Fréttablaðið - 13.07.2013, Side 12

Fréttablaðið - 13.07.2013, Side 12
13. júlí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 12 Ef íslenskir söngvarar ætla sér að lifa af því að syngja er óhjákvæmi- legt að vera með annan fótinn í útlöndum,“ segir Hlín Pétursdóttir Behrens sem starfaði sem óperu- söngkona í Þýskalandi í tíu ár, en flutti heim 2004. „Ég fékk heimþrá, mér fannst ég vera stöðnuð og alltaf vera að gera það sama. Svo hittist þannig á að ég fékk vinnu við kennslu á Íslandi og hafði hugsað mér að vera heima í eitt ár. Það vatt upp á sig, ég fór að syngja meira hér heima og ég er ekkert á leiðinni að flytja til útlanda en það er alltaf gaman að fara út að syngja og ég mun syngja á tónleikum í Ósló í lok mánaðarins og í Þýska- landi í desember.“ Ein aðalástæða þess að Hlín flutti heim var þó hvorki tengd söng né kennslu. Hún er mikil hestakona og segist hafa saknað hestanna mikið á árunum í Þýskalandi. „Ég er nánast alin upp á hestbaki. Móðir mín, Ragnheiður Sigurgrímsdóttir, var einn fyrsti menntaði reiðkenn- arinn á Íslandi og fyrsta íslenska konan sem kom fram á Evrópu- móti íslenska hestsins árið 1975. Og pabbi, Pétur Behrens, er einn af stofnendum Félags tamningamanna og Eiðfaxa. Það þótti meira að segja frekar skrítið til að byrja með að ég skyldi ætla að verða söngkona en ekki hestakona. Hestamennskan var eitt af því sem dró mig sterkast heim, enda er hestabakterían ekk- ert grín. Maður losnar aldrei við hana.“ Eiginmaður Hlínar, Einar Jón Einarsson, deilir ekki hesta- dellunni en er hins vegar ástríðu- fullur stangveiðimaður og þau hjónin hafa gert með sér samkomu- lag. „Díllinn hjá okkur er sá að ef ég kem honum á hestbak sér hann mig fyrir sér úti í á að veiða. Ég fékk meira að segja flugustöngina í jólagjöf og er búin að rækta hinn fullkomna hest handa honum, sem er í tamningu núna. Þannig að það styttist í þetta hjá okkur.“ Þú ætlar að syngja franska söngva annað kvöld í tilefni Bastilludagsins. Hefurðu verið mikið í Frakklandi? „Nei, þetta var nú eiginlega tilviljun. Ég fékk úthlutað þessum degi og það vildi svo skemmtilega til að ég hafði ætlað mér að syngja lög eftir frönsk tónskáld svo þetta passaði. Ég hef auðvitað oft verið í París og æfði þar um tíma með alþjóðlegum hópi, en ég hef aldrei búið í Frakk- landi.“ Undirleikari Hlínar á tónleik- unum er Gerrit Schuil píanóleik- ari, en þau hafa starfað saman af og til árum saman. „Hann er einn af þessum flottu píanistum sem hafa sérhæft sig í að starfa með söngvurum og það eru fáir sem hafa jafnmikla reynslu og innsýn í ljóðatónlist,“ segir Hlín. „Auk frönsku tónlistarinnar munum við líka flytja lög við ljóð Hall- dórs Laxness. Þannig að fólk á von á góðu á Gljúfrasteini á morgun.“ Hestarnir drógu mig heim Hlín Pétursdóttir Behrens ætlar að fagna Bastilludeginum með stofutónleikum á Gljúfrasteini á morgun. Hún hefur þó aldrei búið í Frakklandi en bjó lengi í Þýskalandi þar sem hún söng við ýmis óperuhús þar til heimþráin og þráin eftir hestunum dró hana heim. Í stofunni heima Gljúfrasteinn var heimili og vinnustaður Nóbelskáldsins Halldórs Laxness og fj ölskyldu hans í hálfa öld. Í stofuna streymdu gestir og þau Halldór og Auður stóðu þar sjálf fyrir tónleikahaldi og fl eiri viðburðum. Pétur Valmundarson, útvarpsmaður á FM957 Fer norður í land Ég ætla mér að leggja land undir fót og flýja norður í góða veðrið ef það verður enn þá þar. Það er góð byrjun á sumarfríinu. Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is Jóna Kristín Hauksdóttir knattspyrnukona Búðarrölt og slökun Á laugardaginn ætla ég að skella mér á búðarrölt og um kvöldið fæ ég svo nokkrar skvísur í heimsókn. Á sunnu- daginn ætla ég að slappa af og grilla með fjölskyldunni um kvöldið. Óttar Norðfjörð rithöfundur Bíó með kærustunni Á laugardaginn ætlum við kærastan mín á sýningu Söru Riel í Listasafni Íslands, Memento Mori, og á sunnudaginn stefnum við á að sjá World War Z sem ég geri miklar væntingar til. Hildur Björk Yeoman fatahönnuður Fjallganga og LungA Ég er svo heppin að vera á Seyðisfirði í sumar og ætla að byrja daginn á að fara í fjallgöngu. Um kvöldið mun ég skella mér á Hótel Ölduna í hið margrómaða geitaostasalat. Á sunnudaginn byrjar LungA og þá eru tónleikar með Úlfi Hanssyni í Bláu kirkjunni sem ég hlakka mikið til að sjá. HELGIN Ljósmyndir Páll Jökull Pétursson er með ljósmyndasýningu í Café Flóru í Laugardalnum. Myndir hans sýna hið smáa og fagra sem mörgum er hulið í plönturíkinu, enda hefur hann áralanga þjálfun í töku plöntumynda frá því hann gaf út blaðið Sumar- húsið og garðurinn. Sýningin stendur til 11. ágúst og er opin daglega á opnunartíma Café Flóru, kl. 10 til 22. Sýning Hið smáa, fagra og hulda Tónlist Harmonikuhátíð Reykja- víkur verður haldin í Árbæjarsafni á morgun, sunnudag, og hefst klukkan 13. Þar koma fram margir af bestu harmonikuleikurum Íslands, bæði sem einstaklingar og í hópum. Nefna má Örvar Kristjánsson, Jónu Einars- dóttur og Ólaf Kristjánsson, auk þess sem Suðurnesjahópurinn, Léttsveit Harmonikufélags Reykjavíkur, Smárinn og Skæruliðarnir halda uppi fjöri. Geisladiskar og nótnahefti með harmonikutónlist verða til sölu á staðnum. Árbæjarsafn Harmonikuhátíð HESTAR OG SÖNGUR Hlín Pétursdóttir segist hafa alist upp á hestbaki og það hafi þótt skrýtið þegar hún ákvað að leggja sönginn fyrir sig. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR 13. júlí 2013 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.