Fréttablaðið - 13.07.2013, Qupperneq 50
13. júlí 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 30
„Ég er akkúrat að fara með barna-
barnið út,“ segir Alfreð Gíslason
sem er í vikufríi á Akureyri núna að
heilsa upp á börnin og barnabörnin.
Íþróttaráð Akureyrar og Afreks-
sjóður Akureyrar nýttu tækifærið
og heiðruðu kappann við hátíðlega
athöfn í Hofi á fimmtudaginn, enda
hefur hann átt ríkan þátt í uppgangi
handboltans þar í bæ og á Íslandi
öllu.
Alfreð hefur búið í Þýskalandi
síðustu fimmtán ár og er núna að
þjálfa í Kiel en skreppur heim til
Akureyrar þegar hann getur komið
því við. „Ég á þrjú börn og tvö barna-
börn og þau eru öll hér fyrir norðan
eins og er. Við fórum út fimm saman,
á sínum tíma, við hjónin og börnin.
Sá yngsti var tveggja ára ef ég man
rétt. Hann flutti heim frá Þýskalandi
í fyrra til að fara í skóla hér þannig
að við erum bara orðin tvö eftir úti,
hjónin. Þannig er gangurinn í þessu.
Krökkunum líkar mjög vel hér og
þetta hefur þróast svona,“ segir hann.
Þau hjónin eru þó ekki á heim-
leið í bráð, að hans sögn. „Ég er með
samning þarna úti til 2017 og reikna
með að halda það út í þessu þjálfara-
djobbi eitthvað lengur. Síðan geri
ég ráð fyrir að þegar ég, einhvern
tímann, hætti því verði ég til skiptis á
Íslandi og í Þýskalandi. Það er svona
stefnan. Mér líkar mjög vel hérna
fyrir norðan, hér er hæfilega rólegt.“
Alfreð ólst upp á Brekkunni á
Akureyri en á núna íbúð í miðbænum.
Einu sinni opnaði hann líka skemmti-
staðinn Við Pollinn á Eyrinni á Akur-
eyri en kveðst fyrir löngu búinn að
koma sér út úr því dæmi. „Það var á
síðustu öld. Ég var í sex ár hér fyrir
norðan, frá 1991 til ’97. Þá var ég að
þjálfa KA. Það voru lærdómsrík ár,“
rifjar hann upp.
Alfreð er ánægður í Þýskalandi.
„Mér líkaði geysilega vel í Magde-
burg, við vorum þar í næstum sjö ár
og eigum hús á milli Magdeborgar
og Berlínar, sem við notum eins og
sumarhús eins og er. Nú er ég búinn
að vera fimm ár í Kiel og það er líka
fínt. Klúbburinn er góður og svo er
þægilegt að vera við Eystrasaltið.
Sjórinn togar alltaf í mig. Það er
frábært að búa í Þýskalandi og mjög
góð blanda að vera ýmist þar og hér
á Akureyri.“
gun@frettabladid.is
TÍMAMÓT
Alfreð Gíslason fæddist á Akureyri árið 1959 og ólst þar upp. Undir stjórn hans náði
KA sínum besta árangri; varð bikarmeistari í tvígang og Íslandsmeistari og deildar-
meistari. Hann lék í landsliði Íslands í mörg ár og þjálfaði það um tíma.
Alfreð hefur frá árinu 1997 þjálfað í Þýskalandi og meðal annars gert Magdeb-
urg og Kiel að Þýskalands- og Evrópumeisturum. Honum hefur hlotnast fjöldi
einstaklings verðlauna bæði sem þjálfara og leikmanni.
Alfreð þjálfar lið Kiel í dag og þykir einn sá færasti í sínu fagi.
Heimild: www.akureyri.is
Einn sá færasti
Sjórinn togar alltaf í mig
Alfreð Gíslasyni handboltakappa var í vikunni veitt heiðursviðurkenning íþróttaráðs
Akureyrar og Afrekssjóðs Akureyrar. Auk þess fékk hann sérstök heiðursverðlaun KA.
ALFREÐ KÁTUR Á AKUREYRI „Það er frábært að búa í Þýskalandi og mjög góð blanda að vera ýmist þar og hér á Akureyri.“ MYND/AKUREYRARSTOFA
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÓHANNA VALDEY JÓNSDÓTTIR
áður til heimilis að
Móabarði 25 í Hafnarfirði,
andaðist miðvikudaginn 3. júlí á Sólvangi
í Hafnarfirði. Jarðarförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 15. júlí
kl. 13.00.
Ester Eyfjörð Ísleifsdóttir
Ásgrímur Jónas Ísleifsson Sigrún Hrönn Baldursdóttir
Birgir Ísleifsson Ástrún Ósk Ástþórsdóttir
Kristmann Már Ísleifsson Lilja Björk Kristinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
BERGUR PÉTUR JÓNSSON
er andaðist sunnudaginn 7. júlí sl. á
Hrafnistu í Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 16. júlí kl. 13.
Svanhvít Sigurlinnadóttir
Páll Þór Bergsson
Rakel Ólöf Bergsdóttir
Anna Gyða Bergsdóttir Eysteinn Sigurðsson
Vilhelmína Roysdóttir
Hafdís Sigrún Roysdóttir Jóhann Þorsteinsson
Sigurður Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vinsemd við andlát
og útför föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa
GUNNLAUGS PÁLMA
STEINDÓRSSONAR
forstjóra
Sóltúni 10, Reykjavík.
Steindór Gunnlaugsson Halldóra Lydía Þórðardóttir
Haraldur Páll Gunnlaugsson Bolette Møller Christensen
Bryndís Dögg Steindórsdóttir Haukur Eggertsson
Gunnlaugur Egill Steindórsson
Karla Baasch Christensen
Emilía Björk Hauksdóttir
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR HEIMIR RÖGNVALDSSON
Brekkuhvammi 7, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstu-
daginn 5. júlí. Jarðsungið verður frá
Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn
16. júlí kl. 13.00.
Kristín Bjarnadóttir
Sigurlaug Helga Emilsdóttir John H. Frantz
Birna Guðmundsdóttir
Vignir Guðmundsson Guðný Á. Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Fjölbreytt úrval legsteina
Frí áletrun og uppsetning
Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88
Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum)
Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði
www.granithollin.is
Sími 555 38 88
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR MAGNÚSSON
Helgubraut 1, Kópavogi,
lést á Landspítala við Hringbraut
fimmtudaginn 11. júlí. Jarðarförin
verður auglýst síðar.
Ásdís Ingimundardóttir
Kristinn Jóhann Ólafsson Steinþóra Þórisdóttir
Olga María Ólafsdóttir Magnús Garðar Friðjónsson
Davíð Ólafsson Oksana Ólafsson
Erla Björk Ólafsdóttir Einar Þór Samúelsson
Gauti Ólafsson Andrea Símonardóttir
og barnabörn.
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann
www.kvedja.is