Fréttablaðið - 30.05.2013, Page 28
30. maí 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 28TÍMAMÓT
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
INGÓLFUR BJARNASON
frá Hlemmiskeiði,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Ási í
Hveragerði sunnudaginn 19. maí verður
jarðsunginn frá Skálholtskirkju laugardaginn
1. júní kl. 11.00. Blóm og kransar eru
afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans
láti líknarfélög njóta þess.
Ómar Örn Ingólfsson Rósa Guðný Bragadóttir
Inga Birna Ingólfsdóttir Árni Svavarsson
afa- og langafabörn.
70 ára afmæli
ÁRNÝ A. RUNÓLFSDÓTTIR
hómópati, Kristnibraut 67,
er 70 ára í dag 30. maí.
Af því tilefni sendum við henni
haming juóskir og megi gleðin
fylg ja henni hvert spor.
Kveðja,
Sigurður, börn og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGRÚN ÞURÍÐUR BJARNADÓTTIR
lést á Hrafnistu í Kópavogi mánudaginn
27. maí. Útför hennar fer fram frá Áskirkju
fimmtudaginn 6. júní kl. 15.00. Blóm og
kransar afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á minningarsjóð
Hrafnistu í Kópavogi.
Þórunn Einarsdóttir Kelley Richard Kelley
Halldór Einarsson Esther Magnúsdóttir
Elín Einarsdóttir Jón Gunnlaugsson
Ingibjörg Einarsdóttir
Birna Einarsdóttir Guðmundur Þorsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur minn, bróðir okkar,
frændi og mágur,
GUNNAR GUNNARSSON
stýrimaður og skipstjóri frá Dalvík,
lést á hafi úti 12. desember 2012 og fannst
lík hans í Kaldbaksvík á Ströndum 17. maí
sl. Útför hans fer fram frá Dalvíkurkirkju
laugardaginn 1. júní 2013 kl. 13.30.
Ásta Jónína Sveinbjörnsdóttir
Valgerður Gunnarsdóttir Örlygur Hnefill Jónsson
Jóhann Gunnarsson María Steinsdóttir
Hulda Sveinbjörg Gunnarsdóttir Gestur Traustason
Edda Gunnarsdóttir Örn Smárason
og frændsystkin.
Fjölbreytt úrval legsteina
Frí áletrun og uppsetning
Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88
Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum)
Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði
www.granithollin.is
Sími 555 38 88
Ráðstefnan TEDx Reykjavík verður
haldin í þriðja sinn á mánudag. Boðið er
upp á fyrirlestra þar sem bæði íslensk-
ir og erlendir fyrirlesara ræða hugðar-
efni sín.
Sigríður Heimisdóttur vöruhönnuður,
Sigga Heimis, er meðal fyrirlesara og
ætlar að ræða félagslega ábyrgð hönn-
uða.
„Ég er ákaflega áhugasöm um sam-
band félagslegrar ábyrgðar og hönn-
unar og það getur verið margs konar,“
segir Sigga um erindið. „Til dæmis að
vinna með fólki í þróunarlöndunum og
hjálpa þeim að búa til virðisaukandi
vörur í heimalandinu. Annað er að
vekja athygli á ýmiss konar málefnum.
Mér finnst spennandi að hönnun geti
vakið fólk til umhugsunar um málefni
sem þykja kannski ekki sérstaklega
spennandi eða „heit“.
Í erindi sínu mun Sigga aðallega fjalla
um verkefni sem hún hefur unnið með
Corning Museum of Glass í Bandaríkj-
unum, stærsta glerlistasafni í heimi.
„Ég hef unnið með þeim líffæri
mannslíkamans úr gleri í verkefni sem
hefur nú staðið í rúm fimm ár. Þarna
erum við að vekja athygli á líffæragjöf
og umræðum um hana. Það er mikill
skortur á líffærum í heiminum í dag og
og í þróunarlöndum viðgengst hræði-
legt svartamarkaðsbrask. Vonandi
vekur þetta fólk til umhugsunar um að
gerast líffæragjafar.“
Sjálf segist Sigga hafa vaknað til vit-
undar um þessi mál þegar hún vann
hjá Ikea og fór reglulega í vinnuferðir
til Asíu, þar sem „heilu þorpin voru að
vinna við að framleiða eina vöru sem
maður skissaði í flýti einn daginn. Þá
áttaði ég mig hinni félagslegu hlið og
þeirri ábyrgð sem henni fylgdi.“
Sigga segir brýnt að bæta félags-
legri ábyrgð hönnuða við grunnnám í
hönnun.
„Það er ekki síður mikilvægt að gera
sér grein fyrir afleiðingum og áhrifum
verka sinna en að kunna skil á efni og
formfræði,“ segir hún. „Hönnuðir eiga
ekki að senda frá sér verk sem valda
skaða. Mér finnst enn vanta almenni-
lega meðvitund um þessi mál meðal
hönnuða. En það eru þó ýmis jákvæð
teikn og þetta mun hugsanlega stór-
breytast með næstu kynslóð hönnuða.“
Hönnunarnám er ungt á Íslandi
og umræðan um hinn félagslega þátt
hönnunar ekki langt á veg komin að
mati Siggu. „En hér hafa þó verið
unnin mörg skemmtileg verkefni þar
sem félagsleg ábyrgð er rík. Ég held að
íslenskir hönnuðir gætu orðið sterkir í
þessari deild og skapað sér sérstöðu.“
Sigga telur að umhverfismál séu lík-
lega sá málaflokkur sem hönnuðir eru
mest meðvitaðir um.
Hönnuðir bera ríka
félagslega ábyrgð
Ráðstefnan TEDx Reykjavík verður haldin í þriðja sinn þann 3. júní. Þar verða fl utt erindi
þar sem kynntar verða nýjar hugmyndir og uppgötvanir. Meðal fyrirlesara er Sigríður
Heimisdóttir, sem ætlar að ræða félagslega ábyrgð hönnuða.
SIGRÍÐUR
HEIMISDÓTTIR
„Það er ekki
síður mikil-
vægt að gera
sér grein fyrir
afleiðingum og
áhrifum verka
sinna en að
kunna skil á
efni og form-
fræði.“
Slagorð ráðstefnunnar TEDx Reykjavík er Ljáum góðum hugmyndum vængi. TEDx-
ráðstefna er smærri útgáfa af TED– Ideas worth spreading þar sem fyrirlesarar
hvaðanæva að úr heiminum flytja stutt og hnitmiðuð erindi um allt milli himins
og jarðar. Þau erindi og valin erindi frá TEDx eru birt á TED.com og eru öllum
aðgengileg.
Dæmi um erindi á TEDx Reykjavík:
■ Jón Páll Eyjólfsson, leikstjóri og leikari, fjallar um hvernig við lifum gegnum
tölvur og síma og stjórnum eigin upplifunum.
■ Úlfur Hansson tónlistarmaður mun kynna og leika á rafhörpu sem hann vann
nýlega Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir.
■ John Nicholls, breskur skólastjóri og alþjóðlegur ráðgjafi um virkni og starfs-
ánægju starfsmanna í barnaskólum, fjallar um hvað má gera til að hámarka starfs-
ánægju starfsfólks í skólum.
■ Sigríður María Egilsdóttir, nýlega valin ræðumaður ársins á Morfís, flytur erindi
um baráttuna fyrir jafnrétti.
Ráðstefnan verður haldin í húsakynnum Arion-banka milli
klukkan 13 og 17.30. Nánari upplýsingar á tedxreykjavik.is.
Að ljá góðum hugmyndum vængi
„Það hefur meðal annars leitt til auk-
innar áherslu á framleiðslu á heima-
markaði. Það stuðlar að aukinni atvinnu
og verðmætasköpun, sem er auðvitað
jákvætt fyrir viðkomandi land. En þetta
er bara ein hlið af mörgum. Það eru
margir félagslegir þættir sem mætti
fjalla meira um. Hönnun getur verið til-
valinn kveikiþráður í þeirri umræðu.“
bergsteinn@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1431 Jóhanna af Örk er brennd á báli í Rúðuborg í Frakklandi.
1829 Jónas Hallgrímsson flytur prófræðu sína í Bessastaða-
kirkju.
1851 Jón Sigurðsson er kosinn forseti Kaupmannahafnardeildar
Hins íslenska bókmenntafélags og gegnir þeirri stöðu til dauða-
dags.
1889 Hallgrímur Sveinsson er vígður biskup.
1919 Fyrsti íslenski ríkisráðsfundurinn er haldinn í Fredens-
borgarhöll í Danmörku. Fyrsti slíkur fundur hérlendis er haldinn
tveimur árum síðar.
1977 Kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Blóðrautt sólarlag, er
frumsýnd og veldur deilum.
„Fólk á okkar aldri á alla hluti. Það mundi veita okkur
mikla gleði ef fólk legði fé í söfnunarsjóð vegna kaupa
á mikilvægu lækningatæki á Landspítalann sem heitir
aðgerðarþjarki, í stað þess að gefa okkur gjafir,“ segir
Óli H. Þórðarson, fyrrverandi formaður Umferð-
arráðs, sem varð sjötugur 5. febrúar. Konan hans,
Þuríður A. Steingrímsdóttir verslunarmaður, nær
þeim áfanga 28. júlí og þau ætla að halda upp á afmæl-
in á gullbrúðkaups afmælinu sínu 1. júní. Þá vonast
þau til að sjá sem flesta ættingja og vini og eiga með
þeim ánægjulega kvöldstund.
„Aðgerðarþjarkinn sem Landspítalinn er að safna
fyrir er byltingarkennt tæki, nokkurs konar róbót
sem nýtist til margvíslegra skurðaðgerða,“ segir Óli.
„Aðgerðin verður inngripsminni en ella, bati er skjót-
ari og hægt er að hlífa betur nærliggjandi líffærum og
viðkvæmri starfsemi en með venjulegri skurðaðgerð,“
lýsir hann og tekur fram að söfnunarreikningurinn er
númer 0515-14-408005 og kennitalan 470313-1370.
- gun
Lækningatæki í stað gjafa
Hjónin Óli H. Þórðarson og Þuríður A. Steingrímsdóttir fagna sjötugsafmælum og gull-
brúðkaupi 1. júní. Þau beina gjöfum í kaup á lækningatæki.
GULLBRÚÐKAUPSPARIÐ Þuríður og Óli H. vilja láta gott af sér leiða á
merkum tímamótum.