Fréttablaðið - 01.05.2013, Page 35
MIÐVIKUDAGUR 1. maí 2013 | MENNING | 31
Grande eftir Tyrfing Tyrfingsson hefur verið sett í
sýningar á ný og er nú komið í Tjarnarbíó. Grande segir
sögu af móður og syni í Hlíðunum. Hún hefur brennt
allar brýr að baki sér og syni hennar en þessa dagana
æfa þau draggsýningu með laginu I know him so well
með Susan Boyle og Elaine Page. Atriðið er gert fyrir
fimmtudagsafmæli fyrrverandi félaga hennar, í von
um að endurvekja forna frægð. En í miðju æfinga-
ferlinu ákveður sonurinn að flytja út.
Með hlutverk sonarins fer Hjörtur Jóhann
Jónsson en tónlist er í höndum Steinþórs
Helga Sunde. Tyrfingur er einnig leikstjóri
verksins. Sýnt verður 3., 5., 10. og 11. maí.
Aukasýningar á Grande
Verk um móður og son í Hlíðunum á fj alirnar á ný.
TYRFINGUR TYRFINGSSON Leikstjóri og höfundur
Grande sem hefur verið sett í sýningar á ný.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
MIÐVIKUDAGUR
1. MAÍ 2013
Tónleikar
16.00 Vortónleikar Kammerkórs Mos-
fellsbæjar verða haldnir í Háteigskirkju.
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna leikur
með kórnum og kórstjóri er Símon H.
Ívarsson.
20.30 Tónelskir læknar koma fram á
Café Rósenberg. Helgi Júlíus Óskars-
son er kynnir. Meðal þeirra sem koma
fram eru Eyjólfur Guðmundsson, Sigrún
Hjartardóttir og hljómsveit Þórólfs
Guðnasonar.
21.00 Hljómsveitin „Rósa syngur
Monk“ kemur fram á tónleikum Múlans
á Munnhörpunni í Hörpu.
21.00 Hljómsveitin Moses Hightower
leikur á Græna hattinum. Nini Wilson,
betur þekktur sem Árni Vilhjálms úr
FM Belfast, hitar upp.
Umræður
17.00 Sara Reil ræðir um strætislistir
og áhrifavalda innan hennar í Listasafni
Árnesinga. Umræðurnar
eru einkum ætlaðar
unglingum og áhugafólki
um strætislist og graffítí.
Aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um
viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Björn Thoroddsen mun, ásamt tríói sínu
og Andreu Gylfadóttur, halda tónleika í
Salnum sunnudaginn 5. maí klukkan 17
sem bera yfirskriftina Ó, blessuð vertu
sumarsól. Þar hljóma lög af diskunum
Vorvindar, Vorvísur og Heiðanna ró,
sem komu út með sömu flytjendum á
árunum 2006 til 2009. Þetta eru sönglög
frá síðustu öld sem endurspegla hinn
sanna íslenska anda og eru yfirfull af
vor-, sumar- og sveitarómantík; lög eins
og Vorvindar glaðir, Fram í heiðanna
ró, Kvöldið er fagurt, Hlíðin mín fríða
og fleiri. Allt lög sem hafa fest sig í
sessi hér á landi. - gun
Sönglög frá síðustu öld
Tríó Björns Thor ásamt Andreu Gylfa heldur tónleika í Salnum á sunnudaginn.
FLYTJENDURNIR
Flytja lög full af
vor-, sumar- og
sveitarómantík .
Ása Baldursdóttir hefur verið
ráðin sem dagskrárstjóri í Bíói
Paradís, Hverfisgötu 54 í Reykja-
vík, og tekur
við af Ásgrími
Sverrissyni.
Markmið
Bíós Paradísar
er að sýna
áhugaverðar
kvikmyndir frá
öllum heims-
hornum og
íslenskar kvik-
myndir af öllum
gerðum. Reglu-
legar sýningar á perlum kvik-
myndanna fyrir börn og ung-
linga fara fram í húsinu til að
efla menntun og þekkingu á list-
greininni.
Ása hefur fjölbreytta náms- og
starfsreynslu, hefur lært list-
ræna ljósmyndun, sagnfræði, list-
fræði, blaða- og fréttamennsku
og hagnýta menningarmiðlun og
unnið við dagskrárumsjón hjá
RIFF og Mánudagsbíó Háskóla
Íslands, svo nokkuð sé nefnt.
- gun
Tekur við
stjórn í Bíói
Paradís
ÁSA
BALDURSDÓTTIR
Við bjóðum 20%
afslátt á Nýdanska
Við bjóðum
góða þjónustu
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Viðskiptavinir Íslandsbanka fá 20% afslátt á tónleikana Fram á nótt með
hljómsveitinni Nýdanskri.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
7
6
4
6
Nýdönsk
Eldborg, Hörpu
21. september kl. 20
Hofi Akureyri
28. september kl. 20
Misstu ekki af einstakri upplifun þar sem Nýdönsk mun taka öll sín vinsælustu lög sem
hafa tekið sér bólfestu í hjörtum fjölmargra aðdáenda sveitarinnar.
Skemmtu þér Fram á nótt með Nýdanskri!
Forsala fyrir viðskiptavini Íslandsbanka hefst þriðjudaginn 30. apríl
en almenn miðsala 2. maí.
Viðskiptavinir á póstlista Vildarklúbbsins hafa fengið afsláttarkóða í tölvupósti en til að nýta sér tilboðið er einnig
hægt að nálgast afsláttarkóða hjá Þjónustuveri bankans í síma 440-4000 eða í næsta útibúi Íslandsbanka.