Fréttablaðið - 30.05.2013, Side 4

Fréttablaðið - 30.05.2013, Side 4
30. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 KÍNA Móðir ungbarnsins sem var bjargað úr skólpröri í fjölbýlishúsi í Jinhua á mánudag var sú fyrsta sem kallaði eftir aðstoð og var við- stödd á meðan björgunin fór fram. Móðirin neitaði því í fyrstu að hafa fætt barnið en viður- kenndi það svo þegar lögreglan gekk á hana. Konan er 22 ára og leigir íbúð í fjölbýlishús- inu. Hún sagðist ekki hafa haft efni á fóstur- eyðingu og því hefði hún haldið því leyndu fyrir nágrönnum sínum að hún væri barns hafandi. Hún hefði því fætt barnið yfir klósettinu. Móðirin sagðist hafa reynt að grípa barnið en það hefði runnið úr greipum hennar og ofan í pípuna. Þá hefði hún látið leigusala sinn vita hvernig á stóð, eftir að hafa reynt árangurslaust að ná því upp. Barnið hefur verið kallað Barn 59 í fjöl- miðlum erlendis vegna númersins sem það fékk á spítalanum. Kínverskir fjölmiðlar segja að þegar björgunarmenn hafi náð barninu hafi hjartsláttur þess verið veikur en barnið þó að mestu óskaddað. Naflastrengurinn var enn tengdur við fylgjuna. Lögreglan verst frekari fregna af málinu og segir það enn vera í rannsókn. - bþh Kínverska ungbarnið sem skolaðist niður salerni og var bjargað úr skólpröri er að mestu óskaddað: Móðirin hafði ekki efni á fóstureyðingu Í RÖRINU Barnið fannst fast í skólpröri á mánudag. NORDICPHOTOS/AFP AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is VIÐ ÞEKKJUM TILFINNINGUNA SVONA ERUM VIÐ 1.458 gengu í hjónaband árið 2011 sem eru 4,6 vígslur á hverja 1.000 íbúa. Það eru 222 fleiri hjónavígslur en 1991 en 166 færri en 1971. Heimild: Hagstofan.is Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Laugardagur Hæg breytileg átt víðast hvar. NOKKUÐ BJART verður norðaustanlands næstu daga en annars staðar víða rigning eða skúrir. Hlýjast verður í sólinni norðaustan til þar sem hitinn gæti náð 16 stigum í dag en 13 stigum á morgun. 7° 7 m/s 7° 9 m/s 8° 10 m/s 8° 18 m/s Á morgun Fremur hægur vindur víðast hvar. Gildistími korta er um hádegi 6° 6° 8° 8° 9° Alicante Aþena Basel 22° 31° 21° Berlín Billund Frankfurt 20° 20° 17° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 16° 21° 21° Las Palmas London Mallorca 22° 16° 20° New York Orlando Ósló 30° 30° 18° París San Francisco Stokkhólmur 16° 18° 19° 7° 6 m/s 7° 4 m/s 13° 5 m/s 8° 5 m/s 13° 4 m/s 10° 7 m/s 4° 7 m/s 8° 7° 7° 11° 11° Mynd Önnu Maríu Sigurjónsdóttur var endurbirt án vitundar höfundar í Frétta- blaðinu síðastliðinn mánudag á síðu 13 og ekki gætt sæmdarréttar með merkingu myndarinnar. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. HALDIÐ TIL HAGA MYND/ANNA MARÍA SIGURJÓNSDÓTTIR ÖRYGGISMÁL Þrjár aurskriður féllu með fárra klukkutíma milli- bili á síðasta sólarhring og beina Almannavarnir því til fólks að huga vel að aðstæðum. Almannavarnir geta þess að til fjalla á norðausturfjórðungi landsins er víða enn grunnt niður á frosna jörð. Á þessu svæði voru og eru jafnvel enn mikil snjóa- lög sem leysir nú hratt. Í ofaná- lag hefur verið töluverð úrkoma á þessu svæði síðustu daga. Við slíkar aðstæður verður þunnt og frostlaust jarðvegslag auðveld- lega vatnsósa og getur skriðið af stað undan eigin þunga. Því telja Almannavarnir það viðbúið að fleiri skriður geti fall- ið næstu daga á svæðum þar sem aðstæður eru með þessum hætti. - shá Þrjár skriður á stuttum tíma: Varað sterklega við aurskriðum DÓMSMÁL Konu voru dæmdar 250.000 krónur í miskabætur í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, en hún var handjárnuð í tæpa klukkustund á meðan húsleit var gerð á heimili hennar. Leitin tengdist henni aðeins óbeint, en unnusti konunnar hafði tengsl við bifhjólasamtökin Fáfni og síðar Vítisengla. Lögregla hafði húsleitar- heimild vegna rannsóknar á fjölda alvarlegra ofbeldisbrota og var talið brýnt að framkvæma leit á heimilum og dvalarstöðum hinna grunuðu. Í dómi segir að konan hafi að ósekju verið svipt frelsi sínu og því var fallist á að greiða henni bætur, en hún hafði farið fram á 600.000 krónur. - shá Fékk 250.000 kall: Saklaus í járn og fékk bætur HEILBRIGÐISMÁL Undanfarin ár hefur það færst í vöxt að for- eldrar taki það sjálfir að sér að panta bólusetningu fyrir börnin sín gegn hlaupabólu. Á hverju ári veikist fjöldi barna hér á landi af hlaupabólu og er talið að næstum allir fái hana fyrir fullorðinsald- ur. Það getur tekið allt að viku til tíu daga fyrir sjúkdóminn að ganga yfir og geta mikil óþægindi fylgt honum. Talið er að árlega leggist um nítján manns inn á spítala vegna hlaupabólu. Lang- flestir þeirra eru börn. Síðastliðin tíu ár hefur sér- stakt bóluefni verið fáanlegt gegn hlaupabólu hér á landi. Börn eru ekki bólusett sjálfkrafa í ung- barnaeftirliti hjá heilsugæsl- unum heldur þurfa foreldrarnir að panta bólusetningu fyrir þau. Bólu efnið heitir varilrix og kost- ar skammturinn um 8.000 krónur. Bólusetja þarf hvert barn tvisvar. Talið er að í einhverjum til- vikum greini heimilislæknar foreldrum frá þessu úrræði í bólusetningu, því vitanlega er bannað að auglýsa lyf á Íslandi. Þannig skrifi heimilislæknarnir út lyfin, foreldrar sæki þau í apó- tek og þurfa svo að koma aftur til heimilis læknisins með bóluefnið og láta bólusetja börnin. Einnig eru dæmi þess að foreldrar stofni spjallþræði á heimasíðum og ráð- leggi öðrum foreldrum að bólu- setja börnin sín. Þar til fyrir þremur árum voru yfirleitt seldir um 50 skammtar af bóluefninu á ári en síðastliðin þrjú ár hefur salan aukist. Þann- ig seldust í fyrra 220 skammtar af bóluefninu. Lyfið er hins vegar ófáanlegt í dag og hefur verið um nokkra hríð. Þau börn sem fá bóluefnið eru ekki líkleg til þess að fá hlaupa- bólu og ef til þess kemur eru ein- kennin oftast mjög væg. Í samtali við fréttastofu 365 sagði Þórólfur Guðnason, yfirlæknir hjá Landlæknis- embættinu, það hafa verið skoðað hvort hefja ætti almenna bólusetningu við hlaupabólu hér á landi. Samkvæmt rannsókn sem unnin var við hagfræði- deild HÍ og birt árið 2009 kostaði hlaupabóla samfélagið 290 milljónir árið 2009. Þar skipti mestu vinnutap aðstand- enda barna með hlaupabólu. Kostnaður við að bólusetja hvert barn tvisvar hefði verið 156 milljónir og því er ljóst að þjóðhags legur sparnaður hlytist af bólu setningunni. olof@frettabladid.is lvp@stod2.is Ódýrara að hefja al- menna bólusetningu Foreldrar sjá sjálfir um að láta bólusetja börnin sín. Yfirlæknir hjá Landlæknis- embætti telur þjóðhagslegan sparnað af því að hefja almenna bólusetningu við hlaupabólu. Bólusetningarlyfið varilrix er ófáanlegt í apótekum í dag. MEÐ HLAUPA- BÓLUNA Bóluefnið dregur mjög úr líkunum á að barn fái hlaupabóluna. Ef þau hins vegar fá hana eru einkennin mjög væg. ERLEND MYND ÚR SAFNI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.