Fréttablaðið - 30.05.2013, Síða 23
FIMMTUDAGUR 30. maí 2013 | SKOÐUN | 23
Áskorun um styttingu skólagöngu
skaust upp á yfirborðið nýlega. Í
þetta skiptið gerðist það í kjölfar
útgáfu skýrslu samráðsvettvangs
um aukna hagsæld. Þar var lögð
fram tillaga um að stytta skóla-
göngu um tvö ár til að auka fram-
leiðni í skólakerfinu. Því er ekki að
neita að umrædd framleiðni mætti
vera mun betri enda er fimm ára
meðalnámstími til stúdentsprófs
allt of langur tími. Að auki er erfitt
að útskýra af hverju íslenskir nem-
endur eru tveimur árum eldri en
nágrannaþjóðir okkar að loknu
framhaldsskólaprófi. Áskorunin er
því réttmæt.
Það gleymist hins vegar að
árið 2008 voru samþykkt ný lög
fyrir öll skólastigin sem opnuðu
á miklu meiri sveigjanleika fyrir
framhalds skóla, m.a. til að stytta
nám til stúdentsprófs og til að
flétta saman verknáms- og bók-
námsbrautir. Lögin gefa skóla-
meisturum kost á að hanna náms-
leiðir fyrir starfs-, iðn-, list- og
bóknám með sveigjanlegum
fjölda eininga sem ráðuneytið
þyrfti síðan að samþykkja sem
framhalds skólapróf, starfsnáms-
próf eða stúdentspróf.
Lögin frá 2008 byggðu á tíu
punkta samkomulagi þáverandi
menntamálaráðherra, Þorgerð-
ar Katrínar Gunnarsdóttur, og
Kennara sambands Íslands og
mörkuðu stefnu um breytingar og
uppbyggingu skólastarfs. Meðal
annars var námsskrám breytt
þannig að næstum heil önn af námi
framhaldsskólans færðist niður í
grunnskólann og tímaskipulagi var
breytt í framhaldsskólum. Náms-
lega og lagalega er stytting fram-
haldsskólans um eitt ár því tilbúin.
Kaflar IV og V í lögum sem kveða
á um þennan sveigjanleika hafa
því miður ekki enn tekið gildi því
gildistöku þeirra var frestað af
fráfarandi ríkisstjórn til ársins
2015.
70% á þremur árum
Í kjölfar lagabreytinganna var
ákveðið að Kvennaskólinn í
Reykjavík yrði þróunarskóli. Síð-
ustu fjögur árin hefur Kvennó
boðið upp á val um þriggja eða
fjögurra ára nám til stúdents-
prófs. Í fyrra lauk fyrsti árgangur-
inn námi í nýja kerfinu þar sem
um 60% hópsins luku stúdents-
prófi á þremur árum. Í ár verður
þetta hlutfall um 70%. Í úttekt
um þróunarstarf Kvennaskólans
segja nemendur þriggja ára námið
vera mikla vinnu og hafa þeir
með athugasemdum sínum stutt
skólann í að aðlaga, bæta og breyta
skipulagi námsins. Á öllum stigum
geta nemendur valið um hraða í
náminu og útskrifast á þremur,
þremur og hálfu eða fjórum árum.
Nemendur segja sumir að þeir
græði heilt ár og velja að ferðast,
læra tungumál erlendis eða
kynnast störfum. Aðrir fara beint í
háskóla. Eða eins og einn nemandi
Kvennaskólans sagði: „Það er frá-
bært að geta valið.“
Nú þegar bjóða margir skólar
upp á val í samræmi við nýju lögin
en aðrir bíða eftir að lögin taki að
fullu gildi. Fjölbrautaskólar geta
boðið upp á nám á meiri hraða
en nýju lögin gera þeim kleift að
gera valið raunhæfara. Mennta-
skóli Borgarfjarðar býður upp á
þriggja ára nám, Mennta skólinn
við Hamrahlíð og Hraðbraut hafa
boðið upp á nám á tveimur til
þremur árum.
Enn aðrir skólar sjá jafnvel fyrir
sér að halda áfram með fjögurra
ára brautir og bjóða kannski upp á
val um fornám fyrir háskólanám á
fjórða ári. Menntaskólinn á Akur-
eyri er að innleiða spennandi nám-
skrá sem tengir saman ólík fög í
verkefnavinnu á fyrsta ári sem
veitir nemendum tækifæri til að
kynnast ólíkum námskostum og
velja réttar brautir. MA leggur sér-
staka áherslu á að bjóða velkomna
grunnskólanemendur úr 9. bekk
sem treysta sér til að fara hraðar í
gegnum skólagönguna.
Það er mikilvægt í umræðunni
um styttra nám að horfa til þeirra
breytinga sem eru í farvegi. Við
megum ekki gleyma að á Íslandi
fara 96% grunnskólanema í fram-
haldsskóla og því grundvallar-
atriði að í boði séu margar leiðir
og á mismunandi hraða. Aukin
framleiðni hlýtur að vera afleiðing
af því að nemandi finni sér nám
við hæfi. Fleiri þættir skipta auk
þess miklu máli varðandi fram-
leiðni í skólakerfinu. Það þarf að
auka möguleika sterkra nemenda
sem virðast ekki, í samanburði
við aðrar þjóðir, fá nægilegan
stuðning. Stjórnvöld verða að fara í
markvissar aðgerðir til að minnka
brottfall. Við verðum að rannsaka
hvaða nemendur eru fimm ár eða
fleiri í framhaldsskóla og hvernig
við getum stutt þá í námi.
Valið er lykilatriði
Valkostir og hugmyndir skóla-
meistara eru fjölmargar. Tveggja
og þriggja ára námsbrautir verða
að vera valkostur í fleiri skólum.
Fleiri valkostir auka líkur á að
nemendur velji nám við hæfi,
hætti síður námi og skapi þar með
ný tækifæri í atvinnulífinu. Því
er mikilvægt að ný ríkisstjórn
í samstarfi við kennarasamtök
og atvinnulífið taki áskorun um
að hraða innleiðingu laganna frá
2008. Öflugt menntakerfi mun
skila okkur öflugu atvinnulífi.
Aukin framleiðni
hlýtur að vera
afleiðing af því að nemandi
finni sér nám við hæfi.
Fleiri þættir skipta auk
þess miklu máli varðandi
framleiðni í skólakerfinu.
Það þarf að auka möguleika
sterkra nemenda sem
virðast ekki, í samanburði
við aðrar þjóðir, fá nægi-
legan stuðning.
„Það er frábært að geta valið“
Í DAG
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
borgarfulltrúi
Meðferð fl óttafólks
Nú hefur ekki verið nein flóðbylgja
flóttamanna til Íslands á undan-
förnum áratug. Það hefur hins vegar
verið flóðbylgja annarra innflytjenda
til landsins. Frá 2001 til 2013 fjölgaði
innflytjendum til Íslands um nálægt
20 þúsund manns, úr rúmlega 10
þúsund í 29 þúsund. Flestir koma frá
löndum ESB, enda hafa þeir rétt til
að setjast hér að og leita sér vinnu.
Þetta voru um 1500 manns á ári
að meðaltali sem þannig komu.
Hvers vegna er þá alltaf verið að
hundelta þessa fáu sem hingað koma
sem flóttamenn? Og senda grátandi
til baka.
http://blog.pressan.is
Stefán Ólafsson
Einelti er
samfélagsvandamál
Á Íslandi hefur umræðan um
einelti einskorðast við einelti meðal
barna í skólum og starfmanna ríkis-
stofnana. Lítil umræða hefur farið
fram um einelti sem kúgandi afl í
samfélaginu þar sem reynt er að
halda fólki niðri með ósannindum
og árásum. Í rannsókn sem gerð
hefur verið á hópi kennara kemur
í ljós að viðvarandi átök eiga sér
stað innan skólans þar sem ákveðnir
hópar eða einstaklingar taka að sér
að stjórna öðrum. Stýringin birtist
í ýmsum myndum s.s. í þöggun,
bælingu, átökum, upplifun fólks á
valdaleysi innan stofnunarinnar og
upplifun á því að sérfræðiþekking og
sérhæfing þeirra væri vannýtt (Arna
H. Jónsdóttir, 2009). Engin ástæða
er til að ætla að þetta sé öðruvísi í
öðrum starfsstéttum.
http://blog.pressan.is
Inga Sigrún Atladóttir
AF NETINU
Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun . i s
Með Borgun tekur þú
við öllum kortum
– hvar og hvenær sem er
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Loksins virka
debetkort á netinu
Það eru álíka mörg debet- og kreditkort í umferð á Íslandi.
Tekur þín vefverslun við öllum kortum?
Fáðu frekari upplýsingar á www.borgun.is eða í síma 560 1600