Fréttablaðið - 20.07.2013, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 20.07.2013, Blaðsíða 22
20. júlí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22 7 af 10 hröðustu svikahrappar Frjálsíþróttaheimurinn varð fyrir áfalli í vikunni þegar greint var frá því að Asafa Powell og Tyson Gay, tveir af fótfráustu 100 metra hlaupurum heimsins, hefðu fallið á lyfjaprófi. Þegar var þröngt á þingi hjá þeim fljótustu sem gripnir hafa verið glóð- volgir við lyfjaneyslu. Þegar peningar og frægð eru annars vegar munu menn ávallt dansa á línunni segir Donovan Bailey. Donovan Bailey, fyrrverandi heims- methafi í 100 metra hlaupi og Ólympíumeistari í greininni frá því í Atlanta í Bandaríkjunum árið 1996, sagðist í viðtali í vikunni vera dapur, vonsvikinn og í miklu uppnámi vegna tíðinda vikunnar. „Asafa Powell og Tyson Gay eru reynslumiklir hlauparar. Þeir þekkja reglurnar og hafa verið góðir sendiherrar fyrir íþróttina,“ sagði Bailey. Hann segist ekki skilja hvernig jafnreynslumiklir hlauparar hafi getað komið sér í þessa stöðu. Aðspurður hvers vegna íþrótta- menn í fremstu röð neyti lyfja sagði Kanadamaðurinn: „Í hvert skipti sem peningar og frægð koma nærri verður alltaf reynt að dansa á línunni.“ Bailey sagðist handviss um að hægt væri að ná árangri í fremstu röð án aðstoðar lyfja. Hann sjálfur væri gott dæmi um slíkt og vonaðist til þess að ungir og efnilegir íþróttamenn færu að for- dæmi sínu. „Engin spurning. Í tíu ár var ég sá besti í heimi og sannaði að góðar æfingar, rétt mataræði, frábærir þjálfarar og miklar fórnir gerðu mér kleift að setja heimsmet og verða bæði heims- og Ólympíumeistari.“ HEFUR TRÖLLATRÚ Á HEIÐARLEIKA USAINS BOLT NESTA CARTER ➜ Land: Jamaíka. ➜ Besti tími: 9,78 sek. í Rieti á Ítalíu í ágúst árið 2010. ➜ Ranglega var greint frá því að hann hefði fallið á lyfjaprófi ásamt Powell og Gay. Það hefur verið dregið til baka. Hann er til alls vís á HM í Moskvu. 9,78 BEN JOHNSON ➜ Land: Kanada. ➜ Besti tími: 9,79 sek. á Ólympíuleikunum í Seúl í september 1988. ➜ Dómur: Tveggja ára bann 1988 og síðar bann til lífstíðar 1993. ➜ Efni: Vefaukandi karlkynssterarnir stanozolol (1988) og testosterón (1993). 9,79 MAURICE GREENE ➜ Land: Bandaríkin. ➜ Besti tími: 9,79 sek. í Aþenu í júní 1999. ➜ Aldrei dæmdur en viðurkenndi að hafa keypt stera af kringlukastara frá Mexíkó árið 2008. Sagðist hafa keypt þá fyrir aðra íþróttamenn og fullyrti að hann hefði aldrei neytt ólöglegra lyfja. Greene er hættur en hefur starfað í fjölmiðlum og meðal annars stýrt sjónvarpsþætti um frjálsar á Eurosport. 9,79 9,58 USAIN BOLT ➜ Land: Jamaíka. ➜ Besti tími: 9,58 sek. í Berlín í ágúst 2009. ➜ Aldrei fallið á lyfjaprófi. TYSON GAY ➜ Land: Bandaríkin. ➜ Besti tími: 9,69 sek. í Kína árið 2009. ➜ Dómur: Ekki búið að kveða upp dóminn. ➜ Efni: Óuppgefið. 9,69 9,78 TIM MONTGOMERY ➜ Land: Bandaríkin. ➜ Besti tími: 9,78 sek. í París í september árið 2002. ➜ Dómur: Tveggja ára bann frá 2005-2007. ➜ Efni: Vaxtarhormón. Hættur keppni. Var dæmdur í fimm ára fangelsi haustið 2008 fyrir sölu á heróíni. YOHAN BLAKE ➜ Land: Jamaíka. ➜ Besti tími: 9,69 sek. á Demantamóti í Sviss í ágúst árið 2012. ➜ Dómur: Þriggja mánaða keppnisbann árið 2009. ➜ Efni: Örvandi efnið methylhexanam- ine sem var ekki á bannlista en Blake fékk minniháttar refsingu. Missir af HM í Moskvu vegna meiðsla. 9,69 9,72 ASAFA POWELL ➜ Land: Jamaíka. ➜ Besti tími: 9,72 sek. á Demantamóti í Sviss í september árið 2008. ➜ Dómur: Ekki búið að kveða upp dóminn. ➜ Efni: Örvandi efnið oxilofrine. 9,77 JUSTIN GATLIN ➜ Land: Bandaríkin. ➜ Besti tími: 9,77 sek. í Doha í Katar í maí árið 2006. ➜ Dómur: Fjögurra ára bann frá 2006-2010. ➜ Efni: Vefaukandi karlkynssterarnir testosterón. Hljóp hraðar en Bolt á móti í Róm í júní. Hans helsti keppinautur í Moskvu ásamt Nesta Carter. 9,80 STEVE MULLINGS ➜ Land: Jamaíka. ➜ Besti tími: 9,80 sek í Oregon í Bandaríkjunum í júní 2011. ➜ Dómur: Lífstíðarbann árið 2011. ➜ Efni: Þvagræsilyfið Furosemide. Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is SIGURSTRANGLEGUR Usain Bolt fær minni samkeppni en reiknað hafði verið með á heimsmeistaramótinu í Moskvu í næsta mánuði. Tyson Gay er fallinn og Yohan Blake er frá vegna meiðsla. NORDICPHOTOS/AFP Hendið þeim í fangelsi og leyfið þeim að kynnast lífinu þar. Við erum að tala um ólögleg lyf. Þegar lögreglan grípur fólk á götunni að neyta ólög- legra lyfja þá er það sent í steininn.“ Þau orð lét Jamaíkamað- urinn Asafa Powell falla í júní 2008 aðspurður hvernig binda ætti endi á lyfja- misnotkun íþróttamanna. Allt frá því Ben Johnson féll á lyfjaprófinu fræga í Seúl árið 1988 hefur hver hlaupagarpurinn á fætur öðrum farið úr hlutverki hetjunnar í hlutverk skúrksins. Virðist litlu skipta hvaða yfir- lýsingar og reiði birtist í orðum þeirra á árum fyrr líkt og í tilfelli Powells hér að ofan. Um leikþátt var að ræða og menn virtust til- búnir að fórna öllum trúverðug- leika fyrir frægð og meðfylgjandi ríkidæmi. „Ég trúi á heiðarleika og þess utan þá myndi mamma drepa mig (ef ég notaði ólög- leg efni),“ sagði Tyson Gay í viðtali á heimasíðu lyfjaeftir- lits Bandaríkjanna árið 2008. Gay kallaði sjálfan sig „Mr. Clean“ sem á íslensku mætti nefna „Hinn lyfjalausa“. Í dag bíða kollegarnir Powell og Gay eftir því að dómur falli og lengd keppnisbanns þeirra verði ljós. Tíu hlauparar hafa hlaupið 100 metrana á eða undir 9,80 sekúndum. Af þeim hafa sjö fall- ið á lyfjaprófi, auk þess sem einn hefur viðurkennt að hafa fjárfest í lyfjum fyrir liðsfélaga. Hlut- fallið er ótrúlega hátt og íþróttin hefur skiljanlega misst mikinn trúverðugleika. Svo stórt er vandamálið orðið að fólk veltir í fullri alvöru fyrir sér hvort hætta eigi lyfjaeftirliti fyrst svo margir notist við lyf. Vonandi kemur þó aldrei til þess enda á 100 metra hlaup, líkt og aðrar íþróttir, að snúast um hæfi- leika fólksins á íþróttavellinum en ekki á rannsóknarstofunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.