Fréttablaðið - 13.07.2013, Síða 4
13. júlí 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
139
leiguíbúðir rísa
nú á Hamp-
iðjureitnum.
GUNNLAUGUR
A. JÚLÍUSSON
hljóp 400 kílómetra
án þess að sofa.
2 ár hefur fiskeldisfyrirtæki á Vestfjörðum þurft að bíða eftir svörum frá stjórn-völdum um 7 þúsund tonna stækkun.5 af 56
verslunum merktu allar
efnavörur rétt þegar
Umhverfisstofnun
kannaði merking-
arnar.
3 ár
er meðalmunur á
aldri karla og kvenna
við fyrsta barn.
11,4°C
var meðalhitinn á
Akureyri í júní, og
hefur hann ekki verið
svo hár í 60 ár.
476 þúsund sauðkindur
voru skráðar á
Íslandi í fyrra.
6.600 farþegar komu með skemmti-ferðaskipum til höfuðborgar-svæðisins á þriðjudag.
07.07.2013 ➜ 13.07.2013
FÓLK Björgunarsveitir Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar
voru kallaðar út í hádeginu í gær
þar sem borist hafði tilkynning
um að trilla maraði í hálfu kafi.
Vegfarandi sem átti leið um
Skötufjörðm hringdi í Neyðar-
línuna. Sást aðeins í stefni og
mastur bátsins samkvæmt
hringjanda.
Björgunarbátar og skip voru
strax send á staðinn ásamt
nokkrum björgunarmönnum á
landi. Engin trilla reyndist vera
í firðinum en talið er líklegt að
um kræklingabauju hafi verið að
ræða. Vegfarandinn er þó sagður
hafa brugðist hárrétt við. - nej
Björgunarsveitir kallaðar út:
Sokkin trilla
reyndist bauja
LEIÐRÉTTING
Vegna fréttar í blaðinu í gær er tekið
fram að hjúkrunarheimilið Eir hefur
fengið greiðslustöðvun en er ekki
komið í þrot.
PERSÓNUVERND Persónuvernd
gagnrýnir breytingar á lögum
um Hagstofu Íslands þar sem
fyrirhuguð er víðtæk vinnsla
persónuupplýsinga.
Stendur til að stofna opinberan
gagnagrunn til þess að grípa
megi til aðgerða til að greiða úr
fjárhagsvandna fjölskyldna og
einstaklinga.
Þykir stofnuninni þetta viður-
hlutamikil afskipti af friðhelgi
einkalífs sem séu órökstudd í
frumvarpinu, sérstaklega þar
sem ekki þykir vera nauðsyn
til þess að grípa til aðgerðanna.
Persónuvernd tekur fram að ef
nauðsyn teljist til staðar sé þörf á
endurbótum á frumvarpinu. - nej
Gagnrýna lög um Hagstofu:
Óþörf afskipti
af friðhelgi
LÖGREGLUMÁL Stefán Logi Sívars-
son og fjórir menn til viðbótar
eru grunaðir um aðild að minnst
þremur alvarlegum líkamsárásar-
málum undanfarna daga og vikur.
Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi
vegna málsins en Stefáns Loga var
enn leitað í gær.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að lögregla hefði Stefán Loga
grunaðan um að hafa, í félagi við
aðra, svipt mann frelsi sínu í höfuð-
borginni fyrir nokkrum dögum og
pyntað hann í borginni áður en
ekið var með hann á Stokkseyri og
honum misþyrmt í íbúðarhúsi þar.
Tveir menn voru handteknir
fyrr í vikunni og úrskurðaðir í
gæsluvarðhald vegna þess máls
á miðvikudag; húsráðandinn á
Stokkseyri og 21 árs margdæmdur
ofbeldismaður.
Á fimmtudag gerði lögregla
mikla leit á öllu Suðurlandi vegna
málsins, setti upp vegartálma,
leitaði í bílum og fékk aðstoð frá
þyrlu Landhelgisgæslunnar. Sú
leit leiddi til þess að tveir menn
voru handteknir við Laugarvatn
um kvöldið.
Tvímenningarnir eru 21 og 22
ára og hafa báðir hlotið refsidóma.
Þeir voru leiddir fyrir dómara í
Héraðsdómi Reykjaness í gær, þar
sem þeir voru úrskurðaðir í gæslu-
varðhald til 24. júlí.
Meintur höfuðpaur í málinu,
Stefán Logi Sívarsson, gekk hins
vegar enn laus í gærkvöldi. Hann
er margdæmdur ofbeldismaður og
var nýverið sýknaður í Hæstarétti
af ákæru um nauðgun.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að árásin á Stokkseyri sé ekki eina
ofbeldisverkið sem mennirnir eru
grunaðir um undanfarið, heldur
séu minnst tvö önnur sambærileg
mál, sem varða frelsissviptingu og
líkamsárás, til rannsóknar. Stokks-
eyrarárásin hafi þó verið sérstak-
lega hrottafengin,
þar hafi vopnum
verið beitt og
þolandinn
verið mjög illa
leikinn á eftir.
stigur@frettabladid.is
Grunaðir um minnst þrjár
hrottafengnar líkamsárásir
Lögregla leitaði enn í gær að Stefáni Loga Sívarssyni, meintum höfuðpaur í hrottafengnu líkamsárásarmáli á
Stokkseyri. Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Hópurinn er grunaður um tvær árásir til viðbótar.
ÚRSKURÐAÐIR Í VARÐHALD Mennirnir tveir sem voru handteknir við Laugarvatn í fyrrakvöld
voru úrskurðaðir í tólf daga gæsluvarðhald í gær.
HÚSIÐ Á STOKKSEYRI Manninum var haldið í þessu húsi á Stokkseyri
og hann pyntaður þar.
STEFÁN LOGI
SÍVARS-
SON
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Mánudagur
Strekkingur með NA-ströndinni en
annars hægari.
KÓLNANDI um norðanvert landið næstu daga og dregur úr sólskini þar á morgun en
suðaustanlands verður hins vegar bjart með köflum. Ef norðanátt mánudagsins nær
suður yfir heiðar gæti orðið bjart eða bjart með köflum sunnanlands þann dag.
10°
4
m/s
10°
5
m/s
10°
5
m/s
11°
10
m/s
Á morgun
Strekkingur með SA-ströndinni en
annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
13°
10°
13°
10°
8°
Alicante
Aþena
Basel
29°
33°
29°
Berlín
Billund
Frankfurt
24°
25°
25°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
25°
22°
22°
Las Palmas
London
Mallorca
28°
30°
32°
New York
Orlando
Ósló
27°
30°
24°
París
San Francisco
Stokkhólmur
25°
19°
23°
9°
2
m/s
11°
5
m/s
13°
2
m/s
9°
4
m/s
12°
2
m/s
10°
2
m/s
6°
5
m/s
11°
9°
13°
13°
10°