Fréttablaðið - 20.07.2013, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 20.07.2013, Blaðsíða 25
 | FÓLK | 3 LAUSN VIÐ TIMBURMÖNNUM ICECARE KYNNIR Nýjung á Íslandi. DRINKOFF-töflur sem auðvelda líkamanum að vinna úr alkóhóli á auðveldari og hraðari máta. Margir kannast við vanlíðan daginn eftir að áfengis hefur verið neytt. Sumir komast vart fram úr rúmi sökum þynnku. Nú er komin lausn á því vandamáli. DRINKOFF® töflurnar innihalda náttúruleg efni sem auðvelda líkamanum að vinna úr alkóhóli á auðveldari og hraðari máta. Fumaric-sýra hefur verið notuð í matvæli og lækkar sýru- stig í fæðu. Succinic-sýra hjálpar líkamanum að brenna alkóhóli hraðar og fumaric-sýra hjálpar til við niðurbrot á acetaldehýði sem myndast þegar alkóhól brotnar niður í líkamanum og minnkar þannig óþægindi í kjölfar neyslu áfengis. DRINKOFF® hjálpar til við hraðara niður brot áfengis í líkamanum og auðveldar lifrinni við afeitrun og eykur einnig orku. C-vítamínið í töflunum stuðlar að réttum blóðsykurs- styrk og styður við ónæmis kerfið í niðurbrotsferlinu. DRINKOFF® töflurnar frá Vitrum innihalda efni sem eru ekki lyfseðilsskyld. Lyfjastofnun hefur gefið leyfi fyrir sölu vörunnar. Ráðlögð notkun: Takið tvær töflur áður en fyrsti áfengi drykkurinn er drukkinn og tvær töflur eftir síðasta áfenga drykk- inn, áður en farið er að sofa. Ef drykkja áfengis stendur í lengri tíma má taka 1-2 töflur eftir hvern drykk. Aldrei skal taka fleiri en sex töflur að kvöldi. Varúð: Aðeins ætlað fólki eldra en 20 ára. Ekki ætlað barnshafandi konum eða mjólkandi mæðrum. Geymið þar sem börn ná ekki til. Ef önnur lyf eru tekin að staðaldri ber að ráðfæra sig við fagfólk áður en töflurnar eru teknar. Í tilfellum þar sem of stórir skammtar eru teknir skal hafa strax samband við lækni. DrinkOff fæst í öllum apótekum og í verslunum Hagkaups. BETRI LÍÐAN Birna Gísladóttir hjá Icecare segist hafa heyrt frá ánægðu fólki sem prófað hefur Drinkoff. „Þetta svín- virkar.“ DRINKOFF Innihaldsefni í Drinkoff eru: Succinic-sýra Fumaric-sýra L-Glútamín C-vítamín Kalínklóríð Fólinsýra Efnin hraða niðurbroti áfengis í líkamanum og auðvelda lifrinni afeitrun. Jóhanna Þorvaldsdóttir fékk reglulega mjög sársaukafulla ristilkrampa sem enduðu oftast með því að hún leið nánast út af. „Ég var yfirleitt dágóða stund að jafna mig eftir ristilkrampaköstin. Ég kveið fyrir að fara á mannfögnuði og í matarboð því ég var hrædd um að fá ristilkrampa- kast þegar ég var ekki heima við. Ég ræddi þetta við lækna sem vissu ekki hvers vegna ég fékk köstin og áttu engin sérstök ráð handa mér. Svo var mér bent á af vinkonu að prófa Bio-Kult Candéa,“ segir Jóhanna. „Ég hafði svo sem engu að tapa og keypti mér einn pakka og byrjaði að taka inn hylkin. Ég fann nánast strax mun. Meltingin varð allt önnur og núna tæp- lega tveimur árum eftir að ég byrjaði að taka Bio-Kult hef ég ekki enn fengið ristil- krampakast. Ég fagna þessu vitanlega því bæði líður mér betur í maga, ég get treyst meltingunni og ég er laus úr viðjum ristil- krampans. Ég hika ekki við að mæla með Bio-Kult Candéa við vini mína og kunningja og geri það óspart. LAUS VIÐ KLÁÐA „Dóttir mín á unglingsaldri var búin að við óþægindi og kláða á kynfærasvæði að stríða í nokkra mánuði og hafði prófað ýmis lyf við sveppasýkingu. Ekkert virkaði á vandamálið. Ég las um Bio-Kult Candéa og ákvað að kaupa pakka fyrir hana til að prófa, það sakaði ekki þar sem öll sveppalyfin náðu ekki niður kláðanum. Fljótlega fann hún mun á sér og núna passar hún vel upp á að gleyma ekki að taka hylkin, því í sumar, þegar hún gleymdi að taka hylkin í nokkra daga, blossaði sveppasýkingin upp aftur. Við mæðgur viljum þakka fyrir, því að það er svo gott að geta leyst vandamálin á náttúrulegan hátt í staðinn fyrir að nota lyf við sveppasýkingu,“ segir Linda sem er þakklát fyrir þessa lausn. Bio-Kult Candéa fæst í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaða. BIO-KULT CANDÉA VIRKAR VEL Á SVEPPASÝKINGUNA Bio-Kult Candéa er blanda af vinveittum gerlum, hvítlauk og þrúgukjarnaþykkni sem virkar sem öflug vörn gegn Candida-sveppasýkingu í meltingarvegi kvenna og karla. Einkenni sveppa- sýkingar geta meðal annars verið munnangur, fæðuóþol, pirringur, skapsveiflur, þreyta, meltingartruflanir, brjóstsviði, verkir í liðum, mígreni og alls kyns húðvandamál. BIO-KULT CANDÉA Virkar vel á þá sem eru með óþægindi í maga. DRINKOFF Engin þynnka lengur. MYND/ARNTHOR Ásdís Lára finnur mikinn mun á sér eftir að hún byrjaði að taka inn Femarelle. MYND/GVA Mín upplifun af notkun Femarelle er mjög góð. Þótt ég sé ekki enn orðin fimmtug er ég búin að glíma við ýmiss konar vandamál varðandi blæðingar og tíðahvörf í mörg ár. Þetta byrjaði með gríðarlegri fyrirtíðaspennu þegar ég fór að nálgast fertugt,“ segir Ásdís Lára Runólfs- dóttir. „Samhliða mjög slæmum skapsveiflum og andlegri vanlíðan þá jókst tíðni mígreniskasta gríðarlega. Ég fékk alltaf mígreni daginn sem ég byrjaði á blæðingum,“ segir hún enn fremur. „Ég prófaði allt, breytti matar æðinu, tók inn ýmiss konar vítamín og bætiefni en ekkert virkaði. Síðastliðin þrjú ár hef ég prófað mig áfram í gegnum úrvalið af því sem hefur verið í boði vegna einkenna tíðahvarfa. Ekkert virkaði nógu vel og á sama tíma fór meira að bera á einkennum sem gátu eingöngu átt við tíðahvörf. Það tók mig langan tíma að átta mig á að ég væri að fara inn í tíðahvörf því eldri konur í minni fjölskyldu hafa ekki þekkt þetta vandamál. Í lok síðasta árs prófaði ég hormóna- töflur í þrjá mánuði með slæmum árangri, þá leið mér enn verr,“ segir Ásdís. „Þegar Femarelle kom á markaðinn var ég alveg komin að því að gefast upp. Hitaköstin urðu stöðugt verri og verri. Ég vissi ekki hvernig ég átti að klæða mig lengur. Svefnlausar nætur vegna nætursvita og hita- kasta. Mér leið eins og ég logaði innan frá. Það tók Femarelle um það bil tvær vikur að virka, á þriðju viku fann ég ekki fyrir neinum einkennum. Nú líður mér mjög vel bæði andlega og líkam- lega. Ég þarf ekki lengur að rífa mig úr fötunum þegar ég sit í sófanum á kvöldin vegna óbærilegs hita og sef mjög vært í langerma náttkjólum á næturnar.“ HÆTTI Á HORMÓNUM OG LÍÐUR VEL MEÐ FEMARELLE Kristín Bjarnadóttir fór í aðgerð þar sem þurfti að fjarlægja móðurlíf og báða eggjastokka árið 2000. „Þar sem ég var aðeins 44 ára á þeim tíma var mér ráðlagt af kvensjúkdómalækni mín- um að fara á hormónalyf sem ég hef tekið síðan. Um síðustu áramót fór ég að velta fyrir mér að hætta að taka hormón. Ég var samt í vafa því ég hafði áhyggjur af hvernig mér mundi líða án þeirra og eins hvað ég mundi geta tekið í staðinn til þess að draga úr einkenn- um breytingaskeiðs. Ég ákvað að prófa Femarelle og sé ekki eftir því. Ég komst að því að ég hafði verið með miklar aukaverkanir af hormónunum en mér líður miklu betur að öllu leyti eftir að ég byrjaði að taka Femarelle. Verkir í stoðkerfi hafa minnkað stórlega og svæsnum og þrálátum höfuðverkjaköstum hefur fækkað en þau stóðu oft yfir í nokkra daga. Í dag líður mér miklu betur að öllu leyti, þökk sé Femarelle.“ FEMARELLE ER ÖRUGGUR KOSTUR Loksins er komin á markaðinn náttúruleg lausn fyrir konur á breytingaaldri. Femarelle er úr jurtaefnum og slær á einkenni tíðahvarfa. FEMARELLE – ÖRUGGUR KOSTUR Femarelle er náttúrulegt jurtaSERMi (Selective Estrogen Receptor Modula- tor) gert úr jurtaefnum. Innihald hylkjanna er: 322 mg DT56a (tofu extract) og 108 mg hörfræjaduft. FEMARELLE ER EKKI HORMÓN OG INNIHELDUR EKKI ÍSÓFLAVÓNÍÐA. Fæst í öllum apótekum, heilsu- vöruverslunum og í heilsuhillum stórmarkaða. UPPLÝSINGAR www.icecare.is og Femarelle á Facebook.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.