Fréttablaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 42
1. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 38
Ég lýsi eftir því að
einhver leikmaður taki
á sig ábyrgð og fari að
sýna stjörnuleiki.
Kristinn Guðmundsson
HANDBOLTI Fram er búið að ná
frumkvæðinu í einvígi sínu gegn
Haukum um Íslandsmeistaratitil
karla. Fram „stal“ fyrsta leiknum
í Hafnarfirði og verður Íslands-
meistari með því að vinna heima-
leikina sína en vinna þarf þrjá
leiki til þess að tryggja sér titilinn.
Framarar unnu sanngjarnan
sigur í fyrsta leiknum og Frétta-
blaðið fékk Kristin Guðmundsson,
þjálfara Íslandsmeistara HK, til
þess að rýna í spilin.
„Þessi leikur segir okkur að það
sé ákveðnum spurningum ósvarað
hjá Haukunum. Þeir virðast ekki
enn hafa fundið mann til þess að
taka frumkvæði og höggva á hnút-
ana er á þarf að halda. Stefán Rafn
gerði það fyrir þá áður en hann
fór út og þeim hefur ekki tekist að
leysa þann hausverk. Ég lýsi eftir
því að einhver leikmaður Hauk-
anna taki á sig ábyrgð og fari að
sýna einhverja stjörnuleiki,“ sagði
Kristinn ákveðinn.
Sigurbergur Sveinsson skor-
aði sex mörk í fyrsta leiknum en
næstu menn voru með tvö mörk.
„Það er enginn að taka frum-
kvæði í sóknarleiknum. Tjörvi er
týndur sem og Sigurbergur. Elías
Már er ekki að ógna markinu og
svona mætti áfram telja. Mér
fannst menn vera að fela sig í
sókninni. Þeir voru gjaldþrota á
þeim enda. Við skulum hafa það
alveg á hreinu. Ef þeir finna ekki
lausnir á þessu eru Haukarnir
í erfiðum málum. Stóra spurn-
ingin er hver ætlar sér að stíga
upp,“ sagði Kristinn og bætti við
að Haukarnir hefðu unnið sig út
úr vandamálum áður og því vildi
hann ekki afskrifa þá strax.
„Ég saknaði þess líka að menn
væru að berja á garðinum. Jóhann
Gunnar er til að mynda að spila í
bæði sókn og vörn. Við vitum að
hann er kannski ekki í besta formi
af öllum leikmönnum deildarinnar.
Hann þarf aðstoð og fékk það í
gær. Það reynir samt á hann og
Haukarnir ættu að setja fleiri
árásir á hann sem og Róbert Aron.
Þreyta þá. Það kom mér á óvart að
Haukarnir væru ekki með fleiri
svör.“
Maðurinn sem tók frumkvæðið
hjá Fram var Sigurður Eggertsson
en frammistaða hans undir lokin
gerði gæfumuninn.
„Siggi var frábær og hann hjó
á hnútana. Jóhann Gunnar var að
finna Harald á línunni en Framar-
ar eiga síðan Róbert Aron Hostert
algjörlega inni. Það er maður sem
getur heldur betur klárað leiki.
Það er meiri pungur í Frömur-
unum núna. Þeir eru mark vissari
og sókndjarfari en áður. Til þess
að vinna titilinn þurfa menn að
vera farnir að trúa því í hausnum
að þeir geti unnið og mér sýnist
Framararnir hafa bullandi trú á
því að þeir geti orðið meistarar,“
sagði Kristinn en hann segir
Haukana vera með bakið upp við
vegg. Það sé ekkert grín að lenda
2-0 undir í svona einvígi.
„Bæði lið eru að spila góða vörn
en eftir því sem líður á einvígið
fjölgar mörkunum því það kemur
meiri þreyta í varnarleikinn. Þetta
verður refskák og nú er spurning
hvort Haukarnir sýni frumkvæði
eður ei,“ sagði Kristinn en hann
segir leikinn í dag vera algjöran
lykilleik.
„Þetta eru tvö frábær lið sem
spiluðu flottan varnarleik í fyrsta
leiknum. Þetta er lykilleikur og ef
Fram vinnur þennan leik þá verða
þeir meistarar. Ef Haukar vinna
leikinn þá verða þeir meistarar.
Einvígið ræðst í þessum leik. Það
er mín spá.“ henry@frettabladid.is
Einvígið ræðst í þessum leik
Fram og Haukar mætast öðru sinni í úrslitum N1-deildar karla í kvöld. Kristinn Guðmundsson, þjálfari HK,
auglýsir eft ir frumkvæði hjá leikmönnum Hauka og spáir því að einvígið ráðist af útkomu leiksins í kvöld.
Þriðji leikur Fram og Stjörnunnar í úrslitum N1-deildar kvenna verður einnig spilaður í Safamýri í dag.
STERKUR Jóhann Gunnar Einarsson átti fínan leik fyrir Fram í fyrsta leiknum og
skoraði fimm mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Sæktu þér nýja appið í snjallsímann þinn og hlustaðu á FM957, Bylgjuna og X977
hvar og hvenær sem er.
Fáðu okkur í símann þinn!
Ný
tt
ap
p
Farðu á visir.is/utvapp eða skannaðu QR kóðann og sæktu
Útvappið fyrir iOS eða Android.
FÓTBOLTI Það yrði stórslys ef
Bayern München tækist ekki
að tryggja sér sæti í úrslitaleik
Meistaradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu. Eftir að Börsungar voru
dregnir til slátrunar 4-0 í Þýska-
landi fyrir viku er líklega enginn
sem reiknar með því að þeir
spænsku eigi sér viðreisnar von.
„Þegar þú upplifir úrslitaleik
eins og okkar gegn Chelsea þá
viltu ekki endurtaka leikinn,“
segir Jupp Heynckes, þjálfari
Bæjara. Þeir þýsku töpuðu
úrslitaleik keppninnar í fyrra á
heimavelli í München eftir víta-
spyrnukeppni.
„Við erum Barcelona og getum
ekki gefist upp þótt staðan sé
slæm. Takist ætlunarverkið ekki
þurfum við að geta borið höfuðið
hátt, berjast allt til loka svo
stuðningsmennirnir geti verið
stoltir,“ segir Tito Vilanova, þjálf-
ari Barcelona. Með Lionel Messi
innanborðs sé alltaf von.
Leikur liðanna hefst klukkan
18.45 og er í beinni útsendingu á
Stöð 2 Sport & HD. - ktd
Í höndum
Þjóðverjanna
SVEKKTUR Schweinsteiger og félagar
grétu eins og börn eftir tapið í fyrra.
NORDICPHOTOS/GETTY