Fréttablaðið - 01.05.2013, Side 36
1. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 32
Dimma og Sólstafir verða með
sameiginlega tónleika í Austur-
bæ á fimmtudag. Dimma gaf út
plötuna Myrkraverk á síðasta ári
sem hlaut fínar viðtökur. Fjögur
lög af henni hafa komist á vin-
sældar lista Rásar 2.
Undanfarið hefur Dimma verið á
tónleikaferð um landið ásamt Sól-
stöfum og hápunkturinn á þeirri
ferð eru tónleikarnir í Austurbæ.
Dimma mun flytja Myrkraverk í
heild sinni, ásamt eldri lögum, og
Sólstafir munu m.a. leika efni af
plötunni Svartir sandar sem fengið
hefur góða dóma víða um heim.
Sólstafir voru einmitt að senda
frá sér nýtt tónleikamyndband
við lagið Æra þar sem upptökur
frá áhorfendum spila stórt hlut-
verk. Áhorfendur voru beðnir um
að taka upp myndskeið á síma og
senda inn, sem skilaði sér í líf-
legu myndefni. „Nú er annar hver
maður með myndbandsupptökuvél
í vasanum og okkur fannst til valið
að nýta okkur það,“ segir Sæþór
Maríus, gítarleikari Sólstafa, sem
lofar flottum tónleikum. „Flest
okkar lög eru í lengri kantinum og
það er sjaldan sem við höfum tæki-
færi til að spila mörg þeirra á tón-
leikum, en það ætlum við að gera
í Austurbæ. Þetta verður allur
pakkinn.“
Ekkert aldurstakmark er á tón-
leikana sem hefjast kl. 20. - fb
Hápunktur
hjá þungarokkurum
Dimma og Sólstafi r halda sameiginlega tónleika í
Austurbæ á fi mmtudag.
DIMMA Sólstafir og Dimma spila í Austurbæ á fimmtudagskvöld.
Sjötta og líkast til síðasta myndin
í Die Hard-hasarmyndaröðinni
hefur fengið nafnið Die Hardest.
Handritshöfundurinn Ben Tre-
bilcook er byrjaður að vinna við
myndina eftir að hafa átt fund
með Larry D. Webster, ráðgjafa við
framleiðslu Die Hard 5, sem hét
reyndar A Good Day To Die Hard.
Hún kom út síðasta sumar og fékk
misjafnar viðtökur. Sumum þótti
hún hin prýðilegasta hasarmynd
en öðrum þótti þrettándinn orðinn
heldur þunnur.
Í viðtali við Total Film sagði
Trebilcook Die Hardest eiga að
hefjast í New York en gerast svo
að mestu leyti í Tókýó. „Hand ritið
er mjög trútt myndaröðinni og
persónunum og söguþráðurinn er
líka mjög raunsær,“ sagði hann við
Total Film.
Þrátt fyrir að handritið sé í
vinnslu er ekki öruggt að myndin
verði gerð. „Það var gott að fá
stuðning Larrys en það þarf enn
að yfirstíga nokkrar hindranir.
Tvær þeirra heita Bruce Willis
[sem leikur aðalpersónuna John
McClane] og Alex Young [fram-
leiðandi A Good Day To Die Hard].“
Áður en A Good Day To Die
Hard kom út lét Bruce Willis hafa
eftir sér í viðtali við vefsíðuna
Screen Rant að hann vildi leika í
sjöttu myndinni. Hún yrði jafn-
framt hans síðasta. „Eins og staðan
er núna get ég hlaupið og barist
á hvíta tjaldinu. En sá tími mun
renna upp þegar mig langar ekki
lengur til þess. Þá mun ég segja
skilið við Die Hard-myndirnar.“
Die Hardest í vinnslu
Sjötta og hugsanlega síðasta Die Hard-myndin, Die Hardest, er í undirbúningi.
A GOOD DAY TO DIE HARD Síðasta Die Hard-mynd hlaut misjafnar viðtökur.
➜ Die Hardest fetar m.a.
í fótspor Die Hard
og Die Harder sem komu
út 1998 og 1990.
Á morgun 2. maí gefur Íslandspóstur út frímerki tileinkuð
bæjarhátíðum og Evrópufrímerkin 2013, en þema þeirra
er póstbílar. Einnig kemur út smáörk í tilefni Norrænu
frímerkjasýningarinnar Nordia 2013 þar sem myndefnið
er norðurljós.
Fyrstadagsumslög fást stimpluð á
pósthúsum um land allt. Einnig er
hægt að panta þau hjá Frímerkjasölunni.
Sími: 580 1050 Fax: 580 1059
Netfang: stamps@stamps.is
Heimasíða: www.stamps.is
Safnaðu litlum lis taverkum
Karlakórinn
Fóstbræður
Vortónleikar í Langholtskirkju
Miðvikudaginn1. maí kl. 20:00
Fimmtudaginn 2. maí kl. 20:00
Laugardaginn 4. maí kl. 15:00
Á efnisskrá verða m.a. lög eftir Sigvalda Kaldalóns og Hjálmar H. Ragnarsson,
íslensk þjóðlög í útsetningum Árna Harðarsonar, Hjálmars H. Ragnarssonar
og Þórarins Jónssonar. Einnig verða fluttar bænir eftir Francis Poulenc, verk eftir
Camille Saint-Säens og að lokum aríur og kórar eftir höfundana Giuseppe
Verdi, Francisco Paolo Tosti, Stanislao Gastaldon og Gioachino Rossini.
Verð aðgöngumiða 3.000 kr. Miðasala við innganginn.
Einsöngur Gissur Páll Gissurarson
Píanó Steinunn Birna Ragnarsdóttir
Stjórnandi Árni Harðarson
➜ Myndband Sólstafa við
lagið Æra var tekið upp í Kapla-
krika í Hafnarfirði.