Fréttablaðið - 30.05.2013, Page 52

Fréttablaðið - 30.05.2013, Page 52
30. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40 Úti á sjó - KK og Maggi Eiríks Everything Everywhere All the Time - Bedroom Community Modern Vampires of the City - Vampire Weekend Í spilaranum TÓNNINN GEFINN Kjartan Guðmundsson Þegar ég var ungur var lífið einfaldara á flestan hátt, til dæmis þegar kom að tónleikum erlendra listamanna hér á landi. Nánast frá því að ég byrjaði að tala og labba (eða var það öfugt?) var reglan langt frá því flókin: Ef ein- hver útlendingur hélt hér tónleika, burtséð frá því hver það var og hvort ég fílaði viðkomandi eður ei, var ég mættur í biðröðina (í minningunni var alltaf grenjandi rigning í þessum biðröðum, ef það myndaðist þá biðröð yfir höfuð, en líklega er um að kenna þeirri ósjálfráðu tilhneigingu heilans að gera meira úr slíkum liðnum atburðum en efni standa til) til að kaupa miða. Hverjir einustu hljóm- leikar voru heimssögulegur viðburður í augum ungs tónlistarnörds, hvort sem það voru A-Ha, Kiss, The Smithereens, The Christians, Meat Loaf, Simply Red eða The Men They Couldn‘t Hang, og ég undirbjó mig vandlega fyrir þá alla. Svo gerðist það upp úr miðjum tíunda áratuginn að heimsins frægustu bönd og tónlistarmenn (til þess að gera) hófu að streyma unnvörpum til landsins til tónleikahalds og áhorfendur, þar á meðal ég, gátu leyft sér að gerast vandlátir á framboðið. Þessi þróun ágerðist allt fram að efnahags- hruni, en í kjölfar þess leiðindarugls reyndist það tónleikahöldurum nánast ómögulegt að gera áætlanir um nokkurn skapaðan hlut því téð plön fóru svo auðvitað beinustu leið út í bláinn þegar hin grútmáttlausa íslenska króna hoppaði út og suður og norður og niður. Í hönd fór afturhvarf til unglingsáranna og það var í raun ekki alslæmt ástand. Eins skemmtilegt og það hafði verið að geta valið úr gæða- tónleikum var líka dásamlega nostalgískt að verða pínulítið spenntur yfir tónleikum með Whitesnake, John Fogerty og Jethro Tull, eingöngu vegna vitneskjunnar um að fátt annað yrði í boði næstu vikur, mánuði eða ár (að undanskildum hátíðum á borð við Iceland Airwaves sem einbeitir sér fyrst og fremst að listamönnum sem eiga eftir að meika það almennilega). En nú virðist enn og aftur vera að rofa til. Þótt flestir af þeim mörgu listamönnum sem sækja landið heim í sumar séu í eldri kantinum fáum við líka nokkra unga og ferska, til dæmis enska rapparann Tinie Tempah og hinn sjóðheita Frank Ocean. Sá síðarnefndi var eflaust efstur á tón- leika-óskalista mjög margra og ber að fagna komu hans sérstaklega, eins og áhugi íslenskrar alþýðu sýnir. Sjálfur legg ég til að til að gæta jafnvægis verði hinn Ocean-inn, eitíshetjan Billy, líka fluttur inn en allt er þetta auð- vitað hið besta mál og verður vonandi framhald á. Að minnsta kosti fram að næsta fjárhagslega áfalli þjóðarinnar. Allt fram streymir… ...Like Clockwork er fyrsta plata bandarísku gítarrokkaranna í Queens of the Stone Age í sex ár, eða síðan Era Vulgaris kom út. Hún er jafnframt sú fyrsta með bassaleikaranum Michael Shuman og hljómborðs- og gítarleikaran- um Dean Fertita, en þeir spiluðu fyrst með sveitinni á tónleikaferð til að fylgja Era Vulgaris eftir. Upptökur á … Like Clockwork, sem kemur út í næstu viku, hóf- ust í nóvember 2011. Upptökurnar gengu ekki skammlaust fyrir sig því trommarinn frá árinu 2002, Joey Castillo, sagði skilið við bandið og til að hlaupa í skarðið var fenginn sjálfur Dave Grohl, sem trommaði einmitt af mikl- um þrótti á Songs for the Deaf, þriðju plötu sveitarinnar. Grohl er reyndar ekki eini trommar- inn á plötunni því Castillo kemur einnig við sögu, rétt eins og Jon Theodore, sem mun spila með Queens of the Stone Age á kom- andi tónleikaferð. Fyrir upptökurnar var hóað í gamla vini, söngvarann Mark Lanegan úr Screaming Trees sem hefur áður starfað með bandinu og fyrrverandi bassa- leikarann Nick Oliveri. Óvæntur gestur var Sir Elton John, sem hringdi í Homme og spurði hvort hann vildi ekki starfa með alvöru drottningu. Auk þess lögðu Trent Reznor, Alex Turner úr Arctic Monkeys og Jake Shears úr Scis- sor Sisters sitt af mörkum. „Fyrir allt það sem gekk ekki upp gekk eitthvað annað upp í staðinn,“ sagði forsprakkinn Josh Homme um upptökurnar. „Einn daginn ertu í partíi með trommaranum þínum til tíu ára en þann næsta mætir Elton John á svæðið.“ Queens of the Stone Age leyfði aðdáendum sínum að hlusta á nýju plötuna á iTunes fyrr í vikunni og hafa undirtektirnar verið góðar. Smáskífulaginu My God Is The Sun hefur verið vel tekið og fór það til að mynda beint á topp vin- sældalista X-ins 977 skömmu eftir útgáfu. Fáir dómar hafa birst um plöt- una en vefsíðan All Music er yfir Gamlir og nýir vinir lögðu sitt af mörkum Fyrsta plata rokkaranna í Queens of the Stone Age í sex ár kemur út eft ir helgi. Á TÓNLEIKUM Josh Homme á tónleikum Queens of the Stone Age í Los Angeles fyrir skömmu. NORDICPHOTOS/GETTY Queens of the Stone Age var stofnuð árið 1996 upp úr fyrri hljómsveit Josh Homme, Kyuss. Sveitin átti upphaflega að heita Gamma Ray en varð að breyta nafninu sínu vegna þess að þýsk hljómsveit með sama nafni hótaði málshöfðun. ➜ Átti að heita Gamma Ray Queens of the Stone Age spilaði í Egilshöll árið 2005 ásamt Foo Fighters. 2005 Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/ Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is. LAGALISTINN TÓNLISTINN Sæti Flytjandi Lag 1 Daft Punk / Pharrell Get Lucky 2 Justin Timberlake Mirrors 3 Pink / Nate Ruess Just Give Me a Reason 4 Robin Thicke Blurred Lines 5 Valdimar Beðið eftir skömminni 6 Emmelie de Forest Only Teardrops 7 Eyþór Ingi Ég á líf 8 Capital Cities Safe and Sound 9 Mammút Salt 10 Macklemore & Ryan Lewis Can’t Hold Us Sæti Flytjandi Plata 1 Ýmsir Eurovision Song Contest 2013: Malmö 2 Daft Punk Random Access Memories 3 KK & Maggi Eiríks Úti á sjó 4 Ýmsir Pottþétt 59 5 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn 6 Ýmsir This Is Icelandic Indie Music 7 Bubbi Morthens Stormurinn 8 Of Monsters and Men My Head Is an Animal 9 Björk Gling gló 10 Ýmsir Tíminn flýgur áfram 23.5.2013 ➜ 29.5.2013 sig hrifin og gefur henni fjórar og hálfa stjörnu af fimm mögu- legum. Fram undan hjá hljóm- sveitinni er spilamennska á hinum ýmsu tónlistarhátíðum í sumar, þar á meðal á Hróarskeldu í Dan- mörku, Benicassim á Spáni og á Lollapalooza í Chicago. freyr@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.