Fréttablaðið - 01.05.2013, Qupperneq 25
| FÓLK | 3FERÐIR
Nemendur úr hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskólans hreinsa út úr fataskápum sínum
á líflegum fatamarkaði nú eftir hádegið.
Nokkrir munu líka selja eigin hönnun.
Krista Hall, nemandi í grafískri hönnun,
stendur fyrir uppákomunni og segir
margar gersemar verða til sölu.
„Við erum að selja vintage-föt og
merkjavörur en þetta eru allt miklar
merkjamanneskjur sem taka þátt. Margar
stelpnanna úr fatahönnun voru líka að
vinna á tískuvikunni í París í vor og gætu
átt ýmislegt girnilegt að selja. Svo veit
ég að Óskar Hallgrímsson ætlar að selja
eigin hönnun,“ segir Krista, sem sjálf er
þaulvön fatamarkaðsmanneskja og hefur
hrærst í vintage-heiminum lengi.
„Það eru alltaf ör skipti í fataskápnum
hjá mér. Ég bý í lítilli íbúð og þarf að
selja úr skápunum reglulega til að allt
komist þar fyrir,“ segir hún hlæjandi.
„Það er líka alltaf svo gaman að sjá fötin
sín öðlast annað líf, sjá þau kannski
á einhverjum öðrum á barnum þegar
maður fer út.“
SELJA ÚR SKÁPUNUM
GÓÐ KAUP Fatamarkaður verður haldinn í dag kl. 14 í Þverholti 11.
„Ekkert er fegurra en vorkvöld í Reykjavík og yndislegt fyrir fljóðin
að bregða sér á sprundasprang í vorbirtu kvöldsins á Laugavegi,“
segir Kristín Einarsdóttir, kaupkona í Sigurboganum og einn upp-
hafsmanna heillandi hátíðar sem
hefst á Laugaveginum þegar
kvöldar á morgun.
„Við tókum okkur saman,
tíu kaupmenn á Laugavegi, frá
Snorrabraut niður að Frakkastíg,
og ákváðum að búa til gleðina
Lokkandi Laugaveg fyrir dömur
sem hafa yndi af búðarápi og
huggulegheitum. Þá er tilvalið
tækifæri fyrir mæðgur, systur,
vinkonur og frænkur að brjóta
upp hversdagsleikann, skjóta
sig saman og skunda í bæinn
til að þiggja góðar veitingar, sjá
það nýjasta á markaðnum, gera
góð kaup og hafa svolítið gaman
saman,“ segir Kristín um aðal-
verslunargötu miðbæjarins sem
sannarlega lokkar og laðar.
„Mjór er mikils vísir og við
höfum hug á að stækka Lokk-
andi Laugaveg þegar fram líða
stundir. Í verslunum munu óma
íslenskir tónar, þar verða hlýjar
móttökur og freistandi tilboð og veitingahúsin eru öll opin á þessum
tíma. Fyrir dömur sem hafa sjaldan tíma til að hittast er því töfrandi
að tölta á milli búða á Laugaveginum og láta eins og þær séu í út-
löndum,“ segir Kristín og hlær dillandi hlátri.
Lokkandi Laugavegur tekur völdin frá klukkan 17 til 21 annað
kvöld. Dömulegar búðir sem opnar verða fram eftir kvöldi eru, auk
Sigurbogans, Bernharð Laxdal, Kjólar & konfekt, Púkó & smart,
Lífstykkjabúðin, Stíll, 38 þrep, Couture og Freebird.
SPRUNDASPRANG UM
LOKKANDI LAUGAVEG
Heillandi hátíð verður á Laugaveginum á morgun.
TÖFRANDI VORKVÖLD Kristín Einars-
dóttir í Sigurboganum segir dömur á
öllum aldri geta gert góð kaup og haft
það verulega huggulegt á dömukvöldi á
Laugaveginum á morgun.
MARKAÐUR
Markaðurinn verður
opnaður klukkan
14 og stendur til 18.
Ekki verður posi á
staðnum en stutt er
í hraðbanka í ná-
grenninu.
MARKAÐUR Krista Hall og
félagar úr Listaháskólanum selja
fötin sín í dag milli klukkan 14
og 18 í kjallaranum í Þverholti 11.
MYND/PJETUR