Fréttablaðið - 01.05.2013, Page 40

Fréttablaðið - 01.05.2013, Page 40
1. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 36 Tilfinningarnar voru mjög miklar eftir leik. Mér leið eins og ég væri sextán ára að byrja í þessu. Teitur Örlygsson 1997 Heiðar spilaði síðast á Íslandi með Þrótti í b-deild. FÓTBOLTI Eftir fimmtán ára feril sem atvinnumaður í knattspyrnu er Heiðar Helguson kominn heim. Sjö erlend félög hafa notið góðs af markaskoraranum þrautseiga. Heiðar lék lykilhlutverk með Car- diff sem á dögunum tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í fyrsta skipti. Frá- bær endir á farsælum ferli. „Maður hefði ekki getað óskað sér betri endi en að fara upp. Tímabilið gekk alveg rosalega vel,“ segir Heiðar. Liðið á reyndar eftir einn leik um helgina en sá leikur skiptir litlu. Heiðar meiddist á kálfa á dögunum og hefur ekki spilað undanfarnar vikur. Löngu var þó ljóst að liðið væri á leiðinni upp og lítil ástæða til að láta Heiðar pína sig. „Það var engin ástæða til að spila þá leiki. Bara láta Aron og strákana um að klára þetta,“ segir Heiðar léttur. Heiðar verður 36 ára í ágúst og virðist heil eilífð síðan hann hélt 22 ára til Lilleström í Nor- egi. Síðan lá leiðin til Englands þar sem hann var í þrettán ár eða allt þar til Cardiff falaðist eftir kröftum kappans síðasta árið. „Það má eiginlega segja það að ég hafi enst lengur í atvinnu- mennskunni en ég reiknaði með,“ segir Heiðar. Hann segir miklu hafa munað um stuðning eiginkonu sinnar og fjölskyldu allan þennan tíma. Auk þess hafi skipt máli að hugsa vel um sig síðustu árin. „Það er mjög mikilvægt ef maður ætlar að endast eitthvað, sérstaklega ef maður er kom- inn yfir þrítugt. Þá þarf að hugsa betur hvernig maður lifir lífinu.“ Heiðar var kjörinn íþróttamaður ársins 2011 en segir að undan farið ár hafi legið ljóst fyrir að tíma- bilið hjá Cardiff yrði hans síðasta. Fjölskylda hans flutti til landsins á síðasta ári og nú er hún sam- einuð á ný í Laugardalnum. Þar spilaði Heiðar með Þrótti áður en hann hélt utan og hafa þeir rauðu og hvítu ítrekað spaugað með það undanfarin ár að Heiðar lyki ferlinum í Þrótti. „Síminn hefur ekki hringt. Ég hef alveg verið látinn í friði,“ segir Heiðar léttur. Mun meiri líkur séu á því að sjá hann á golfvellinum í sumar en framherjinn er með for- gjöf í kringum tíu. „Það rignir svolítið mikið í Wales þannig að ég hef lítið spilað. Maður þarf kannski nokkra hringi til þess að hita sig upp fyrir sum- arið.“ - ktd Síminn hjá Heiðari hefur ekki hringt enn þá Atvinnumannaskórnir hjá Heiðari Helgusyni eru komnir upp í hillu eft ir farsælan feril erlendis. KOMIÐ GOTT Heiðar í búningi Watford á síðasta áratug. NORDICPHOTOS/GETTY KÖRFUBOLTI Pálína Gunnlaugsdóttir, fyrirliði nýkrýndra Íslandsmeistara Keflavíkur og besti leikmaður lokaúrslitanna á móti KR, hefur aldrei tapað úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Pálína hefur farið fimm sinnum í úrslit og unnið titilinn í öll skiptin, fyrst með Haukum 2006 og 2007 og svo með Keflavíkurliðinu í þrígang (2008, 2011 og 2013). Enn magnaðri er sú staðreynd að Pálína hefur verið í sigurliði í 15 af 17 úrslitaleikjum hennar um Íslandsmeistaratitilinn sem gerir 88 prósenta sigurhlutfall. Pálína varð enn fremur á mánudagskvöldið aðeins fimmta íslenska körfuboltakonan sem nær 30 stiga leik í úrslitum. - óój 15 sigrar í 17 úrslitaleikjum KÖRFUBOLTI Birna Valgarðsdóttir, leikmaður kvennaliðs Keflavíkur, varð Íslandsmeistari í sjöunda sinn í fyrrakvöld en auk þess krækti hún í þrjú met. Birna lék á mánudagskvöldið sinn 36. leik í lokaúrslitum kvenna og bætti þar með met Guðbjargar Norðfjörð og Kristínar Bjarkar Jónsdóttur (35 leikir). Birna spilaði enn fremur um leið sinn 22. sigurleik í úrslitum og sló þá met Önnu Maríu Sveinsdóttur og Birna hafði í leiknum á undan slegið met Guðbjargar Norðfjörð yfir flestar þriggja stiga körfur í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. - óój Birna bætti leikjametið TVÆR KÁTAR Birna Valgarðsdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir fagna Íslands- meistaratitlinum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Borussia Dortmund tryggði sér í gærkvöldi sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þrátt fyrir 2-0 tap gegn Real Madrid. Dortmund leikur til úrslita í fyrsta skipti í 16 ár en Real féll úr keppni í undan- úrslitum þriðja árið í röð. -ktd Ballið búið SVEKKTUR Cristiano Ronaldo var fjarri sínu besta í gærkvöldi. NORDICPHOTOS/GETTY SPORT Breiðablik komst aldrei ofar í töflunni á síðustu leiktíð en fjórða sæti þar til sigur á Stjörnunni í lokaumferðinni lyfti liðinu í annað sætið. Frábær endir á um margt undarlegu tímabili. Liðið er sterkara í ár með Gunnleif í markinu auk þess sem Daninn Nichlas Rohde verður með liðinu frá fyrsta leik. Ungu strákarnir eru árinu eldri auk þess sem Guðjón Pétur og Ellert styrkja hópinn til muna. Liðið verður í toppbaráttunni og gangi allt eftir gæti sum- arið orðið eftirminnilegt. Blikar hafna í 4. sætiSPÁ FRÉTTA- BLAÐSINS 2013 Gunnleifur Vignir Gunnleifsson ➜ HVAÐ ER LANGT SÍÐAN… … liðið varð meistari – 3 ár … liðið spilaði í b-deild – 8 ár … liðið féll úr deildinni – 12 ár … liðið varð bikarmeistari – 4 ár … liðið átti markakóng deildarinnar – 7 ár … liðið fékk á sig fæst mörk í deildinni – 3 ár Ólafur Kristjánsson er 44 ára gamall og á sínu áttunda tímabili með liðið. Þetta er annað félagið sem hann þjálfar í efstu deild en hann þjálfaði áður Fram. Á að baki níu tímabil sem þjálfari í efstu deild (165 leikir, 64 sigrar, 48 prósent). Ellert Hreinsson (Stjarnan) Guðjón Pétur Lýðsson (Valur) Gunnleifur V. Gunnleifsson (FH) Nichlas Rohde (úr láni) Jökull I. Elísabetarson (úr láni) Árni Vilhjálmsson (úr láni) Fylgstu með þessum: Elfar Árni Aðalsteinsson – Húsvíkingur- inn hefur verið sjóðandi heitur í vetur. ➜ EINKUNNASPJALDIÐ VÖRNIN ★★★★★ SÓKNIN ★★★★★ ÞJÁLFARINN ★★★★★ BREIDDIN ★★★★★ ÍSLANDSMEISTARI: 1 (2010) BIKARMEISTARI: 1 (2009) Blikar opnuðu veskið í vetur og fjárfestu í landsliðs- markverðinum. Með Gulla á milli stanganna hafa Blikar reynslubolta sem hefur unnið allt og ætti að geta miðlað af reynslunni til ungu strákanna. hefst eftir 4 daga ➜ STJARNAN ➜ ÞJÁLFARINN ➜ NÝJU ANDLITIN KÖRFUBOLTI „Það vorar alltaf aftur,“ sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, en hans lið rétt missti af Íslandsmeistaratitl- inum í frábærum oddaleik gegn Grindavík. Teitur átti erfitt með sig eftir leik enda keppnismaður mikill. „Ég neita því ekki að þetta var mikið áfall. Þetta var ógeðslega sárt. Þetta er örugglega nálægt því versta sem ég hef upplifað. Tilfinningarnar voru mjög miklar eftir leik. Mér leið eins og ég væri sextán ára að byrja í þessu. Við áttum mjög bágt með okkur margir og ég þar á meðal. Við berum tilfinningar hver til annars og menn fundu til með hinum eins og á að vera í alvöru liði. Það féllu tár inni í klefanum. Ég átti bágt með mig og fékk kökk í hálsinn.“ Urðum okkur ekki til skammar Lið Teits barðist allt til enda og hann segist vera stoltur af sínu liði. „Við urðum okkur ekki til skammar. Við gáfum allt sem við áttum og þá er auðveldara að sætta sig við tap. Það geta allir litið í spegil og sagt að þeir hafi gert sitt besta,“ sagði Teitur en það mun- aði mikið um að hans lið missti Bandaríkjamanninn Jarrid Frye meiddan af velli snemma leiks. Hann sneri sig mjög illa á ökkla en er sem betur fer ekki brotinn. „Það hefðu mörg lið lagst niður þá en ekki við. Jarrid var búinn að vera frábær og var vel stemmdur. Það var því áfall að missa hann. Ég sá ökklann á honum í hálfleik og hann var eins og blaðra.“ Uppskera Stjörnunnar eftir tímabilið er samt góð. Stjarnan varð bikarmeistari og komst mjög nálægt því að vinna sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. „Þegar frá líður verður hægt að horfa á þetta og vera þokka- lega sáttur. Ég vil meina að það sé ógeðslega erfitt að vinna þessa deild. Við sáum núna hvað meiðslin settu mikið strik í reikninginn hjá mörgum. Við gerum okkur alveg grein fyrir því að það meiddust menn gegn okkur sem gerði okkur örugglega auðveldara fyrir. Það fylgir þessu og meiðsli hafa sett mikið strik í reikninginn í NBA- deildinni núna.“ Teitur var að klára sitt fjórða ár með Stjörnunni og hann er búinn að skila tveimur bikarmeistara- titlum. Hvað ætlar hann að gera núna? „Það er stóra spurningin. Ég er tvístígandi eins og staðan er. Um hvort ég eigi að halda áfram, prófa eitthvað annað eða hrein- lega taka mér frí. Ég er búinn að vera í meistaraflokki síðan ég var 16 ára og er orðinn 46 ára. Ég hef aldrei gert neitt annað yfir vetrar- tímann,“ sagði Teitur en hann á sér einn draum sem ekki hefur tekist að uppfylla. „Ég er mikill stuðnings maður Man. Utd og horfi á alla leiki liðsins. Ég hef samt aldrei farið á Old Trafford, Mekka. Það er ekki nógu gott. Þetta er dæmi um það sem mann langar að gera. Svo kemur á móti að eldmóðurinn er til staðar og manni er ekki sama um hvort maður vinnur eða tapar. Ástríðan fyrir körfuboltanum er enn til staðar og spurning hvort það sé merki um að maður eigi að halda áfram. Þess vegna er þetta svona erfitt.“ Teitur segir að tíminn í Garða- bænum hafi verið alveg frábær og að honum hafi liðið vel þar. „Mér stendur til boða að þjálfa liðið áfram og ég er að velta því fyrir mér núna hvort ég eigi að halda áfram. Það er margt sem ég þarf að hugsa um núna og þetta er að veltast um inni í mér,“ sagði Teitur Örlygsson. henry@frettabladid.is Það féllu tár inni í klefanum Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, segir að tilfi nningarnar hafi borið suma leikmenn liðsins ofurliði eft ir tapið gegn Grindavík í oddaleiknum á sunnudag. Teitur hefur ekki tekið ákvörðun um framtíðina en hann hefur verið í körfuboltanum í þrjátíu ár. Stjarnan vill halda honum en Teitur gæti allt eins tekið sér frí. KEPPNISMAÐUR Teitur Örlygsson segist hafa átt erfitt með sig eftir tapið gegn Grindavík. Hann hafi fengið kökk í hálsinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.