Fréttablaðið - 03.05.2013, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 03.05.2013, Blaðsíða 10
3. maí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Verðtryggð skuldabréf Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. LSS150434 Lánasjóður sveitarfélaga ohf. kt. 580407-1100, hefur birt útgefandalýs- ingu og grunnlýsingu dagsett 24. apríl 2013 vegna töku skuldabréfa til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland hf. Útgefandalýsinguna og grunn- lýsinguna ásamt gögnum sem vitnað er til í þeim er hægt að nálgast hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., Borgartúni 30, 105 Reykjavík og á vefsíðu Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. www.lanasjodur.is fram til lokagjalddaga skuldabréfanna. Nafnverð útgáfu: Heildarnafnverð skuldabréfanna sem óskað hefur verið að tekin verði til viðskipta 3. maí 2013 er 949.000.000 kr. heildarnafnverð flokksins er þá 3.374.000.000 kr. Nafnverð hverrar einingar er 1 kr. Skilmálar bréfanna: Skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf. Bréfin bera fasta 3,75% ársvexti sem greiddir eru hálfsárslega, 15. apríl og 15. október ár hvert, í fyrsta sinn 15. apríl 2012 og í síðasta sinn 15. apríl 2034. Auðkenni flokksins á NASDAQ OMX Iceland hf. er LSS150434 og ISIN númer IS0000020691. Reykjavík, 2. maí 2013. Lánasjóður sveitarfélaga ohf. LÖGREGLUMÁL Kópavogsbær hefur boðað Gunnar Torfason, yfirmann hjá Smartbílum, á fund vegna kyn- ferðisbrota sem tvær þroskaskertar konur hafa tilkynnt af hendi bíl- stjóra fyrirtækisins. Smartbílar sjá um ferðaþjónustu fyrir fatlaða í Kópavogi, Mosfellsbæ og Garða- bæ. Mað- urinn hafði unnið í hálft ár hjá fyrir- tækinu. Arna Schram, upplýsinga- fulltrúi Kópavogs- bæjar, segir verkferla verða endur skoðaða vegna málanna. „Þegar velferðarsvið fær fyrra málið inn á sitt borð er því strax vísað til lögreglu og manninum er vikið til hliðar,“ segir hún. „Síðan lesum við um hitt málið í Fréttablaðinu sem átti sér stað í Mosfellsbæ og því töldum við ástæðu til að boða Gunnar á fund.“ Smartbílum barst bréf þann 8. mars þar sem greint var frá því að þroskaskert kona í Mosfellsbæ hefði orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu bílstjóra fyr- irtækisins. Mannin- um var þó ekki vikið úr starfi eða málið tilkynnt til lögreglu, því nokkrum dögum síðar var hann kærð- ur fyrir að nauðga þroskaskertri konu í Kópavogi. Bæði atvikin áttu sér stað í bíl á vegum Smartbíla. Arna segir grafalvarlegt að ofbeldið í Mosfellsbæ hafi ekki verið tilkynnt yfirvöldum eða Kópavogsbæ. Hvorki Mosfellsbær né Garða- bær höfðu fengið vitneskju um nein brot er varða Smartbíla þegar Fréttablaðið hafði sam- band. Ásgeir Sigurgests- son, hjá fjölskyldu- sviði Mosfells- bæjar, segir enga tilkynningu um brotið sem átti sér stað í bænum hafa borist honum. Hann segir allt ferðaþjón- ustukerfi fyrir fatlaða vera í endurskoðun. Bergljót Sigurbjörnsdóttir, félagsmálastjóri Garðabæjar, sagði að málið yrði skoðað í ljósi upplýs- inganna, en engin mál hafi enn komið inn á hennar borð. Hvorki náðist í Gunnar Torfa- son né Einar Valsson, yfirmenn hjá Smartbílum, í gær. sunna@frettabladid.is Yfirmaður Smartbíla á teppið vegna brota Smartbílar brugðust ekki við þegar tilkynnt var um kynferðisbrot starfsmanns þeirra. Maðurinn var kærður fyrir að nauðga fatlaðri konu rúmri viku eftir að til- kynning barst um fyrra brot. Kópavogsbær mun endurskoða ferla vegna málsins. Þroskaskert kona í Mosfellsbæ tilkynnti yfirmanni sínum um kynferðis- legt ofbeldi af hálfu bílstjóra síns í lok febrúar síðastliðnum. Hún sagði manninn hafa kysst sig ítrekað, játað henni ást sína og mútað henni með gosdrykkjum til að segja ekki frá. Samkvæmt heimildum blaðsins á maðurinn börn og konu. Yfirmaður konunnar sendi yfirmanni Smartbíla, Einari Valssyni, bréf og tilkynnti um málið og hann sagðist ætla að bregðast við. Nokkrum dögum seinna var sami bílstjórinn kærður fyrir nauðgun á annarri þroskaskertri konu og var honum þá sagt upp störfum hjá fyrirtækinu. Rannsókn lögreglu á því máli miðar vel, en manninum var sleppt að lokinni skýrslutöku. Vitað um tvær konur í tveimur bæjum BRAUT Á KONUM Í BÍLNUM Bílstjóri Smartbíla braut á tveimur þroska- skertum konum þegar hann var að keyra þær á milli staða. Önnur kærði hann fyrir nauðgun. VIÐSKIPTI Hannes Frímann Hrólfs- son er nýr forstjóri Auðar Capital. Hann tók við starfinu af Kristínu Pétursdóttur, sem gegnt hefur stöð- unni frá upphafi, og er jafnframt fyrsti karlforstjóri fyrirtækisins. Auður Capital var stofnað af þeim Höllu Tómasdóttur og Krist- ínu Pétursdóttur árið 2007. Fyrir- tækið boðaði frá upphafi nýja nálgun í viðskiptaháttum og kenndi sig opinberlega við kvenlæg gildi, minni áhættusækni og öruggari viðskiptahætti. Spurður hvort ekki sé óheppi- legt að fyrirtæki sem byggir á kvenlægum gildum sé stjórnað af karli segir Hannes svo ekki vera. „Við vinnum vissulega eftir sömu áherslum og hugmyndafræði og í upphafi. En ég hafna því að það sé endilega kvenlægt. Ég trúi því að slík vinna geti átt jafnt við um karla sem konur.“ Síðasta rekstrarár fyrirtækisins var það besta í sex ára sögu þess. Að sögn Hannesar einkenndist það af auknum umsvifum og góðri ávöxtun. Alls námu tekjur um 808 milljónum króna, en það er um 300 milljóna króna hækkun á milli ára. Félagið er nú skuldlaust og nemur eigið fé þess um 1,2 milljörðum. Einnig hefur verið lokið við fjár- mögnun á nýjum framtakssjóði, Eddu. Alls munu 30 fjárfestar leggja sjóðnum til fé, þar með taldir stærstu lífeyrissjóðirnir. Að sögn Hannesar kemur Edda til með að fjárfesta í traustum, óskráðum fyrir tækjum á Íslandi. - mlþ Hannes Frímann Hrólfsson er tekinn við af Kristínu Pétursdóttur sem forstjóri Auðar Capital: Karlforstjóri byggir á kvenlægum gildum FORSTJÓRINN Hannes Frímann Hrólfs- son er nýr forstjóri Auðar Capital. Hann tók við starfinu af Kristínu Pétursdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÞJÓÐGARÐAR Gjaldhlið sem í fyrra var komið fyrir við salernin á Hak- inu á Þingvöllum hafa verið tekin niður. Ástæðan er ekki sú að hætta eigi að innheimta aðgangseyri að salernunum heldur eru þau fjar- lægð tímabundið á meðan reist verður tengibygging milli salernis- húsanna tveggja. Með tengibyggingunni á ekki síst að mynda skjól fyrir ferðalanga sem stundum bíða í misjöfnum veðrum eftir að komast á salernin. Bakveggurinn verður gegnsær þannig að útsýni verður áfram að Botnssúlum milli húsanna. Áætlað er að framkvæmdum verði lokið eftir sex vikur. Fram að þeim tíma verður ekki rukkað þjón- ustugjald inn á klósettin. - gar Betrumbætur að fara í gang á salernisaðstöðunni á Hakinu á Þingvöllum: Ekkert klósettgjald næstu vikur OPIÐ HÚS Næstu sex vikur verður frítt að létta á sér á salernunum á Hakinu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VATÍKANIÐ, AP Benedikt sextándi, fyrrverandi páfi, kom til Vatík- ansins í gær. Þetta var í fyrsta skipti sem hann kemur í Vatík- anið frá því að hann sagði af sér embætti páfa í febrúar. Frans páfi tók á móti Benedikt í gærmorgun. Þeir hittust við nýtt heim- ili Benedikts, sem var áður klaustur, og báðust fyrir saman. Benedikt mun búa þar ásamt einkaritara sínum og fjórum konum sem aðstoða hann í daglegu lífi. Benedikt er sagður vera ánægður með að vera kominn aftur í Vatíkanið og ætlar sér að helga líf sitt störfum við kirkjuna áfram. - þeb Páfinn fyrrverandi snýr aftur: Benedikt kom- inn í Vatíkanið FERÐAÞJÓNUSTA Ásbjörn kjörinn formaður Ásbjörn Björgvinsson var kjörinn formaður Ferðamálasamtaka Íslands á aðalfundi samtakanna. Hann hefur starfað innan greinarinnar um árabil. Hann byggði upp Hvalasafnið á Húsa- vík, var forstöðumaður Markaðsstofu Norðurlands og er rekstrarstjóri hjá Special tours/Sérferðum í Reykjavík. BENEDIKT PÁFI SPRENGIEFNI Efnin sem tollgæslan lagði hald á og sjá má á myndinni, eru svokölluð forefni. Með blöndun þeirra hefði verið hægt að búa til kíló af sprengiefni. MYND/TOLLURINN LÖGREGLUMÁL Rannsókn á máli þar sem tollurinn stöðvaði send- ingu sem kom með bögglapósti og reyndist innihalda eitt kíló af efnum sem hægt er að nota sem sprengiefni er lokið. Sendingin barst til Póstmið- stöðvarinnar á Stórhöfða frá Bretlandi þann 18. desember 2012 og var stíluð á einstakling. Í henni voru tveir plastpokar með dufti í, en ekki var getið um efnisinnihald þeirra á um- búðum. Tollgæslan haldlagði efnið. Rannsókn málsins var síðan unnin í samvinnu rannsóknar- deildar Tollstjóra, lögreglustjór- ans á höfuðborgarsvæðinu og Ríkislögreglustjóra. - hó Tollurinn stöðvaði sendingu: Sprengiefni fannst í pósti MAMMA PASSAR SÍNA Svartbjarnar- bræðurnir Kóda og Kenaí fæddust í dýragarðinum í Berlín í janúar síðast- liðnum. Hér sést annar þeirra rísa upp á afturlappirnar, en bangsamamma fylgist vel með. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.