Fréttablaðið - 30.05.2013, Page 59
FIMMTUDAGUR 30. maí 2013 | MENNING | 47
Tónlistarhátíðin Sumarmölin á Drangsnesi
verður haldin í fyrsta sinn í sumar. Hún fer
fram í samkomuhúsinu Baldri 15. júní. Í kjölfar
góðra undirtekta við tónleikaröðinni Mölinni
á Drangsnesi var ákveðið að halda þessa nýju
tónlistarhátíð.
Á Sumarmölinni verður lagt upp með að
skapa fjölskylduvænt andrúmsloft þar sem
ungir og aldnir geta komið saman og notið
þess að horfa á rjóma íslenskra tónlistarmanna
flytja tónlist í fallegu umhverfi. Á fyrstu
Sumar mölina hafa nú boðað komu sína Borko,
Jónas Sigurðsson, Gógó-Píurnar, Hemúllinn,
Nolo, Ojba Rasta og Valdimar.
Hátíðin stendur yfir frá kl. 20 til 00.30 og er
vakin sérstök athygli á því að börn og ungling-
ar undir 16 ára aldri eru velkomin í fylgd með
foreldrum. Að tónleikum loknum verður áfram-
haldandi skemmtun á Malarkaffi þar sem
plötusnúður spilar fyrir dansglaða hátíðargesti.
Miðaverð er 3.900 kr. - fb
Hátíðin Sumarmölin í fyrsta sinn
Tónlistarhátíðin á Drangsnesi verður haldin í fyrsta sinn 15. júní næstkomandi.
OJBA RASTA Hljómsveitin Ojba Rasta spilar á
Sumarmölinni 15. júní. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
70 Drangsnes er þéttbýliskjarni
í Kaldrananeshreppi á Vestfj örðum
sem telur um 70 íbúa.
Helen Mirren, í gervi Bretlands-
drottningar, heimsótti ungan,
breskan dreng sem átti þá ósk
heitasta að hitta höfuð krúnunnar.
Hinn tíu ára gamli drengur hefur
glímt við krabbamein um nokkurt
skeið og ósk-
uðu foreldrar
hans eftir því
að hann fengi
að hitta drottn-
inguna. Hin
raunverulega
drottning hafði
þó ekki tíma en
þess í stað fékk
hann heimsókn
frá leikkonunni.
Mirren, fer með
hlutverk drottn-
ingarinnar um
þessar mundir
í leikritinu The
Audience.
„Hún var í karakter allan tím-
ann meðan á heimsókninni stóð.
Sonur okkar hélt að hún væri hin
raunverulega drottning, og það
dugir okkur,“ sagði faðir drengs-
ins, sem var Mirren óendanlega
þakklátur.
Mirren
heim sótti
veikan dreng
Johnny Depp hefur fengið
heimilis laust fólk til að leika í
sinni nýjustu mynd, Trancend-
ence. Hinn 49 ára leikari sann-
færði þann sem skipaði leikara í
myndina um að ráða tvær heim-
ilislausar manneskjur sem auka-
leikara eftir að hann sá þær á ferli
í Albuquerque í Nýju-Mexíkó.
„Johnny vill alltaf hjálpa til á
tökustað,“ sagði heimildar maður
götublaðsins The Sun.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Depp gefur heimilislausum gaum
því árið 2011 keypti hann hatt af
einum slíkum og bætti þar með við
hattasafn sitt.
Heimilislausir
ráðnir af Depp
JOHNNY DEPP Leikarinn fékk heimilis-
laust fólk til að leika í mynd sinni.
Fimm flytjendur koma fram á tón-
leikunum Pottapopp sem verða
haldnir í gömlu sundhöllinni í
Hafnarfirði á laugardaginn. Þar
koma fram Vök, sigursveit Músík-
tilrauna, Magnús Leifur, áður
kenndur við Úlpu, Sveinn Guð-
mundsson, sem gefur út plötuna
Fyrir herra Spock, MacGyver og
mig í sumar, Fox Train Safari,
sem gefur einnig út plötu í haust,
og jógakennarinn Sólbjört Guð-
mundsdóttir, sem leikur á gong.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis.
Tónleikarnir eru hluti af bæjar-
og menningarhátíðinni Bjartir
dagar sem verður haldin í Hafnar-
firði 30. maí til 2. júní.
Pottapopp í
Hafnarfi rði
VÖK Hljómsveitin Vök spilar á Potta-
poppi í gömlu sundhöllinni.
GLADDI DRENG
Helen Mirren
mætti í heimsókn
til ungs drengs í
gervi Bretlands-
drottningar.
NORDICPHOTOS/GETTY
Kom eitthvað upp á? Er bíllinn til dæmis rafmagnslaus,
dekk sprungið eða vantar eldsneyti? Með F plús
fjölskyldutryggingu færð þú aðstoð hjá Bílahjálp VÍS
hvenær sem er sólarhringsins og víðast hvar á landinu.
Hafðu samband og hjálpin er á næsta leiti. Þú finnur
nánari upplýsingar um verð og þjónustu á vefsíðu VÍS.
Bílahjálp VÍS bjargar málunum!
VÍS | ÁRMÚLA 3 | 108 REYKJAVÍK | SÍMI 560 5000 | VIS.IS
EF ÞÚ ERT MEÐ F PLÚS FÆRÐ ÞÚ AÐSTOÐ HJÁ BÍLAHJÁLP VÍS
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
8
0
6
9