Fréttablaðið - 13.07.2013, Qupperneq 44
13. júlí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
Guðmunda Bjarnadóttir og Viðar Elíasson frá Vestmannaeyjum eiga fjögur börn sem öll hafa afrekað að hafa spilað með meistar aflokki ÍBV í knatt-spyrnu. Óhætt er að fullyrða að
íþróttir hafi markað líf fjölskyldunnar með
varanlegum hætti. Bræðurnir Bjarni Geir og
Sindri hafa báðir lagt skóna á hilluna en yngri
systur þeirra, Margrét Lára og Elísa, eru
báðar í landsliðinu og keppa fyrir hönd þjóðar-
innar á Evrópumeistaramótinu í Svíþjóð sem
hófst í vikunni.
Fréttablaðið sló á þráðinn til Guðmundu í
vikunni en foreldrarnir voru þá nýkomnir til
Svíþjóðar þar sem þau fylgjast með dætrum
sínum á EM – nema hvað.
„Ég var nú sjálf í handbolta en pabbi þeirra
í fótbolta og hann fékk að ráða á endanum. Ég
reyndi samt,“ segir hún í léttum dúr, en börnin
voru dugleg að prófa hinar ýmsu íþróttir á
sínum tíma – fótbolta, handbolta, frjálsar og
svo framvegis.
„Við foreldrarnir hvöttum þau til að stunda
íþróttir en þau sýndu því reyndar áhuga sjálf
alla tíð. Ætli þau hafi ekki fengið íþrótta-
áhugann með móðurmjólkinni,“ útskýrir
Guðmunda.
Margrét Lára þótti afar efnileg handbolta-
kona og var sem unglingur samtímis valin í
landsliðsúrtök fyrir báðar íþróttir. Þá þurfti
hún að velja og fór sömu leið og pabbi hennar,
eins og reyndar systkinin öll.
„Það fór alltaf mjög vel saman að æfa
handbolta á veturna og fótbolta á sumrin. Ég
hefði gjarnan viljað að hún hefði getað verið í
báðum íþróttum lengur.“
Snertir ekki á gosinu
Guðmunda segir að það hafi alla tíð verið
augljós munur á þeim systrum. „Margrét
Lára var alltaf með bolta við tærnar. Elísa
var hins vegar meira fiðrildi og kom víðar
við en Margrét Lára,“ segir hún, en eftir
að sú síðarnefnda valdi knattspyrnuna var
ljóst að hún ætti langan og glæsilegan feril
fram undan. Svo fór að hún spilaði
fyrsta A-landsleikinn sinn
fyrir sautján ára
afmælis-
daginn
sinn,
er Ísland
vann 4-1 sigur á Ungverjalandi.
Margrét Lára kom inn á sem vara-
maður og skoraði með fyrstu snert-
ingu sinni í leiknum.
Elísa, sem er fimm árum yngri,
ákvað ekki löngu síðar að hún vildi
feta sömu leið og stóra systir.
„Elísa var aðeins 12-13 ára gömul
þegar hún setti sér það markmið um
að gerast atvinnumaður og spila með
íslenska landsliðinu. Hún hefur unnið
markvisst að því síðan þá. Hún hætti
til dæmis að drekka gos tólf ára gömul
til þess eins að halda sér í formi og
vera heilsuhraust,“ rifjar hún upp
og hlær.
„Hún var mjög ung þegar hún
byrjaði að spá í þessa
hluti enda ekki með
sama náttúrutalent og
systir sín. Elísa þurfti
að hafa meira fyrir
þessu. Enn þann dag-
inn í dag snertir hún
ekki við gosi og er mjög
ákveðin í mataræðinu.
Enda veit hún að hún þarf
Eiríkur Stefán Ásgeirsson
eirikur@frettabladid.is
Með fiðrildi
í maganum
fyrir hvern leik
Af 23 leikmönnum íslenska landsliðsins sem stendur nú
í ströngu á Evrópumeistaramótinu í knattspyrnu í Svíþjóð
eru tvær systur, þær Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur. Þá
eldri þekkir nánast hvert mannsbarn á Íslandi en Elísa er að
stíga sín fyrstu skref í landsliðinu. Guðmunda Bjarnadóttir,
móðir þeirra, segir þær afar ólíkar innan vallar sem utan.
STOLTIR FORELDRAR Nöfn allra íslensku leikmannanna á EM í Svíþjóð eru rituð á þennan varða fyrir
utan leikvanginn í Kalmar, þar sem Ísland mætti Noregi á fimmtudagskvöld. Viðar bendir á nafn Elísu og
Guðmunda á nafn Margrétar Láru. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKARÓ
að leggja mikið á sig til að ná markmiðum
sínum.“
Guðmunda segir að foreldrarnir hafi ávallt
hvatt börnin sín áfram á þeirra eigin for-
sendum, enda sé ekki hægt að bera systurnar
saman.
„Þær eru svo ólíkar, innan vallar sem utan.
Margrét Lára er sóknarmaður og marka-
skorari en Elísa varnarmaður. En þær eru
mjög góðar vinkonur og hafa orðið sam-
rýndari með árunum. Svo eru þetta
skemmtilegar stelpur – léttar og
kátar.“
Langflestir væru búnir
að gefast upp
Margrét Lára verður 27 ára
í næsta mánuði en hefur
þrátt fyrir ungan aldur
afrekað ótalmargt. Hún er til
að mynda eina knattspyrnu-
konan frá upphafi sem hefur
verið útnefnd íþróttamað-
ur ársins, en þá
nafnbót fékk
hún árið 2007. Hún hefur leikið sem atvinnu-
maður í rúm fjögur ár og skorað 70 mörk í
89 landsleikjum. Það er árangur á heims-
mælikvarða og þarf varla að taka fram að
Margrét Lára er langmarkahæsti leikmaður
íslensku knattspyrnulandsliðanna, bæði karla
og kvenna.
Afrek hennar eru ekki síður merk í því ljósi
að hún hefur glímt við þrálát meiðsli í tæp
fimm ár. Hún ákvað að fara í stóra aðgerð í
nóvember síðastliðnum til að gera eina loka-
tilraun til að ná sér góðri á ný. Ef aðgerðin
hefði hins vegar misheppnast væri ferli
hennar líklega lokið.
„Það hefur verið mjög dapurlegt að
fylgjast með henni í þessari baráttu. En hún
er ólseig og hefur borið hitann og þungann
af þessu öll sjálf. Ég held að flestallir væru
löngu búnir að gefast upp – líka karlar sem
fá himinhá laun fyrir að spila fótbolta,“ segir
Guðmunda.
„Draumur Margrétar Láru hefur alltaf
verið að koma til baka og ná fullri heilsu –
þrátt fyrir að hafa verið á hælunum í fimm ár.
Á þeim tíma hefur hún alltaf rifið sig upp en
ávallt verið skotin niður. En þá rífur hún sig
bara aftur upp. Mér finnst það í raun krafta-
verk. Ég krossa bara fingur og bið til guðs um
að hún eigi eftir að ná heilu góðu tímabili.“
Útlitið er gott. Hún notaði fyrri hluta
tímabilsins í sænsku úrvalsdeildinni til að
koma sér aftur í form, í því miði að toppa nú
á Evrópumeistaramótinu. Hún spilaði allar
90 mínúturnar gegn Noregi á fimmtudags-
kvöldið og skoraði jöfnunarmark Íslands úr
vítaspyrnu undir lok leiksins, sem lyktaði 1-1.
Ólík hlutverk í liðinu
Guðmunda hefur vitanlega ekki
tölu á þeim fjölda leikja sem hún
hefur séð með börnunum sínum
en tilfinningin er alltaf sú sama.
„Ég er auðvitað orðin sjóaðri og
þroskaðri með árunum en ég
fæ enn fiðrildi í magann fyrir
hvern einasta leik. Ég er til
dæmis mjög spennt fyrir því
hvort Elísa fái tækifæri til
að spreyta sig hér úti,“ segir
hún, en óvíst er hvort þær
systur fá tækifæri til að spila
saman á þessu móti.
„Siggi Raggi [þjálfari
Íslands] hefur ekki notað
hana mikið í keppnisleikjum
en hún er þó í hópnum, sem
þýðir að hann vill hafa hana
innan seilingar.“
Staða systranna er því ólík,
eins og Guðmunda bendir
á. „Önnur á að bera leik-
inn uppi en hin er á
bekknum. En þetta er
allt jafn spennandi
fyrir mér.“
MARGRÉT
LÁRA OG
ELÍSA
Brosmildar
á æfingu
íslenska
lands-
liðsins í
Vaxjö í
gær.
Ég held að flestallir væru
löngu búnir að gefast upp – líka
karlar sem fá himinhá laun fyrir
að spila fótbolta.
Hvað segja systurnar hvor um aðra?
Elísa er að taka þátt í sínu fyrsta
stórmóti með landsliðinu, en hún
hefur farið fyrir uppkomu ÍBV og
er þrátt fyrir ungan aldur búin
að vera fyrirliði þess síðustu
árin.
„Það má eiginlega segja að
hún hafi fengið þetta allt í
vöggugjöf,“ segir Elísa í gríni
þegar hún er beðin að lýsa
systur sinni sem fótboltakonu.
„Hún hefur alltaf verið með
mikla hæfileika. Hún er frábær
á boltann og þú finnur varla betri
sendingamann. Hún er ótrúlega
hvetjandi og það er frábært að
eiga svona eldri systur,“ sagði Elísa.
„Hún hefur reynst mér mjög vel og
alltaf betur og betur eftir því sem
ég verð eldri og kemst nær henni
í aldri. Hún eldist náttúrulega
ekkert því ég eldist bara,“ segir
Elísa í léttum tón.
En hvernig var að
sjá Margréti standa sig svona
vel? „Hún hefði varla getað staðið mér
nær og ég sá hvað hún var að upplifa.
Ég vildi það sama.“
Margrét Lára hrósar litlu systur sinni
fyrir dugnaðinn. „Hún er búin að
vinna mikið fyrir því að komast
hingað. Hún fæddist ekki með
brjálæðislega hæfileika en
hefur unnið vel fyrir sínu og
æft vel. Hún er sterkur leik-
maður sem á framtíðina fyrir
sér,“ segir Margrét Lára.
„Þegar við vorum yngri
var þetta rosalega erfitt
því hún vildi alltaf vera
með vinkonum mínum og
vera í herberginu með
okkur. Það var ekki mikill
systrakærleikur á þeim
tíma. Þetta hefur breyst
mikið með aldrinum og
við erum orðnar mjög nánar. Ég held að
ég geti ekki átt betri systur og mér þykir
ótrúlega vænt um hana. Það er frábært
að hafa hana hérna,“ sagði Margrét Lára,
en hvernig var að frétta að Elísa
færi með á EM?
„Það lá við að ég færi
að gráta. Okkur hefur alltaf dreymt um
að spila saman í landsliðinu og stefnt að því. Ég er
rosalega stolt og ánægð með hana.“
Elísa
Margrét Lára