Fréttablaðið - 13.07.2013, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 13.07.2013, Blaðsíða 32
| ATVINNA | Félagsráðgjafi Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir eftir félags- ráðgjafa. Um er að ræða 100% starf félagsráðgjafa í félagsþjónustu sveitarfélaganna á Snæfellsnesi. Íbúafjöldi þjónustusvæðisins er um 4 þúsund. Hjá FSS starfa forstöðumaður, 2 sálfræðingar, þroskaþjálfi, kennslu- og starfsráðgjafi, ráðgjafi félags- þjónustu, 2 talmeinafræðingar auk starfsmanna heima- þjónustu, liðveislu og málaflokks fatlaðs fólks. Viðfangsefni • Barnavernd • Málefni fatlaðs fólks • Ráðgjöf • Þverfagleg teymisvinna • Önnur verkefni félagsþjónustu sveitarfélaga Hæfniskröfur • Starfsbundin réttindi félagsráðgjafa • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Samskipta- og samstarfshæfni Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félagsráðgjafafélags Íslands. Æskilegur upphafstími starfs er 1. september n.k. Umsókn er tilgreini menntun, fyrri störf og umsagnar- aðila berist Sveini Þór Elinbergssyni, forstöðumanni Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ fyrir 30. júlí n.k. Frekari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 430 7800, netfang: sveinn@fssf.is. Landvernd óskar eftir að ráða starfsmann við verkefnið Skólar á grænni grein – Grænfánaverkefnið. Verkefnið er alþjóðlegt umhverfismenntaverkefni sem rekið er í yfir 200 skólum á öllum skólastigum á Íslandi. Ráðið verður til sex mánaða frá byrjun september með möguleika á áfram- haldandi ráðningu. Starfssvið Starfsmaður tekur m.a. þátt í úttektum á umhverfisstarfi þátttökuskóla, veitir skólum ráðgjöf um umhverfismál, kemur að gagnaöflun, úrvinnslu og skýrsluskrifum og tekur þátt í þróun verkefnisins. Menntun og hæfniskröfur Krafist er háskólaprófs á sviði umhverfisfræða og/eða menntavísinda, og áhuga á umhverfismálum. Þekking og reynsla af skólastarfi, þ.m.t. af menntun til sjálfbærni, er æskileg. Góðir samskiptahæfileikar eru nauðsynlegir, jafnt hvað varðar börn, unglinga og fullorðna. Gerð er krafa um frumkvæði, sjálfstæði og jákvæðni í starfi og öguð og skipulögð vinnubrögð. Starfið felur í sér allmörg ferðalög innanlands. Kröfur til umsóknar og frestur Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og greinargerð þar sem ástæða umsóknar er útlistuð, hæfni viðkomandi til að gegna starfinu lýst og listi yfir 2-3 meðmælendur gefinn. Umsóknir skulu sendar á mummi@landvernd.is, merktar „Grænfáni umsókn“. Umsóknarfrestur er til 9. ágúst n.k. Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar í s. 552-5242. Starfsmaður – Grænfánaverkefni Landverndar Ísbíllinn leitar að sölumönnum í fullt starf eða kvöld og helgarvinnu. Góð laun fyrir góða starfsmenn. Umsókn og ferilskrá sendist fyrir 19.júlí á isbillinn@isbillinn.is. Sölumaður óskast www.isbillinn.is Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á arekstur@arekstur.is fyrir 1. ágúst nk. arekstur.is sérhæfir sig í þjónustu við tryggingafélög og viðskiptavini þeirra, lendi þeir í umferðaróhöppum. Starfsmenn arekstur.is eru með mikla reynslu af vinnu þar sem umferðaslys og umferðaróhöpp hafa átt sér stað. Reynslan hefur skilað sér í faglegum vinnubrögðum þar sem nauðsynlegra gagna er aflað á vettvangi tjóns. Starfsmenn A&Ö eru þjálfaðir í skyndihjálp og vanir að takast á við erfið mál á vettvangi. Menntunar- og hæfniskröfur: • Stúdentspróf eða sambærileg menntun er skilyrði • Æskilegt er að viðkomandi hafa lokið skyndihjálparnámskeiði • Gott vald á íslensku, bæði í riti og ræðu • Þekking á íslenskum umferðarlögum • Góð almenn tölvukunnátta Gert er ráð fyrir að rannsóknarfulltrúi hefji störf Fljótlega. Fyrstu vikur í starfi munu fara í ítarlega starfsþjálfun. arekstur.is óskar eftir að ráða rannsóknarfulltrúa til starfa. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert framtíðarstarf. Rannsóknarfulltrúi fer á vettvang minniháttar umferðaróhappa. Hannrannsakar vettvang, mælir og ljósmyndar, aðstoðar við að fylla út tjónaskýrslur og gengur í önnur verkefni sem til falla. Rannsóknarfulltrúi tekur einnig við símtölum og svararfyrirspurnum, er í samskiptum við fjölmiðla og uppfærir reglulega vefsíðu arekstur.is Rannsóknarfulltrúi þarf að vera heiðarlegur, nákvæmur, áreiðanlegur, líkamlega og andlega hraustur, með miklasjálfstjórn, hafa yfirburða samskiptahæfni, þarf að geta unnið sjálfstætt og framvísað hreinu sakavottorði, sé þess óskað. RAFMAGNSVERKFRÆÐINGUR/RAFMAGNSTÆKNIFRÆÐINGUR Vegagerðin auglýsir eftir rafmagnsverkfræðingi eða rafmagnstæknifræðingi í fullt starf. Viðkomandi mun starfa á siglingasviði stofnunarinnar,sem fyrst um sinn er staðsett í Kópavogi, með áherslu á leiðsögukerfi á sjó og landi og m.a. rekstri, við- haldi og þróun leiðbeiningamerkja á sjó og landi. Viðkomandi mun einnig sinna tilteknum verkefnum í samvinnu við þjónustudeild stofnunarinnar. Í boði er spennandi, krefjandi og fjölbreytt framtíðarstarf. Starfsviðið er tvíþætt: Annars vegar að sjá um rekstur á leiðsögukerfi og upplýsingakerfi fyrir skip og ökutæki. Leiðsöguk- erfin fyrir skip eru sjálfvirkt auðkennikerfi fyrir skip ( AIS), ljósvita, siglingabaujur, radarsvara, leiðarmerki, öldubaujur, uppsetning leiðsögukerfa ofl. Hlutverk viðkomandi er að hafa umsjón með, þjónusta, setja upp, prófa og reka þessi kerfi.Stofnunin veitir höfnum landsins auk þess tæknilega aðstoð. Hins vegar að starfa með upplýsingaþróun þjónustu- deildar að ýmsum verkefnum sem tengjast mæla- og upplýsingakerfum við vegi, ferilvöktunarbúnaði, samskiptabúnaði o.fl. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun í rafmagnsverkfræði eða rafmagnstæknifræði • Farsæl reynsla í rafmagnsverk- eða tæknifræði • Þekking á fjarskiptakerfum • Þekking á leiðsögukerfum er æskileg • Þekking á hugbúnaðasviði • Reynsla og þekking á störfum á sjó er æskileg • Skipstjórnarréttindi eru æskileg • Frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu • Hæfni til að ná yfirsýn yfir flókin verkefni fljótt og örugglega. • Gott vald á íslensku, ensku og æskilegt á einu norðurlandamáli • Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi Starfið hentar jafnt báðum kynjum og í samræmi við starfs- mannastefnu Vegagerðarinnar eru konur með tilskyldar menntunar- og hæfniskröfur sérstaklega hvattar til að sækja um starfið. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til 6.ágúst 2013. Umsóknir berist mannauðsstjóra netfang oth@vegagerdin.is Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá menntun og hæfni sem óskað er eftir, þar með talin menntunar- og starfsferilsskrá. Nánari upplýsingar um starfið veitir Björn Ólafsson í síma 522 1000. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 13. júlí 2013 LAUGARDAGUR6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.