Fréttablaðið - 13.07.2013, Síða 31

Fréttablaðið - 13.07.2013, Síða 31
Frístunda- og forvarnafulltrúi Laus er til umsóknar staða Frístunda- og forvarnafulltrúa í Sandgerðisbæ. Um er að ræða spennandi og gefandi framtíðarstarf fyrir metnaðarfullan einstakling. Meðal verkefna: • Efla og styrkja íþróttastarf meðal barna, unglinga og fullorðinna í Sandgerði. • Stuðla að fjölbreytni í íþrótta- og frístundastarfi. • Starfa með íþrótta- og félagasamtökum í bænum. •Uppbygging og þátttaka í forvarnaverkefnum og lýðheilsustarfi. • Ábyrgð og skipulag árlegrar heilsuviku. • Starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Skýjaborgar. • Ábyrgð og skipulag sumarnámskeiða og vinnuskóla. • Vinna með frístunda-, forvarna- og jafnréttirsráði Sandgerðisbæjar. • Vinna með Ungmennaráði Sandgerðisbæjar. • Stefnumótun og gerð fjárhags- og framkvæmdaáætlana. • Þátttaka í undirbúningi og framkvæmd bæjarhátíða og annara hátíðahalda. Hæfniskröfur: • Háskólapróf eða önnur menntun sem nýtist í starfinu. • Starfsreynsla á sviði íþrótta og æskulýðsmála æskileg. • Færni í samskiptum og samstarfi. • Góðir skipulagshæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Gott vald á mæltu og rituðu máli. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. september. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist á skrifstofu Sandgerðisbæjar, Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði, merktar „Starfsumsókn“ eða á netfangið sigruna@sandgerdi.is. Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 föstudaginn 26. júlí. Sandgerðisbær, Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði www.sandgerdi.is Héraðsprent á Egilsstöðum óskar eftir að ráða prentara. Æskilegt að hann hafi nokkra reynslu af vinnu á Roland 200 4ra lita og Heidelberg GTO. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem er nákvæmur í vinnubrögðum, jákvæður og góður í mannlegum samskiptum. Um er að ræða framtíðarstarf. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Gunnhildur í síma 863 9102 eða Þráinn í síma 896 6422. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á gunnhildur@heradsprent.is fyrir 1. ágúst. Prentari - Atvinna. VAKA er eitt fjölhæfasta bílaþjónustufyrirtæki landsins. Helstu áherslur · Stjórnun á úrvinnslu bíla · Vinna við niðurrif · Losun spilliefna Hæfniskröfur · Lyftarapróf · Gott viðmót og áhugi að bæta sig í starfi · Stundvísi og snyrtimennska · Góð mannleg samskipti · Öguð vinnubrögð Varahlutir Bifreiðaflutningar Úrvinnsla bíla Smurþjónusta Áhugasamir geta sótt um með því að senda umsókn fyrir 19. júlí á starf@vakahf.is. Við bjóðum fjölbreytt verkefni og gott starfsumhverfi. Dekkjaþjónusta Bifreiðaverkstæði

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.