Fréttablaðið - 01.05.2013, Page 48
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
1 Ekkjan grunuð um græsku
2 Ótrúleg heppni íþróttafréttakonu
3 Háhyrningarnir skotnir
4 Michael Jackson var forfallinn eitur-
lyfj aneytandi
5 Nauðgað kvöldið fyrir heimferð
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Kemur saman eftir hlé
Hljómsveitin Moses Hightower kemur
saman eftir hlé en tveir meðlima
sveitarinnar eru búsettir erlendis og sá
þriðji hefur verið á ferð um heiminn
með stórsveitinni Of monsters and
men. „Nú eru týndu synirnir hins vegar
endurheimtir tímabundið og þá er ekki
úr vegi að spila svolítið,“ segir Magnús
Trygvason Eliassen, einn meðlima.
Sveitin spilaði á Græna hattinum á
Akureyri í gærkvöldi. Hún stoppaði
ekki lengi fyrir norðan
þar sem áætlaðir eru
tónleikar á tónleika-
staðnum Volta við
Tryggvagötu í kvöld,
miðvikudagskvöld. Upp-
hitun verður í höndum
Árna Vilhjálmssonar
úr FM-Belfast
sem ku frum-
flytja nokkur
lög undir lista-
mannsnafninu
Nini Wilson.
- mlþ
KAUPMÁTTUR
ATVINNA
VELFERÐ
1. MAÍ 2013
Í 90 ár hefur íslenskt launafólk fylkt liði í
kröfu göngum í baráttunni fyrir réttlátu
samfélagi. Enda þótt mikið hafi áunnist
og þjóðfélagið tekið stakka skiptum er
grundvallarstefið í verka lýðsbaráttu enn
það sama. Við verðum að hafa atvinnu,
launin okkar þurfa að skila okkur kaup-
mætti, við þurfum að geta skapað
fjölskyldum okkar öruggt húsnæði og
velferðar þjónustan verður að vera á
viðráðanlegu verði.
Verðbólgan er versti óvinur launafólks.
Hún skerðir kaupmátt launanna okkar
og orsakar háa vexti á lánunum okkar.
Óstöðugt gengi íslensku krónunnar er
einn af orsakavöldum mikillar verðbólgu.
Því skiptir sköpum fyrir hagsmuni
launafólks að meiri festa verði í þróun á
gengi krónunnar. Við höfum ekkert val,
við verðum að segja verðbólgunni stríð á
hendur.
ASÍ óskar launafólki til hamingju með daginn og hvetur
til samstöðu í aðgerðum stéttarfélaganna 1. maí.
Gestur Einar Þráinn Karlsson Alli Bergdal
einu sinni
ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARINN
Fös. 3. maí & Lau. 4. maí
Miði.is & s: 551 1200
var
Frumsýna nýtt myndband
Stuðsveitin Retro Stefson frum-
sýndi nýtt myndband í Bíói Paradís
í gærkvöldi. Myndbandið er við eitt
af vinsælum smellum sveitarinnar,
Qween, sem má finna á nýjustu
plötu þeirra. Það var reynsluboltinn
Reynir Lyngdal sem sá um að leik-
stýra myndbandinu sem var
tekið upp við Esjurætur
fyrr á árinu. Þorbjörg
Roach og félagar hennar
í hljómsveitinni gerðu
hlé á tónleikaferðalagi
sínu um Evrópu til
að vera viðstödd
frumsýningu
myndbandsins.
Þau hafa verið
á miklu flakki
undanfarnar
vikur og
því smá frí
á Íslandi
væntan-
lega kær-
komið. - áp