Fréttablaðið - 01.05.2013, Síða 34

Fréttablaðið - 01.05.2013, Síða 34
1. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 30 Rósa syngur Monk er samstarfs- verkefni Rósu Sveinsdóttur söngkonu og Sigmars Matthías- sonar bassaleikara, en þau útskrifuðust bæði frá djassdeild Tónlistarskóla FÍH vorið 2012. Á tónleikum Jazzklúbbsins Múlans á Munnhörpunni í Hörpu á mið- vikudaginn, 2. maí, gefst áheyr- endum kostur á að hlýða á þau Rósu og Sigmar flytja lög eftir Thelonious Monk. Tilefnið er að um þessar mundir eru 25 ár síðan plata söngkonunnar Carmen McRae, „Carmen Sings Monk“, kom út. Þessi einstæða djasssöngs- plata inniheldur, eins og nafnið gefur til kynna, lög Monks með textum söngvarans og Íslands- vinarins Jons Hendricks. Auk þeirra Rósu og Sigmars koma fram saxófónleikarinn Jóel Páls- son, Kjartan Valdemarsson, sem leikur á píanó, og trommuleikar- inn Scott McLemore. Rósa syngur Monk FLYTJA MONKLÖG Rósa Sveins dóttir söngkona og Sigmar Matthíasson bassaleikari flytja lög eftir Thelonious Monk í Munnhörpunni. „Ég er á förum til Greifswald í Þýskalandi, ásamt hljómsveit, til að koma fram við opnun menningar há- tíðarinnar Nordischer Klang á föstu- daginn,“ segir Anna María Björns- dóttir söngkona kát. „Hljómsveitin samanstendur af Hilmari Jenssyni á gítar, Tómasi Jónssyni á hljómborð, Valdimar Olgeirssyni á bassa, Ósk- ari Kjartanssyni á trommur og hinni dönsku Josefine Opsahl sem spilar á selló. Ég sem tónlistina en við höfum útsett tónlistina mikið til saman.“ Fyrsta sólóplata Önnu Maríu, Sakn- að fornaldar, sem kom út í lok síðasta árs er nú komin í sölu í Þýskalandi og hefur fengið frábæra dóma. Glitter- house Records, gefur henni fjórar og hálfa stjörnu og segir: „Anna María notar alla röddina þegar hún syngur og röddin er töfrandi, svöl, glæsileg, kristaltær, kraftmikil og há – ótrú- leg rödd. Ljóðin setur hún saman við algjörlega tímalausa tónlist.“ Og Musik reviews.de segir: „Rómantískt þjóðlagarokk. Sjaldgæft að lista- maður leggi svona mikla áherslu á tengslin milli ljóða og tónlistar. Rödd- in er kristaltær og heillandi. Plötuna ætti að kenna í skólum á Íslandi.“ Hugmyndina að lögunum á plöt- unni fékk Anna María þegar hún var að grúska í gömlum íslenskum ljóðabókum sem hún erfði frá ömmu sinni og afa og hún samdi líka lög við tvö ljóð eftir ungskáldið Sölva Björn Sigurðsson. Anna María býr og starfar í Kaup- mannahöfn. Þar kemur hún fram með norrænu spunasönghljómsveit- inni IKI sem hefur komið tvisvar til Íslands. Hún hlakkar til að fara í heimsókn til Greifswald. Þar segir hún marga skilja íslensku enda sé íslenska kennd við háskólann þar. - gun Syngur við opnun menningarhátíðar í Þýskalandi Söngkonan Anna María Björnsdóttir verður með tónleika á opnunarkvöldi menningarhátíðarinnar Nordischer Klang í Greifswald. ANNA MARÍA Hefur fengið frábæra dóma í Þýskalandi fyrir diskinn sinn Saknað fornaldar. Nú ætlar hún að syngja fyrir Þjóðverja í eigin persónu við undir- leik hljómsveitar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Rósa Sigrún Jónsdóttir mynd- listarkona opnar sýningu í SÍM salnum í Hafnarstræti 16 á morgun, 2. maí. Þar eru verk unnin í ýmsa miðla; málverk, teikningar, textíl og skúlptúrar sem eiga rætur sínar í áralangri útivist og fjallgöngum Rósu Sigrúnar. Verkin eru byggð á gagna söfnun sem fram hefur farið í ferðum um Esjuna á undan förnum árum því Rósa skráir ferðir sínar með ýmsum hætti, tekur myndir, skrifar texta, telur stigin spor með skrefamæli, skráir ferla og safnar sýnishornum. Þessar upp- lýsingar notar hún til að skapa nýja mynd af Esjunni, bæjarfjalli Reykvíkinga. „Tilfinningar mínar til fjallsins seytla út í gegnum fæturna á göngunni og í gegnum hendurnar þegar heim á vinnu- stofuna er komið,“ segir lista- konan. Sýningin er opin virka daga milli 10 og 16 og stendur út maí- mánuð. - gun Andlit Esju Frábært úrval afþreyingar, ferskar fréttir, fjölbreytt efnisval, myndrænt viðmót og færri flettingar. Þess vegna var visir.is kosinn besti frétta- og afþreyingarvefur ársins á Íslensku vefverðlaununum 2012. Minna að fletta meira að frétta Færri flettingar Ferskar fréttir Fjölbreytt efnisval Myndrænt og notendavænt viðmót Áberandi auglýsingar, réttar staðsetningar Skemmtiefni og afþreying F ÍT O N / S ÍA BESTI FRÉTTA- OG AFÞREYINGARVEFURINN Úr umsögn dómnefndar: „Vefurinn býður upp á margskonar afþreyingu auk gífurlegs úrvals frétta. Vefurinn er léttur og skemmtilegur auk þess sem einfalt og fljótlegt er að finna það efni sem leitað er að.“

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.