Fréttablaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 23
FUGLAR OG BLÓM
Spennandi dagskrá verður í Grasagarðinum í vikunni.
Á fimmtudaginn kl. 20 verður fjallað um aðferðir og
vandamál við ræktun. Á sunnudag kl. 11 verður fjöl-
skrúðugt fuglalíf skoðað á göngu um garðinn.
Sjá nánar á www.grasagardur.is.
NOTALEGT
Það getur verið frábært
að slappa af í sund-
laugargarðinum.
Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er
verndaður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn
í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan.
Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi
hvert sem litið er og setur borgina á stall
með fallegri borgum Evrópu.
Verð í tveggja manna herbergi
kr. 94.900,-
Innifalið: Flug, skattar, hótel með morgunmat,
íslensk fararstjórn og rúta til og frá flugvelli.
Trans Atlantic sérhæfir sig í ferðum til Eystrasaltslanda.
Upplýsingar í síma 588 8900
Úrval veitingahúsa, verslana (m.a. H&M)
og kaffihúsa.
Næturlíf eins og það gerist best.
Riga
Lettlandi
Stórfengleg borg
Beint flug frá Keflavík og Akureyri
26.-29. október
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
Daði Guðjónsson hjá Úrval Útsýn segir að eftir hrunið hafi orðið mikil breyting í þessa veru og
undir það tekur Tómas Gestsson hjá
Heimsferðum. Báðir telja að rúmlega
30% Íslendinga velji ferðir þar sem allt er
innifalið en síðan eru margir sem kjósa að
hafa hálft fæði. „Það var ekkert um þetta
fyrir hrun en jókst með falli krónunnar.
Sérstaklega er það fjölskyldufólk sem
velur að kaupa allt innifalið,“ segir Daði.
„Það getur verið þægilegt fyrir fjölskyldur
að vita fyrir fram hvað ferðin mun kosta
og þetta borgar sig örugglega fyrir hjón
með börn eða unglinga,“ bætir hann við.
„Börnin suða um ís og drykki og þá getur
verið notalegt að hafa allt innifalið í stað
þess að taka stöðugt upp veskið.“
MISJAFN MATUR
Bæði Daði og Tómas eru sammála um
að þessi valkostur sé örlítið að ganga til
baka, sérstaklega þegar pör eiga í hlut.
„Það er gaman að fara út að borða og
skoða mannlífið í leiðinni.“ Sömuleiðis
eru þeir sammála um að fæðið á þeim
hótelum sem eru með allt innifalið sé afar
mismunandi, það fari eftir gæðum hótela.
Þegar keypt er hálft fæði er oft hægt að fá
það í hádeginu og fara síðan út að borða
á kvöldin. „Mér finnst vera að aukast aftur
að fólk velji íbúðir,“ segir Tómas. „Ef fólk
dvelur í langan tíma verður það leitt á
hótelfæðinu. Hins vegar hafa styttri ferðir
aukist til muna eftir hrun. Á jaðartímum,
vorin og haustin, er ódýrara að lifa á Spáni
og þá er ekki mikill munur á því að vera í
íbúð eða á hóteli með öllu inniföldu.“
ERU BARA Í HÓTELGARÐINUM
Trausti Hafsteinsson, fararstjóri á Te-
nerife, segir að tilhneiging þeirra sem
kaupa ferð með öllu sé að fara lítið út
fyrir hótelgarðinn. „Það er ekki mjög snið-
ugt fyrir atvinnurekstur á svæðinu. Ég
hef heyrt óánægjuraddir veitingamanna
með þetta og séð með eigin augum að
viðskiptin á veitingastöðum hafa minnkað
talsvert eftir að hótelin fóru að bjóða
þessa þjónustu. Við fararstjórar höfum
bæði hitt fólk sem fer ekki út af hótelinu
af ótta við að missa af einhverju sem það
hefur borgað fyrir og svo hina sem hafa
keypt allt innifalið en fara engu að síður
líka út að borða.“
ÓÁNÆGJA
Tómas segir að Spánverjar séu yfirleitt
óánægðir með þetta fyrirkomulag, enda
hefur veitingahúsum fækkað á sólar-
ströndum. „Þetta „All inclusive“ varð
fyrst til á eyjum í Karíbahafi en þá voru
hótelin oft langt frá veitingastöðum. Síðan
tóku Tyrkir þetta upp til að auka ferða-
MEÐ ALLT INNIFALIÐ
Á SÓLARSTRÖND
SPARNAÐUR? Mjög hefur aukist að ferðamenn kaupi sólarferðir þar sem allt
er innifalið í verðinu, jafnt matur sem drykkur. Um leið hefur veitingahúsa-
rekstur á sólarströndum farið halloka í samkeppni við hótelin.
FÆKKUN
Samfara því að
hótel á sólar-
ströndum bjóða
allt innifalið hefur
veitingahúsum
fækkað til muna.
Sumir gestir fara
aldrei út fyrir hótel-
garðinn.
MYND/GETTY