Fréttablaðið - 01.05.2013, Side 20
1. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| SKOÐUN | 20
AF NETINU
Viðkvæmir foringjar
Dálítið er það kyndugt hjá for-
ystumönnum í verkalýðshreyf-
ingunni að amast við því þótt
umhverfisverndarsinnar efni til
grænnar göngu á 1. maí.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir að leyfa eigi „okkur að
hafa þennan dag um málefni
launafólks“.
Gylfi er reyndar einn harðasti
stóriðjusinni á Íslandi.
Það er þó ekkert aðalatriði,
heldur hitt að löng hefð er fyrir
því að alls konar hópar taki þátt í
baráttugöngum 1. maí.
Femínistar hafa stundum verið
áberandi, samkynhneigðir ef
ég man rétt, Palestínuvinir,
anarkistar, og hér á á árum áður
meðlimir í byltingarsinnuðum
hópum á vinstri væng.
Með þessu er ekki gert lítið úr
mikilvægi verkalýðsbaráttunnar.
Ég nefni að lokum að í Kiljunni
annað kvöld, 1. maí, verðum
við með umfjöllun um kjör
verkafólks á árum áður. Það er
býsna fallegt innslag, þó ég segi
sjálfur frá.
http://www.eyjan.is/silfuregils
Egill Helgason
Litbrigði grámans
Þótt kjörsókn á Íslandi sé meiri
en víðast annars staðar er samt
alltaf nokkuð stór hópur sem
situr heima á kjördag eða skilar
auðu. Þeir eru auðvitað til sem
hafa bara engan áhuga á stjórn-
málum en mun oftar heyri ég
fólk skýra ákvörðun sína með
því að það sé bara ekkert í boði
sem það geti hugsað sér að kjósa.
Maður hefði kannski haldið að
þegar ellefu nýir valkostir koma
til greina ætti kjörsókn að aukast
en fleiri framboð virðast ekki
hafa þau áhrif.
Málið er að þegar fólk vill „eitt-
hvað nýtt“ í stjórnmálum á það
ekki við að það vilji geta valið
úr mörgum nýjum Framsóknar-
flokkum. Það vill ekki fleiri
litbrigði grámans heldur eitthvað
sem er allt öðruvísi.
http://www.pressan.is/evahauks
Eva Hauksdóttir
Flestir kannast við að fá ýmsar
upplýsingar um matvörur og fæðu-
bótarefni sem vísa til jákvæðra
áhrifa þeirra á líkamsstarfsemina.
Þessar upplýsingar geta komið
fram á umbúðum vörunnar, í aug-
lýsingum og/eða á dreifimiðum.
Það getur skipt máli að umrædd-
ar upplýsingar eru ekki að koma
frá hlutlausum aðilum og því mik-
ilvægt að regluverk varðandi upp-
lýsingamiðlun til neytenda tryggi
að þeir séu ekki blekktir.
Það er til að mynda réttur neyt-
enda að fá upplýsingar um inni-
hald matvara samkvæmt lögum
en þess utan merkja stundum mat-
vælaframleiðendur vörur sínar
með upplýsingum sem ekki er
skylt að gera. Slík merking gæti
verið „fullyrðing“ sem er skil-
greind sem sérhver boðskapur eða
framsetning sem gefur til kynna
einhverja tiltekna eiginleika mat-
vörunnar. Dæmi: Varan er trefja-
rík.
Þegar fullyrðing er notuð við
markaðssetningu matvara er
algengt að verið sé að vísa til þess
að matvaran eða innihaldsefni í
vörunni hafi jákvæð áhrif á lík-
amsstarfsemina. Fullyrðingum er
þó skipt í tvo flokka, annars vegar
næringarfullyrðingar og hins vegar
heilsufullyrðingar. Reglugerð
Evrópusambandsins um næringar-
og heilsufullyrðingar fyrir matvæli
var innleidd á Íslandi árið 2010 með
reglugerð nr. 406/2010 og tekur hún
til þeirra þátta sem lúta að markaðs-
setningu matvara þegar fullyrðing
er notuð.
Næringarfullyrðingar
Ef fram kemur á umbúðum matvöru
að hún hafi jákvæða næringarlega
eiginleika þá telst það næringarfull-
yrðing. Slík fullyrðing er til dæmis
notuð þegar búið er að minnka eða
fjarlægja næringarefni sem ekki
eru talin æskileg í miklu magni. Má
þar nefna mettaða fitu eða viðbætt-
an sykur. Einnig er hægt að nota
næringarfullyrðingar þegar vakin
er athygli á því að matvara innihaldi
mikið magn af t.d. vítamínum, stein-
efnum, próteinum og/eða trefjum.
Til þess að mega nota næringar-
fullyrðingar þá þarf umrædd vara
að uppfylla ákveðin skilyrði. Dæmi:
ef vara er merkt sem „sykur skert“
þá þarf skerðingin á sykurmagninu
að vera 30% miðað við sambærilega
vöru.
Heilsufullyrðingar
Ef fullyrt er, látið að því liggja eða
gefið í skyn að tengsl séu milli heil-
brigðis og ákveðinnar matvöru eða
eins af innihaldsefnum hennar þá
telst það heilsufullyrðing. Dæmi:
„Varan X er góð fyrir æðakerfið“ og
„efni Y og Z styrkja varnir líkam-
ans og draga úr blóðsykursveiflum“.
Hins vegar er óheimilt samkvæmt
matvælalögum að eigna matvælum
þá eiginleika að fyrirbyggja eða
vinna á sjúkdómum manna, hafa
lækningarmátt eða vísa til þess
háttar eiginleika. Dæmi um ólög-
lega fullyrðingu: „Efnið C vernd-
ar gegn krabbameini“. Það telst þó
í lagi að fjalla um hvernig draga
megi úr sjúkdómsáhættu ef næg
vísindaleg gögn eru fyrir hendi.
Dæmi um mögulega leyfilega full-
yrðingu: „Efnið C dregur úr líkun-
um á krabbameini“.
Til að tryggja sannleiksgildi
heilsufullyrðingar þarf að sækja um
leyfi fyrir notkun hennar til Evr-
ópusambandsins og leggja fram vís-
indaleg gögn sem styðja það. Í full-
yrðingaskrá Evrópusambandsins
http://ec.europa.eu/nuhclaims/ má
finna lista yfir leyfilegar fullyrð-
ingar og jafnframt þeim sem hefur
verið hafnað. Þess utan má nefna
að það er ólöglegt að nota meðmæli
einstakra lækna eða fagfólks í heil-
brigðisþjónustu við markaðssetn-
ingu vara. Einnig eru fullyrðingar
óleyfilegar sem vísa til meðmæla
frá öðrum samtökum en landssam-
tökum lækna, næringarfræðinga
og næringarráðgjafa og góðgerðar-
samtaka á heilbrigðissviði.
Frá 14. desember 2012 hefur verið
óheimilt að markaðssetja matvæli
á Íslandi með heilsufullyrðingum
sem búið er að hafna af Evrópusam-
bandinu. Við markaðssetningu mat-
væla og fæðubótarefna má einungis
fullyrða um jákvæða heilsufars-
lega eiginleika vörunnar svo fram-
arlega sem traust vísindaleg gögn
styðja það. Matvælaöryggisstofnun
Evrópu er eini aðilinn sem má meta
hvort vísindaleg gögn fyrir hverja
heilsufarsfullyrðingu séu full-
nægjandi. Óleyfilegar fullyrðingar
er hægt að tilkynna til heilbrigðis-
eftirlits sveitarfélaganna og/eða
Matvælastofnunar.
Markaðssetning á matvöru má ekki blekkja
NEYTENDAMÁL
Katrín
Guðjónsdóttir
Jóhanna E.
Torfadóttir
sérfræðingar hjá Matvælastofnun
➜ Til að tryggja sannleiks-
gildi heilsufullyrðingar
þarf að sækja um leyfi fyrir
notkun hennar til Evrópu-
sambandsins og leggja fram
vísindaleg gögn sem styðja
það.
Svo lengi lærir sem lifir:
nú er það spegluð kennsla
sem bættist í hugtakasafn-
ið, flipped classroom upp
á ensku, eftir lestur grein-
ar Hjálmars Árnasonar í
Fréttablaðinu 3. apríl sl.
En ekkert er nýtt undir
sólinni. Ég fæ ekki betur
séð en röksemdir hans með
þessu vinnuferli eigi prýði-
lega við það fjarnám sem
ég þekki best, í Fjölbrauta-
skólanum við Ármúla og
í Verzlunarskólanum. „Þitt nám
þegar þér hentar“ var auglýst og
„þitt nám á þínum hraða“.
Góðir fjarkennarar eiga frábært
námsumhverfi á neti og nota marg-
víslega gagnvirka miðla
til þess að hafa samband
við fjarnemendur. Þeir
fjalla um efnið frá ýmsum
sjónarhornum, svara ótal
spurningum og safna í
sarpinn. Fjarnemendur
geta t.d. horft og hlust-
að á kennara sinn reikna
sama dæmið eins oft og
þeir þurfa til þess að skilja
og ef það dugir ekki senda
þeir fyrirspurn og fá svar.
Stundum eru staðbundnar
lotur þar sem nemendur geta farið
í saumana á einstökum úrlausn-
arefnum með kennara sínum. Því
er enn við að bæta, að flestir fjar-
námskennarar kenna námsefni sitt
líka í kennslustofu og opna þá fjar-
námsumhverfi sitt fyrir dagskóla-
nemendum sem þannig geta nálg-
ast efnið heiman frá sér – í fylgd
með foreldrum ef þeir hafa áhuga.
Allt eykur þetta virkni nemenda,
færri falla fyrir vikið, og fleiri
geta stundað nám. Það voru hrapal-
leg mistök að skerða fjarnám um
helming í kjölfar hruns.
Brottfallsumræða er allt önnur
Ella. Brottfall stafar hér einkum
af því að námsframboð framhalds-
skóla er allt of bókmiðað og dulda
námskráin stýrir alltof mörgum
í bóknám sem þangað eiga ekki
erindi. Stjórnmálamenn staglast
á því að efla þurfi starfs- og verk-
nám, en ekkert gerist þótt þeir setj-
ist í valdastóla. Nýir skólar í Mos-
fellsbæ, Borgarnesi, Grundarfirði
og í Fjallabyggð eru allir bóknáms-
miðaðir. Ekki var pólitískur vilji
til þess að stofna Listmenntaskóla
Íslands sem bráðvantar til þess að
bæta úr brýnni þörf – t.d. ef menn
vilja minnka brottfall og efla verk-
nám.
Flippað fjarnám?
MENNTUN
Sölvi
Sveinsson
skólastjóri
Landakotsskóla
➜ Fjarnemendur geta t.d.
horft og hlustað á kennara
sinn reikna sama dæmið
eins oft og þeir þurfa til þess
að skilja og ef það dugir
ekki senda þeir fyrirspurn
og fá svar.
2100
POTTURINN STEFNIR Í
Fyrsti vinningur stefnir í 120 milljónir og Ofurpotturinn stefnir í 1.980 milljónir.
Ekki gleyma að vera með, fáðu þér miða fyrir klukkan fjögur í dag á
næsta sölustað eða á lotto.is
120.000.000
+1.980.000.000
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM!
MIÐINN GILDIR 1. MAÍ 2013A. 12 14 17 21 41 48
B. 05 16 23 36 37 38
C. 07 09 13 22 34 38
D. 03 06 19 24 25 31
E. 11 19 21 25 38 42
F. 01 25 35 36 39 46
G. 18 19 20 23 28 46
H. 22 27 29 39 40 42
82310000183296
SUMAROPNUN, SÖLU LÝKUR KL. 16