Fréttablaðið - 20.07.2013, Blaðsíða 12
20. júlí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 12
Ég valdi áhrifaríkustu og fyndnustu myndirnar úr safninu mínu og þær sem mér þykir vænst um,“ segir Sunna Ben myndlistarkona þar
sem hún er að koma fyrir eigin
ljósmyndum í Skotinu, á efstu
hæð Grófarhússins. Flestar
eru þær frá Íslandi en einnig
Hollandi þar sem Sunna hefur
búið síðustu fjögur ár við mynd-
listarnám. „Svo hef ég alltaf haft
lag á að ferðast dálítið svo hér
eru líka Ítalía, Berlín og eitt og
annað,“ segir hún.
Ljósmyndun sem list
Sunna er Reykvíkingur en
hefur búið líka á Vopnafirði og
í Kantara borg í Englandi, auk
Amsterdam. Hún segir mynda-
vélina hafa verið förunaut sinn
nótt og dag síðustu árin. „Mér
finnst mikilvægt að vera alltaf
með myndavél á mér og sný við
og sæki hana ef ég hef gleymt
henni heima. Ég fæ ótrúlega
mikið út úr því að eiga fallega
og ítarlega skrá yfir líf mitt í
myndum frá því ég var sextán,
sautján ára. Þegar ég var að
undir búa sýninguna fór ég í
gegnum allar myndirnar mínar
og sá andlit fólks sem er kannski
horfið úr lífi mínu núna.“
Hún kveðst ávallt hafa
hugsað um ljósmyndunina
sem list. „Flestar myndirnar
á sýningunni eru frá síðustu
þremur, fjórum árum því það er
viðvanings bragur á þeim eldri.
Mér hefur farið fram,“ segir hún
brosandi.
Snobbar fyrir filmuvélum
Sunna kveðst snemma hafa lært
að snobba fyrir filmuvélum og
hafa verið svo heppin að finna
slíkar gersemar á flóamörkuðum
erlendis en flestar hafi hún samt
keypt dýrum dómum. „Ég hef
reynt að taka myndir á stafræna
vél en fæ aldrei litina og áferðina
sem ég sækist eftir. Ég á dýrar
stafrænar myndavélar en finnst
filmuvélar meira sjarmerandi.
Þá tek ég bara eina mynd og verð
alltaf að vanda mig en útkoman
verður aðeins tilviljanakenndari
og mér finnst eitthvað við það.
En ég er komin með ágætan
fókus í augað. Það lærist.“
Þetta er fyrsta einkasýning
Sunnu. Hún varð hissa þegar
hún uppgötvaði það. „Mér fannst
ég orðin svo sjóuð og vera búin
að sýna svo oft en nei, ég hef
þá aldrei sýnt ein áður. Svo það
er kominn tími til. Líka vegna
myndanna. Þær hafa sumar
verið á samsýningum, „verið
memm“, en aldrei fengið að vera
þær í friði.“
Að byrja með útvarpsþátt
Það er fullt að gerast hjá Sunnu
fyrir utan sýninguna. Teikningar
hennar seljast ágætlega og svo
kveðst hún hafa verið „að plötu-
snúðast“. Hún er að byrja með
útvarpsþátt á X-inu um konur í
tónlistarheiminum, ásamt vin-
konu sinni, Maríu Lilju Þrastar-
dóttur. Svo er hún að byrja á
ljósmyndaverkefni, fyrsta vel
skipulagða ljósmynda verkefninu
mjög lengi, að eigin sögn. „Ég
ætla að taka myndir af söfnurum
um allt land og söfnum þeirra.
Er búin að fá fallega pósta frá
fólki sem safnar ótrúlegustu
hlutum. Mér finnst þetta svo
áhugavert enda er ég með rosa-
lega söfnunar áráttu sjálf. Hef
safnað ljósmyndum í sjö ár og átt
milljónir af límmiðum og póst-
kortum, er enn að kaupa póstkort
alls staðar þótt opinberlega hafi
ég hætt að safna þeim þegar ég
var níu ára. Ég bjó alltaf í litlum
íbúðum þegar ég var að alast upp
en átti samt alltaf mín risasöfn
og fyllti allar geymslur.“
Ég með rosalega
söfnunaráráttu. Hef
safnað ljósmyndum í sjö
ár og átt billjónir af
límmiðum – og póst-
kortum, er enn að kaupa
póstkort alls staðar þó
opinberlega hafi ég hætt
að safna þeim þegar ég
var níu ára.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Alltaf með myndavél á mér
Sunna Ben Guðrúnardóttir myndlistarkona hefur gengið með myndavél í sjö ár og á þeim tíma
fangað mörg ævintýri á filmur. Sýning hennar Villikettir er í Skotinu á 6. hæð að Tryggvagötu 15.
SUNNA BEN Ég valdi áhrifaríkustu og fyndnustu myndirnar úr safninu mínu og þær sem mér þykir vænst um,“ segir hún.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bryggjuhátíð á Drangsnesi
Dagskrá dreifi st
um allt þorpið
Bæjarhátíð Árviss bryggjuhátíð á
Drangsnesi fer fram í dag. Hún hefst
með dorgveiðikeppni í Kokkálsvík
klukkan 10.30 og er fylgt eftir með
sjávarréttasmakki, markaðsstemningu
og kórsöng við frystihúsið. Þaðan
dreifist dagskráin um þorpið, þrír
ættliðir Strandakvenna sýna til dæmis
list sína í grunnskólanum. Grillveisla
og kvöldskemmtun fara fram í sam-
komuhúsinu Baldri og þar endar
dagurinn með Bryggjuhátíðarballi með
Stuðlabandinu.
Kristjana í Akureyrarkirkju
Blönduð
söngdagskrá
Tónleikar Kristjana Arngrímsdóttir
syngur á Sumartónleikum Akureyrar-
kirkju á morgun, sunnudag, klukkan
17. Með henni koma fram þeir Örn
Eldjárn og Jón Rafnsson. Þau munu
flytja blandaða söngdagskrá eins og
þeim einum er lagið. Kristjana var 14
ár í Tjarnarkvartettinum og hefur gefið
út nokkra geisladiska. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis.
Símon Birgisson
menningarritstjóri
Brimbretti og safnarúntur
„Ef veður leyfir ætla ég á brimbretti í Þorláks-
höfn. Svo langar mig að sjá stórmyndina Pacific
Rim í bíó og á sunnudaginn er stefnan sett
á safnarúnt, sérstaklega langar mig
að sjá sýningu Söru Riel.“
Þórunn Erlu Valdimarsdóttir
rithöfundur
Rölt með Gleðifélaginu
„Ég þarf að lesa enska þýðingu
á köflum úr krimmum mínum. Á
morgun er bíltúr í Skorradal og á
sunnudaginn röltir Gleðifélagið
Léttur mórall upp Búrfellsgjá við
Helgafell, suður af Heiðmörk.“
Ragnar Ingi Aðalsteinsson
doktor í bragfræði
Dúlla við handrit
„Ég er að fara yfir handrit sem
konan mín var að þýða og held
áfram að dúlla mér í því.
Ef styttir upp erum við hjónin rok-
in vestur í Dali að dytta að vatns-
lögninni við sumarbústaðinn.“
Þuríður H. Aradóttir
verk efna stjóri Markaðsstofu
Reykjaness
Bekkjarferð og útivist
„Ég er á leið í útilegu að Hamra-
görðum við Seljalandsfoss með
bekkjarfélögum úr MBA-náminu.
Ég ætla að bjóða upp á leiðsögn
um Nauthúsagil í Fljótshlíðinni.“
Sumarútgáfa forlaganna hefur sjaldan
verið blómlegri en í sumar og óþarfi að
sýta rigninguna í sumarfríinu á meðan
boðið er upp á slíkan eðalfélagsskap.
Við kíktum á nokkrar forvitnilegustu
bækurnar á sumarmarkaðnum.
Dagar úr sögu þagnarinnar eftir
Merethe Lindstrøm, sem hlaut Bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs 2012,
er mögnuð saga um fjölskylduleyndarmál
og þögnina sem eitrar út frá sér. Mögnuð
lesning sem enginn bókaunnandi ætti að
láta fram hjá sér fara.
Djöflatindur eftir Deon Meyer er án efa
forvitnilegasti krimminn á markaðnum.
Suðurafrísk glæpasaga með sterkum
persónum og stærri skammti af raunsæi
en algengt er í þessari bókmenntagrein.
Þú finnur hitann, rykið og molluna nánast
á eigin skinni og þakkar þínum sæla fyrir
rigninguna.
Maður sem heitir Ove eftir Fredrik
Bachman hefur trónað á toppi metsölu-
lista vikum saman og það algjörlega verð-
skuldað. Ef þú ert ekki enn búinn að lesa
hana er engin spurning um að hún er einn
besti ferðafélaginn í fríinu.
Hún er horfin eftir Gillian Flynn er
annar krimmi sem ekki svíkur. Óvenju-
legasta glæpasaga ársins og svo hroll-
vekjandi að óhætt er að lofa svefnlausum
nóttum við lesturinn. Er það ekki einmitt
aðalkosturinn við að vera í fríi að þurfa
ekki að sofna snemma?
Fyrir þá sem hallast að klassíkinni er
komin kiljuútgáfa af meistaraverki Jóns
Trausta um Önnu frá Stóruborg. Skyldu-
lesning fyrir alla áhugamenn um íslenskar
bókmenntir og einkum og sérílagi þá sem
dvelja í sumarbústöðum í Grímsnesinu.
Hámenningarvitar geta síðan engan
veginn látið tímaritröðina 1005 fram hjá
sér fara. Þrjú verk sem þú verður að lesa,
bæði þér til skemmtunar og til að verða
gjaldgengur í menningarumræðunni. Er
uppseld en fæst sem rafbók, sem er ein-
mitt kjörin leið til að minnka farangurinn
í fríinu. Góða ferð. - fbs
Nú er veður til að lesa
Oft var þörf en nú er algjör nauðsyn að hafa eitthvað gott að lesa í sumarfríinu.
GOTT LESEFNI
Bækur eru
bestu ferða-
félagarnir í
sumarfríinu.
HELGIN
20. júlí 2013 LAUGARDAGUR