Fréttablaðið - 30.05.2013, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 30.05.2013, Blaðsíða 14
30. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 14 RANGÁRÞING EYSTRA „Okkur finnst verslunarkostirnir hér á svæðinu svolítið dýrir og dreymir alltaf um lágvöruverðsverslun,“ segir Elvar Eyvindsson, fulltrúi Sjálfstæðis- flokks, sem lagði til í sveitar stjórn Rangárþings eystra að byggt yrði nýtt hús til að liðka fyrir opnun lágvöruverðs verslunar á Hvols- velli. Í tillögu Elv- ars og Krist- ínar Þórðar- dóttur er lagt til að sveitar- félagið kanni „kosti og galla þess að byggja nýtt verslunar- h ú s n æ ð i á heppilegum stað í mið bænum“. Rangárþing eystra keypti Austur veg 4 þar sem Kaupfélag Rangæinga var áður og Kjarval er nú. Reiknað er með að sveitar- stjórnarskrifstofurnar flytji í bygginguna. „Með því að byggja nútíma- legt og einfalt verslunarhúsnæði á besta stað má ætla að trompum fjölgi á höndum heimamanna hvað óskir um lágvöruverðs verslun varðar,“ segja Elvar og Kristín og taka fram að sveitarfélagið þurfi ekki að eiga og reka húsnæðið. Það gæti verið í höndum annarra. Verslunin Kjarval er eina matvöruverslunin á Hvolsvelli. Rangæingar hafa lengi reynt að fá einhverja af lágvöruverðs- verslununum á svæðið. Elvar segir Kjarval dýra verslun. „Ég giska á að við séum að borga tuttugu til þrjátíu pró- sent umfram, þannig að þetta er gríðar legt kjaramál,“ segir Elvar, sem undirstrikar að aðeins sé stungið upp á að málið verði kann- að. Ekki verði farið af stað með framkvæmdir nema verslun fáist í húsnæðið. Ísólfur Gylfi Pálmason sveitar- stjóri segir að í langan tíma hafi verið rætt við þá sem reki Bónus, Nettó og Krónuna um að koma á Hvolsvöll. Í því felist gífurlegir hagsmunir fyrir heimamenn. „En við sjáum það frekar fyrir okkur í þessu verslunarhúsnæði sem við vorum að kaupa heldur en að byggja sérstaklega yfir lág- verðsverslun. Það kostar varla undir 300 milljónum króna að byggja slíkt hús. Það er allt of mikið,“ segir sveitarstjórinn. Hluti tillögu Elvars og Kristínar snýst um að Sögusetrið fái núver- andi húsnæði Kjarvals. Sögusetrið líði fyrir staðsetningu sína nokkur hundruð metra frá hringveginum. „Það kemur gríðarlegur ferða- mannafjöldi í bæinn og það eru feikileg tækifæri fyrir stað eins og Sögusetrið ef það eru hundr- að þúsund manns fyrir utan gluggann,“ segir Elvar Eyvinds- son. gar@frettabladid.is Vilja að sveitarfélagið byggi undir lágvöruverðsverslun Sjálfstæðismenn í Rangárþingi eystra vilja að sveitarfélagið gangist fyrir byggingu húss fyrir lágvöruverðs- verslun á Hvolsvelli. Sveitarstjórinn segir lengi hafa verið reynt að fá slíka verslun í bæinn. Það sé mikilvægt. HVOLSVÖLLUR Rangæingar telja stóraukinn fjölda ferðamanna sem renna eftir hringveginum um Hvolsvöll geta verið grundvöll fyrir lágvöruverðs- verslun í bænum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ELVAR EYVINDSSON Það kostar varla undir 300 milljónum króna að byggja slíkt hús. Það er allt of mikið. Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra. SVÍÞJÓÐ Nemendur og börn sem verða fyrir alvarlegu ofbeldi ættu að fá bætur hvort sem skóla- yfirvöld hafa brugðist við einelt- inu eða ekki. Að barnið skuli hafa orðið fyrir einelti í skóla sem því ber skylda til að vera í er nógu alvarlegt. Þetta segir fyrrverandi umboðsmaður barna- og nemenda í Svíþjóð, Lars Arrhenius, í við- tali við Dagens Nyheter. Sé farið í aðgerðir gegn einelti í skóla er sjaldan krafist skaða- bóta. - ibs Krefst breytinga á lögum: Vill að börn fái skaðabætur vegna eineltis EFNAHAGSMÁL Ársverðbólgan mælist 3,3% í maí og er óbreytt frá fyrri mánuði. Þetta er í sam- ræmi við allar spár sérfræðinga. Á vefsíðu Hagstofunnar segir að vísitala neysluverðs miðað við verðlag í maí 2013 sé 411,3 stig og hafi lækkað um 0,05% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 391,3 stig og lækkaði um 0,18% frá apríl. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,3% og vísitalan án húsnæðis um 3,4%. Undanfarna þrjá mán- uði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,3% sem jafngildir 1,4% verðbólgu á ári (0,6% verð- hjöðnun á ári fyrir vísitöluna án húsnæðis). Ársverðbólgan mælist 3,3%: Engin breyting á verðbólgu Öll brúðhjón fá glæsilega svuntu með nöfnum sínum og brúðkaupsdegi ísaumuðum. Íslensk kennslubók í matreiðslu fylgir! Gildir um hrærivélar. FOR THE WAY IT´S MADE Nýjar vörur Þau brúðhjón sem koma við í verslun okkar og skrá sig á brúðargjafalista fá nöfnin sín sjáfkrafa skráð í pott. Í lok sumars verða heppin brúðhjón dregin út og hljóta þau að launum nýju KitchenAid matvinnsluvélina, nýju KitchenAid brauðristina, nýja KitchenAid blandarann og nýja KitchenAid töfrasprotann, samtals að verðmæti um 200 þúsund krónur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.