Fréttablaðið - 20.07.2013, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 20.07.2013, Blaðsíða 35
Launafl ehf. óskar eftir að ráða reyndan blikksmið með full réttindi til starfa nú þegar. Góð laun í boði. Nánari upplýsingar veitir Adda Ólafsdóttir, starfsmannastjóri og Magnús Helgason, framkvæmdastjóri. Hægt er að senda fyrirspurnir og umsóknir á adda@launafl.is eða magnus@launafl.is. www.launafl.is – sími 414-9400 Launafl ehf er iðnfyrirtæki í Fjarðabyggð. Reyndan pípulagningarmann Aðstoðarkona óskast Vantar þig vinnu? Hér er gott tilboð! Ég er 17 ára daufblind stelpa og notast við hjólastól. Ég er við nám í MH og hef áhuga á góðum bókum, bíómyndum, slúðri og spilamennsku. Ég bý í Reykjavík. Ég þarfnast aðstoðar við ýmislegt í daglegu lífi s.s. að komast á milli staða, sjón- og táknmálstúlka, borða, fara í föt og margt annað. Því óska ég eftir aðstoðarkonu á aldrinum 18 – 28 ára til starfa. Viðkomandi þarf að hafa bílpróf og gott er að kunna íslenskt táknmál eða vera tilbúin að læra það en ekki skilyrði. Mikilvægt er að viðkomandi sé jákvæður, þolinmóður, sjálfstæður og úrræðagóður. Engar kröfur eru um sérmenntun eða starfsreynslu með fötluðu fólki. Best væri ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst. Ef þú hefur áhuga hafðu þá samband í síma 6903249 eða sendu póst á aslaugyrhjartar@gmail.com Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar Laus staða í grunnskóla Hraunvallaskóli (664 5872 lars@hraunvallaskoli.is) Almenn kennsla á yngsta stigi Allar upplýsingar veitir skólastjóri, Lars Imsland Hilmarsson. Sjá einnig heimasíðu skólans. Umsóknarfrestur er til og með 27. júlí 2013. Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið. Hjúkrunarfræðingur - næturvaktir Grund óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á næturvakt/húsvakt í hlutastarf/tímavinnu frá 1. september n.k. eða eftir nánara samkomulagi. Sjúkraliðar - Hópstjórar Óskum eftir hópstjórum til starfa. Starfið er sjálfstætt og fjölbreytt. Hjúkrunarfræðingur er alltaf í húsinu til ráðgjafar og stuðnings. Um er að ræða 80-100% starf sem veitist frá 1. september n.k. eða eftir nánara samkomulagi. Einnig vantar hópstjóra í tímavinnu um kvöld-og helgar. Nánari upplýsingar um störfin, starfshlutfall, vaktir og launakjör veitir Sigríður Sigurðardóttir, virka daga frá klukkan 9.00-16.00 í síma 530-6116. Óskum einnig eftir starfsfólki í umönnun. Nánari upplýsingar veitir Helga Jóhanna Karlsdóttir starfsmannastjóri í síma 5306100. Hægt er að senda starfsumsóknir á helga@grund.is Á Grund búa 200 heimilismenn þar sem trúnaður, traust og umhyggja eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi. www.grund.is Óskum eftir að ráða verkfræðing/ sérfræðing í jarðborunum. Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í starf eftirlitsmanns við jarðboranir. Fyrirliggjandi eru krefjandi verkefni á alþjóðavísu. Starfið krefst þess að viðkomandi sé mikið á ferðinni erlendis. Starfsvið: • Ráðgjöf og verkefnastjórnun á sviði háhitajarðboranna • Ráðgjöf til nýrra viðskiptavina • Samningagerð • Önnur tilfallandi verkefni Hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði borana eða önnur tækni- mentun æskileg • Góð reynsla af jarðborunum og verkstjórnun • Góð ensku og tölvukunnátta • Reynsla af samningagerð • Hæfni í mannlegum samskiptum • Skilningur á mismunandi þjóðernum Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á info@nte.is eða í gegnum heimasíðu okkur www.nte.is Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Seljabraut 54, 109 Rvík Skrifstofustarf í vörustjórnun Starfið tilheyrir rekstrarsviði Vinnslustöðvarinnar. Meginverkefnin eru gerð útflutningspappíra, skjalagerð, eftirvinnsla og stuðningur við önnur störf í vörustjórnun hjá VSV. Um er að ræða framtíðarstarf í Vestmannaeyjum. Menntunar- og hæfniskröfur: Reynsla sem mun nýtast í starfi Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum Góð tölvu- og enskukunnátta Heiðarleiki og nákvæmni Stundvísi og reglusemi Í umsóknum þurfa að koma fram ítarlegar upplýsingar um menntun, reynslu og fyrri störf. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum svarað. Nánari upplýsingar um starfið veitir Björn Matthíasson í gegnum tölvupóst: bjorn@vsv.is Umsóknir óskast sendar í tölvupósti á bjorn@vsv.is eða á skrifstofu félagsins merkt: ,,Skrifstofustarf‘‘ Umsóknarfrestur rennur út sunnudaginn 4. ágúst 2013. Vinnslustöðin er í hópi stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins. Rekstrartekjur félagsins námu 13 milljörðum króna á árinu 2011. Starfsmenn Vinnslustöðvarinnar eru nú um 330 talsins og hefur fjölgað á hverju ári. Fyrirtækið greiddi rúma þrjá milljarða króna í laun á árinu 2011. Vinnslustöðin á og gerir út alls tíu skip til uppsjávarveiða, togveiða og netaveiða. Fyrirtækið stundar vinnslu uppsjávarfisks, saltfiskverkun, humarfrystingu og bolfiskvinnslu, auk þess að reka fiskimjölsverksmiðju. Félagið flytur árlega út 30 – 40 þúsund tonn af afurðum. Vinnslustöðin hf. Hafnargötu 2 900 Vestmannaeyjar Sími 488 8000 vsv@vsv.is • www.vsv.is • Enskukennari (heil staða) Um er að ræða ensku í 7.-10.bekk • Stærðfræðikennari (heil staða) Um er að ræða stærðfræði í 7.-10. bekk Frekari upplýsingar um störfin veitir Þórhildur Elfarsdóttir, skólastjóri Varmárskóla s. 8633297 Umsóknir með ferilsskrá sendist á netfangið: thorhildur@varmarskoli.is. Umsóknarfrestur um störfin er til og með 4. ágúst 2013. Skilyrði fyrir ráðningu er leyfisbréf grunnskólakennara Laun eru greidd í samræmi við kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ. Lausar stöður við Varmárskóla í Mosfellsbæ haustið 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.