Fréttablaðið - 30.05.2013, Side 10

Fréttablaðið - 30.05.2013, Side 10
30. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 NISSAN MURANO Nýskr. 06/09, ekinn 57 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.380 þús. Rnr.200291. HYUNDAI iX35 Nýskr. 06/12, ekinn 26 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.890 þús. Rnr.120116, Frábært úrval af notuðum bílum á frábæru verði Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is SUBARU LEGACY OUTBACK LUX Nýskr. 04/11, ekinn 111 þús. km. bensín, sjálfskiptur. Rnr. 190930 CHEVROLET MALIBU Nýskr. 11/12, ekinn 4 þús km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.690 þús. Rnr.270297. NISSAN PATROL LE Nýskr. 07/09, ekinn 75 þús km. dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 5.290 þús. Rnr.141560. NISSAN JUKE ACENTA Nýskr. 01/12, ekinn 5 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 3.390 þús. Rnr.280703. PEUGEOT 208 Nýskr. 11/12, ekinn 8 þús. km. bensín, beinskiptur. VERÐ kr. 2.690 þús. Rnr.130544. Aðeins kr. 3.980 þús. Tökum notaðan uppí notaðan! Erum í samningsstuði! MENNTAMÁL „Mikill vilji virðist vera alls staðar til að gera betur og það er vel,“ segir Herdís Sólborg Haraldsdóttir, höfundur skýrslu um stöðu jafnréttis innan háskólanna á Íslandi. Skýrslan, sem er ítarleg úttekt á þáttum jafn- réttis, greinir þær jafnréttisáætlanir sem unnið er eftir hverju sinni. Einnig skoðar Herdís kynjahlutföll í stjórnum skólanna, deildum þeirra og aðsóknartölum. Vakin er sér- stök athygli á brottfalli karla úr háskólanámi og þrátt fyrir mik- inn fjölda útskrifaðra kvenna, hversu fáar skili sér aftur í stöður innan akademíunnar. „Það vakti fyrst og fremst athygli mína að í Háskólanum í Reykjavík er þessu öfugt farið, þar hallar frekar á konur í námi. Til þess að jafna hlutföllin hefur skólinn á undan- förnum árum gripið til sértækra aðgerða og náð að minnka þann halla töluvert. Það sýnir að lítið mál er að snúa þróuninni til betri vegar ef viljinn er fyrir hendi,“ segir Herdís. Enginn skólanna sex vinnur fullkomlega eftir eigin jafnréttisáætlun og skrifar Herdís það helst á tímaleysi. Háskóli Íslands stendur best hvað þetta varðar. Þeir skólar sem stóðu aftast voru Lista- háskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst. Það má rekja til þess að engir jafnréttisfulltrúar eru starf- andi við skólann og því enginn sem fylgir áætlunum eftir. - mlþ Það sýnir að lítið mál er að snúa þróuninni til betri vegar ef viljinn er fyrir hendi. Á AÐ STARFRÆKJA ÁLVER Í HELGUVÍK? Helguvík er skammt norðan við Keflavík í Reykjanesbæ og hefur verið rætt um að Norðurál fái að starf- rækja þar álver. Síðan 2008 hafa verið framkvæmdir á svæðinu og nú þegar er búðið að reisa stálvirkið sem hugsanlega mun einhverntíma hýsa kerskála álvers. birgirh@frettabladid.is Guðmundur Hörður Guðmundsson formaður Landverndar vill ekki að í Helguvík verði starf- rækt álver. Hann vísar í könnun sem unnin var fyrir Landvernd í vor þar sem rúmlega helmingur aðspurðra sagðist andvígur fleiri álverum. „RÚV hefur flutt fréttir af því að álverin greiði lítið í sameiginlega sjóði þjóðarinnar,“ segir hann jafnframt og bendir á að á milli 70% til 80% af fram- leiddri raforku hér á landi séu seld álverum og að því geti fylgt efnahagsleg áhætta fyrir Ísland. „Álver nota miklu meiri orku en önnur iðnfyrirtæki og nú þegar hagkvæmustu virkjanakostirnir hafa þegar verið nýttir verður alltaf erfiðara og erfiðara að útvega þá miklu orku sem álver þarfnast.“ „Orkufyrirtæki í eigu almenn- ings hafa skuld- sett sig úr hófi til að reisa virkjanir fyrir álver. Það hefur meðal annars leitt til hækk- ana á verði á rafmagni og hita til almennings og aukið þrýst- ing á krónuna. [...] Horfur á álmörkuðum eru dökkar. [...] Það eru slæmar fréttir fyrir þjóðar- búið vegna þess að verð á orku til álvera hér á landi er að stórum hluta tengt álverði.“ HORFURNAR ERU DÖKKAR Elín Hirst alþingismaður er fylgjandi byggingu álvers og kísilverksmiðju í Helguvík. „Við verðum að auka verðmæta- sköpun og nýta okkar einstaka orkuauð í þágu betri lífskjara og meiri velsældar í landinu,“ segir hún í svari til blaðsins. „Ég er mjög ánægð með þá stefnu ríkis- stjórnarinnar að rammaáætlun verði aftur eins og var þegar hún kom úr sérfræðinganefndinni, sem þýðir að góðir virkjanakostir standa til boða.“ Hún vill þó gjarnan að sjóndeildarhringurinn verði breikkaður svo að stóriðja sitji ekki ein að orkunni í fram- tíðinni. Þá leggur hún áherslu á að nýting auðlinda verði að vera sjálfbær svo að þörfum nútímans verði mætt án þess að skerða möguleika komandi kynslóða. AUKUM VERÐMÆTASKÖPUN „Við verðum að auka verðmæta- sköpun og nýta okkar einstaka orkuauð í þágu betri lífskjara og meiri velsældar í landinu. [...] Ég er mjög ánægð með þá stefnu ríkisstjórnar- innar að ramma- áætlun verði aftur eins og var þegar hún kom úr sérfræðinga- nefndinni, sem þýðir að góðir virkjanakostir standa til boða.“ Ráðherra kannar álversuppbyggingu Ragnheiður Elín Árnadóttir, nýr iðnaðarráðherra, hefur beðið starfsfólk sitt um að kanna hvað kunni að standa í vegi fyrir því að álver hefji starfsemi í Helguvík. Skiptar skoðanir eru um áframhaldandi uppbyggingu stóriðju hér á landi. Skýrsla um jafnrétti í háskólum gefin út af menntamálaráðuneytinu: Mikill vilji en minni eftirfylgni SKÝRSLA UM JAFNRÉTTI Í HÁSKÓLUM Háskóli Íslands stendur einna best hvað varðar jafnrétti háskólanna á Íslandi. Þó er ýmsu ábótavant þar sem annars staðar. SÝRLAND Uppreisnarherinn í Sýr- landi biðlar til Evrópusambandsins að senda vopn fljótt til sýrlenskra uppreisnarmanna. Stjórnarher Bashar al Assad býr yfir öflugum og nútímalegum vopnum og sækir á í borgarastyrjöldinni. Utanríkisráðherrar ESB fund- uðu á mánudag um áframhald við- skiptaþvingana á Sýrlandi. Ríkin eru klofin í afstöðu sinni til þving- ananna og sagði Guido Wester- welle, utanríkisráðherra Þýska- lands, á dögunum að það yrði erfitt að ná niðurstöðu áður en bannið rynni út á föstudag. Bretar eru hvað harðastir í þeirri afstöðu að bannið eigi að renna út en Austur- ríkismenn eru á öndverðum meiði og segja orðspor sambandsins sem friðarstofnunar í húfi. Í tilkynningu frá uppreisnar- mönnum í Sýrlandi er því beint til Evrópuríkja að orðum verði að fylgja aðgerðir og þau hvött til að senda „sérstök vopn til að verj- ast hörðum árásum gegn varnar- lausum borgurum“. - bþh Uppreisnarmenn í Sýrlandi verjast árásum stjórnarhersins: Biðla til Evrópu um vopn UPPREISNARMENN Biðlað hefur verið til Evrópusambandsins um að vopn verði send til Sýrlands. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.