskjaldaðra gegn kynferðisofbeldi en annað fólk. Bílstjóri fatlaðrar
konu í Kópavogi grunaður um nauðgun. Veit ekkert um málið, segir fyrrverandi
yfirmaður mannsins. Yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra neitar að tjá sig.
KÆRÐI NAUÐGUN Í MARS Manninum sem var kærður fyrir að hafa nauðgað fatlaðri konu í Kópavogi var sagt upp störfum hjá
Ferðaþjónustu fatlaðra í Kópavogi eftir að málið komst upp.
FRIÐRIK SMÁRI
BJÖRGVINSSON
„Erlendar konur, konur með fötlun, konur með alvar-
legar geðraskanir og eldri konur eru taldar eiga frekar
á hættu að verða þolendur kynbundins ofbeldis en
aðrar konur.“ Svo segir í aðgerðaráætlun sem ríkis-
stjórnin samþykkti í september árið 2006 vegna
ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis og gildir
til ársins 2011.
Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunar-
fræðum við Háskóla Íslands, segir fatlað fólk berskjald-
aðra en þá sem heilbrigðir eru gagnvart margs konar
ofbeldi. Hún segir þau aðgreindu úrræði sem séu til staðar fyrir fatlað fólk
vera viss hættusvæði sem ofbeldismenn geti leitað í.
„Þessi umræða hefur ekki farið hátt,“ segir hún. „Þegar starfsmaður
beitir ofbeldi er það auðvitað áfall fyrir viðkomandi stofnun. Oft er við-
komandi þá bara látinn fara í rólegheitum, málið er ekki kært og hann fer
þá bara að vinna á næstu stofnun fyrir fatlað fólk. Þetta er ferli sem hefur
verið skilgreint í alþjóðlegum rannsóknum.“
➜ Ríkisstjórnin vildi rannsókn árið 2006
Árið 2008 var Sveinbjörn R. Auðunsson sakfelldur fyrir að hafa nauðgað
fatlaðri konu í bíl sínum. Í dómsorðinu segir að hann hafi notfært sér
ástand konunnar og að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum and-
legra annmarka og líkamlegrar fötlunar. Hann var dæmdur í tveggja ára
fangelsi, en konan sem hann nauðgaði var mikið fötluð og var hann með
hana í liðveislu þegar hann braut gegn henni. Hún var þá 17 ára gömul.
➜ Nauðgaði 17 ára skjólstæðing sínum
Innifalið er: Flug, flugvallarskattar, flutningur á golfsetti, gisting á Barcelo
Costa Ballena**** með hálfu fæði. Ótakmarkað golf í 7 daga + komudag,
golfkerrur og æfingaboltar.
Ferðtilhögun: Flogið út í beinu flugi frá Keflavík til Jerez (ca. 25 mín
akstur til Costa Ballena) að morgni 9. maí. Heimflug frá Sevilla með Easy
Jet kl. 10:25 þann 17. maí með millilendingu í London Gatwick. Þaðan er
svo flogið kl. 14.35 með Wow air til Íslands með lendingu kl. 16:35.
Hotel Barcelo Costa Ballena ****
Kr. 165.000
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í herbergi með hálfu fæði í 8 nætur.
Verð m.v. gistingu í einbýli kr. 185.000
Frá kr. 165.000
með hálfu fæði á mjög góðu 4 stjörnu hóteli
Síðust
u sæti
n í vor Golfferð til
Costa Ballena
á Spáni
9. maí í 8 nætur
Ályktunartillögur sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn
sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund. Tillögur til breytinga á sam-
þykktum er að finna á heimasíðu Stafa, stafir.is.
Stórhöfða 31 Δ 110 Reykjavík Δ sími 569 3000 Δ stafir@stafir.is
www.stafir.is
Stafir lífeyrissjóður boðar til ársfundar á Grand Hóteli Reykjavík
miðvikudaginn 22. maí 2013 kl. 17:00:
Dagskrá:
- Venjuleg ársfundarstörf
- Breytingar á samþykktum
Stjórn Stafa lífeyrissjóðs
Ársfundur
Stafa lífeyrissjóðs
Save the Children á Íslandi
HOLLAND, AP Vilhjálmur Alexander
var í gær krýndur konungur
Hollands eftir að móðir hans, Beat-
rix drottning, lét af völdum eftir 33
ár á valdastóli. Vilhjálmur, sem er 46
ára gamall, verður fyrsti konungur
Hollands í meira en 120 ár, og hinn
yngsti í Evrópu.
Vilhjálmur-Alexander er sagn-
fræðingur að mennt, elsti sonur
Beatrix og eiginmanns hennar,
Claus prins sem lést árið 2002, en
yngri bræður hans eru þeir Friso
og Constantijn. Eiginkona Vilhjálms
er hin argentínska Maxima, en þau
hjónin eiga saman þrjár dætur.
Við krýninguna þakkaði konung-
urinn móður sinni fyrir þjónustu
hennar við land og þjóð, en hún var
vel séð af þegnum sínum. Hann hét
því í ávarpi að verða nútímalegur
konungur, sameiningartákn þjóðar
sinnar og missa sig ekki í hefðum
og venjum tengdum stöðu sinni.
Margt fyrirmenna sótti krýninguna
í Amsterdam í gær. Þar á meðal má
nefna Karl Bretaprins og Viktoríu,
krónprinsessu Svíþjóðar. - þj
Hinn 46 ára Vilhjálmur Alexander var krýndur konungur Hollands í gær:
Fyrsti konungurinn í yfir 120 ár
SVER EMBÆTTISEIÐ Vilhjálmur Alex-
ander sór eið við stjórnarskrá lands-
ins þegar hann var krýndur konungur
Hollands. Drottningin Maxima stendur
við hlið hans. NORDICPHOTOS/AFP
EFNAHAGSMÁL ESA, eftirlitsstofnun
EFTA, hefur ákveðið að hefja form-
lega rannsókn á ívilnanalögum sem
Alþingi setti árið 2010. Lögin mið-
uðu að því að efla nýfjárfestingu á
Íslandi og heimiluðu meðal annars
beina ríkisstyrki til fyrirtækja og
skattaívilnanir í tíu ár.
ESA ber að hefja formlega rann-
sókn að lokinni frumathugun leiki
vafi á því að ríkisaðstoð sam-
ræmist EES-samningnum. Samið
hefur verið við sex fyrirtæki hér á
landi á grundvelli kerfisins. - kóp
Lög frá 2010 rannsökuð:
Ívilnanir undir
smásjá ESA
VEISTU SVARIÐ?