Fréttablaðið - 01.05.2013, Page 24

Fréttablaðið - 01.05.2013, Page 24
FÓLK| 3. - 17. maí 7. – 21. júní Sími 512 8040 3. - 17. maí 7. – 21. júní Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Blaðberinn bíður þín Save the Children á Íslandi FERÐIR mannastraum með ágætum árangri þannig að Grikkir og Egyptar voru eigin- lega nauðbeygðir til að gera slíkt hið sama og síðan Spánverjar og Portúgalar.“ Blaðamaður hjá netmiðli Expressen fjallaði nýlega um ferðir sem þessar og hafði þá fundið út að það gæti verið þægilegt, sérstaklega þegar börn eru með í ferðinni, að vera með allt innifalið en alls ekki alltaf ódýrara. Í Svíþjóð eru um 20% allra sólarferða sem bjóðast með allt innifalið í verðinu; gistingu, mat og drykk. Sömuleiðis hefur „allt innifalið“ verið fyrsti kostur Breta sem fara í sólarferðir. Þegar allt er innifalið þýðir það að borgað hefur verið fyrir morgunmat, hlaðborð í hádegi og að kvöldi auk drykkja frá því landi sem dvalið er í. Veitingamenn sem hafa komið upp veitingahúsum nálægt hótelunum eru hins vegar ekkert sérstaklega ánægðir með þetta fyrirkomulag. Ferðamenn sem þegar hafa borgað fyrir mat og drykk láta ekki sjá sig á veitingahúsunum. Þeir eru ófúsir að borga meira en þeir hafa þegar greitt. GRIKKLAND ÓDÝRAST Eftir því sem sænski blaðamaðurinn skrifar er „All inclusive“ ódýrast í Grikklandi en þar er þó sjaldgæft að hótel bjóði upp á slíkt. „Maður þarf að innbyrða mikinn mat, drekka minnst eina flösku af léttvíni og fjóra bjóra daglega til að ná upp í verðið sem greitt er fyrir ferðina til Spánar.“ Oftast er ódýrast að kaupa „allt inni- falið“ á ódýrari hótelum en þá þarf maður að vera meðvitaður um að úrvalið á hlað- borðinu er minna og ferskleikinn sömu- leiðis. ■ elin@365.is SÓLARSTRÖND Fjölskyldur geta sparað með því að kaupa sólar- ferð með öllu inniföldu. Tilhneigingin er þó sú að fólk sem hefur fjárfest í slíkri ferð fer minna út fyrir hótelgarðinn með viðeigandi tapi fyrir veit- ingahúsin. Fyrir nokkru hófst vinna við að hnitsetja örnefni í Þingeyjarsýslu. Markmið verkefnisins er að forða menningarverðmætum frá glötun og færa þau yfir á varanlegt form sem meðal annars mun nýtast til nýsköp- unar í ferðaþjónustu. Verkefnið hlaut nýlega tveggja milljóna króna styrk frá Vaxtarsamningi Norðausturlands. Það eru regnhlífarsamtökin Urðarbrunnur sem standa að verkefninu en samstarfs- aðilar þeirra eru Landmælingar Íslands, Stofnun Árna Magnússonar og Ferða- málasamtök Þingeyjarsveitar. Baldur Daníelsson, verkefnastjóri hjá Urðar- brunni, segir að í fyrstu verði byrjað í Þingeyjarsveit og Mývatnssveit og síðan haldið áfram í allri Þingeyjarsýslu. „Við erum með þessari vinnu að bjarga miklum menningarverðmætum frá glötun. Fólki sem þekkir staðsetn- ingu örnefnanna og notagildi þeirra fækkar ört með árunum. Því er um að ræða kapphlaup við tímann. Vinna okkar mun meðal annars gera aðilum í ferðaþjónustunni kleift að auka fjöl- breytni þjónustu sinnar, til dæmis í tengslum við menningartengda ferða- þjónustu á svæðinu en hún verður stöðugt vinsælli með árunum.“ Afrakstur verkefnisins verður hægt að nálgast á vefnum, með smáforriti (appi) í símum og spjaldtölvum og á hefðbundnum kortagrunni. „Afrakstur verkefnisins verður væntanlega sýni- legur á vef Landmælinga að einhverju leyti síðar á árinu. Síðan fer vonandi í gang vinna sem miðar að því að gögnin verði sem flestum aðgengileg og á sem fjölbreyttastan hátt, til dæmis með útgáfu á örnefnakortum og göngu- kortum.“ Umrætt verkefni snýr þó ekki eingöngu að ferðatengdri þjónustu að sögn Baldurs heldur á það sér einnig samfélagslega skírskotun. „Hér um slóðir er mikið af eldra fólki sem býr yfir verðmætum fróðleik og þekkingu á staðháttum sem mun nýtast í þessu verkefni. Um leið kynnist eldra fólkið nýrri tækni sem hvetur það vonandi um leið til að tileinka sér fleiri tækni- nýjungar. Þá hafa nemendur á Laugum fengið fræðslu um örnefni og hnit- setningu með gps. Stefnt er að því að ungir og aldnir vinni að þessu verkefni saman.“ ■ starri@365.is ÖRNEFNI VARÐVEITT VARÐVEISLA Mikil menningarverðmæti eru fólgin í þekkingu eldra fólks á örnefnum. Nú er hafin vinna við að hnitsetja örnefni í Þingeyjarsýslu. GOÐAFOSS Mörg örnefni sem tengjast sögu lands og þjóðar eru við Goðafoss. MYND/VILHELM FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir ÞEKKING „Fólki sem þekkir staðsetningu ör- nefnanna og nota- gildi þeirra fækkar ört með árunum.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.