Fréttablaðið - 01.05.2013, Side 46
1. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 42
„Ég er algjör kaffisjúklingur og
dagurinn byrjar ekki hjá mér nema
ég fái kaffi. Ég mæli sérstaklega
með drykk sem heitir Karamellu-
sveifla og fæst á Kaffitári, ég bjó
hann til þegar ég var kaffibarþjónn
á Kaffitár í gamla daga.“
Ilmur Dögg Gísladóttir, verkefnastjóri
Norræna hússins.
DRYKKURINN
„Þeir höfðu samband við okkur og
við ákváðum að gera myndband á
Íslandi enda eru þeir aðdáendur
landsins,“ segir Ellen Lofts dóttir,
stílisti og leikstjóri, sem í sam-
vinnu við kærasta sinn, Þorbjörn
Ingason, gerði myndband fyrir
hina vinsælu dönsku hljómsveit
Reptile Youth.
Myndbandið var tekið upp um
áramótin á Íslandi þar sem íslensk
náttúra leikur stórt hlutverk ásamt
hljómsveitinni og fyrirsætunni
Kolfinnu Kristófersdóttur. Mynd-
bandið, sem er við lagið Fear, hefur
vakið athygli erlendra miðla á borð
við Nylon Magazine, Euroman, ID
Magazine og Vice Magazine en
það var frumsýnt á mánudags-
kvöldið. „Það er gaman hversu
mikla athygli þetta vekur en hljóm-
sveitin er mjög vinsæl hérna í Dan-
mörku,“ segir Ellen. Þau Þorbjörn
mynda teymið Narvi Creative og er
meðal annars með vinsælt mynd-
band sveitarinnar GusGus við lagið
Over á ferilskránni.
Þau fluttu til Kaupmannahafnar
síðasta haust en ásamt því að vera
í Narva Creative starfar Þorbjörn
hjá hönnunarskrifstofunni Thank
You og Ellen er að koma sér áfram
sem stílisti í Kaupmannahöfn.
„Okkur hefur gengið vel að koma
okkur áfram hér og þetta mynd-
band á örugglega eftir að opna ein-
hverjar dyr. Tísku-og tónlistar-
senan hér er stór og í augnablikinu
er Kaupmannahöfn staðurinn fyrir
okkur.“ - áp
Gerðu myndband fyrir vinsæla danska sveit
Myndband Ellenar Loft sdóttur og Þorbjörns Ingasonar fyrir dönsku sveitina Reptile Youth vekur athygli.
➜ Yfir 2.000 höfðu horft á
myndbandið sólarhring eftir
að það var frumsýnt.
VINSÆLT MYNDBAND Ellen Lofts-
dóttir og Þorbjörn Ingason tóku upp
myndband fyrir dönsku sveitina Reptile
Youth á Íslandi.
„Við erum mjög spennt fyrir að
koma þessu á fót hérna,“ segir
söngvarinn Þór Breiðfjörð.
Söngskóli Sigurðar Demetz
hefur stofnað söngleikjadeild og
verður inntökupróf haldið 21.
maí næstkomandi. Kennarar
verða Þór, Valgerður Guðna-
dóttir og Jóhanna V. Þórhalls-
dóttir. Saman hafa þau ára-
langa reynslu af söng og leik á
sviði, bæði á Íslandi og í alþjóð-
legum söngleikjum.
Í skólanum verður farið
yfir söngleiki og söngleikja-
tengda tónlist. Teknir verða
fyrir Disney-söngleikir,
söngleikjamyndir, revíur
og fyrir jólin verða
söngleikjatengd jóla-
lög sungin. Eftir
áramót verður svo
settur upp söng leikur með nem-
endunum.
„Íslendingar eru tónelskir en
söngleikir hafa kannski ekki haft
beinan fókus í þessu formi á
Íslandi. Þetta
er svolítið
nýtt. Við
erum tvö
þarna, við
Val gerður,
og reynslu -
boltinn
Jóhanna. Við
erum mjög
spennt
og
hvetjum fólk til að koma
í prufuna,“ segir Þór en
viðmiðunaraldur er 17 ár.
Skráning í söngleikja-
deildina fer fram á
songskoli@vortex.
is og Rvk.is.
Frekari
upplýsing-
ar verða
birtar
á Song-
skoli.is.
- fb
➜ Þór Breiðfjörð hlaut Grímu-
verðlaunin sem söngvari ársins
í fyrra fyrir Vesalingana. Val-
gerður vann Grímuna
2009 fyrir Söngvaseið.
Ný söngleikjadeild stofnuð
Þór Breiðfj örð og Valgerður Guðnadóttir á meðal kennara í Söngskóla Demetz.
NÝ SÖNGLEIKJADEILD
Þór Breiðfjörð og Val-
gerður Guðnadóttir
kenna söngleikjafræði.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
„Áhuginn á tísku kviknaði í mennta-
skóla en þá lagði maður jogging-
gallann á hilluna og fór að spá í hverju
maður klæddist,“ segir Sindri Snær
Jensson, tískubloggari og knatt-
spyrnumarkmaður, sem heldur úti
tískubloggsíðunni Sindrijensson.com.
Síðan var opnuð fyrir tæplega
tveimur mánuðum og hefur fengið
góðar viðtökur. Daglega heimsækja
um 1.000-4.000 manns síðuna þar sem
Sindri leggur metnað í að fjalla fag-
lega um strauma og stefnur í herra-
tískunni ásamt því að fá vel valda
herra í tískuspjall til sín. „Ég var búin
að ganga með þessa hugmynd í mag-
anum lengi en fann aldrei tíma til að
hrinda henni í framkvæmd enda vil
ég gera hlutina vel þegar ég tek þá að
mér,“ segir Sindri, sem loksins fann
tíma er hann flutti til Malmö í Svíþjóð
með kærustunni sinni síðasta haust.
Sindri er markmaður og spilaði
síðasta sumar með úrvalsdeildar-
liðinu Val. Upphaflega ætlaði hann
að finna sér lið í Svíþjóð en það hefur
ekki gengið sem skyldi. „Ég hef verið
að æfa með liðum hérna úti og fengið
nokkur samningstilboð en engin nógu
góð. Þess vegna get ég kallað mig
heimavinnandi húsföður og tísku-
bloggara núna. Ég fæ margar spurn-
ingar í viku frá lesendum um tísku
sem er mjög skemmtilegt,“ segir
Sindri, sem eyðir um 2-3 klukku tímum
á dag í bloggsíðuna.
Sindri starfaði lengi vel sem
verslunarstjóri í Galleríi 17 og
líkir tískuáhuganum við bakt-
eríu sem honum tekst ekki að
losna við. „Það sem heillar
mig við tískuna er hvernig
maður getur tjáð sig í gegnum
klæðaburðinn. Mín skoðun er
sú að það er engin afsökun til
fyrir að vera ekki snyrtilegur
til fara.“
alfrun@frettabladid.is
Knattspyrnumaður
bloggar um tískuna
Sindri Snær Jensson hefur vakið athygli fyrir tískubloggið sitt Sindrijensson.com þar
sem hann fj allar af metnaði um hinar mörgu hliðar herratískunnar. Sindri Snær segir
enga afsökun vera til fyrir að vilja ekki líta vel út og vera snyrtilegur til fara.
➜ 1.000-4.000 manns heimsækja
síðuna daglega.
■ Uppáhaldsbloggsíða: The Sartorialist.com
■ Uppáhaldstímarit: GQ Magazine
■ Hönnuður: Tom Ford
■ Tískufyrirmynd: Allir karlmenn sem bera
virðingu fyrir sjálfum sér og bera klæðnað sinn
með sjálfstrausti.
■ Uppáhaldsflíkin:
Libertine-Libertine skyrta
með pappírsbátamunstri.
■ Ómissandi í herrafata-
skápinn fyrir sumarið:
Munstruð stutterma-
skyrta.
Tom Ford í uppáhaldi
MARK-
MAÐUR OG
TÍSKUBLOGGARI
Tískubloggsíða
Sindra Snæs
Jenssonar,
Sindrijensson.
com, hefur vakið
mikla at hygli en
þar fjallar hann
af metnaði um
herratískuna.
Fáðu þér áskrift
512 5100
stod2.is
KRAFTAVERK
Í KATALÓNÍU?
Það þarf allt að ganga upp hjá Börsungum gegn
Bæjurum í kvöld enda voru þeir rassskelltir í fyrri
leiknum 4:0. Fylgstu með í leiftrandi háskerpu!
BARCELONA
BAYERN MUNCHEN
Í KVÖLD KL. 18:30
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
I0
14
8
8
1
ÞORSTEINN J. OG GESTIR KL. 18:00