Fréttablaðið - 20.07.2013, Blaðsíða 25
| FÓLK | 3
LAUSN VIÐ TIMBURMÖNNUM
ICECARE KYNNIR Nýjung á Íslandi. DRINKOFF-töflur sem auðvelda líkamanum að vinna úr alkóhóli á auðveldari og hraðari máta.
Margir kannast við vanlíðan daginn eftir að áfengis hefur verið neytt. Sumir
komast vart fram úr rúmi sökum
þynnku. Nú er komin lausn á því
vandamáli. DRINKOFF® töflurnar
innihalda náttúruleg efni sem
auðvelda líkamanum að vinna úr
alkóhóli á auðveldari og hraðari
máta. Fumaric-sýra hefur verið
notuð í matvæli og lækkar sýru-
stig í fæðu. Succinic-sýra hjálpar
líkamanum að brenna alkóhóli
hraðar og fumaric-sýra hjálpar til
við niðurbrot á acetaldehýði sem
myndast þegar alkóhól brotnar
niður í líkamanum og minnkar
þannig óþægindi í kjölfar neyslu
áfengis.
DRINKOFF® hjálpar til við
hraðara niður brot áfengis í
líkamanum og auðveldar lifrinni
við afeitrun og eykur einnig
orku. C-vítamínið í töflunum
stuðlar að réttum blóðsykurs-
styrk og styður við ónæmis kerfið
í niðurbrotsferlinu.
DRINKOFF® töflurnar frá
Vitrum innihalda efni sem eru ekki
lyfseðilsskyld. Lyfjastofnun hefur
gefið leyfi fyrir sölu vörunnar.
Ráðlögð notkun: Takið tvær
töflur áður en fyrsti áfengi
drykkurinn er drukkinn og tvær
töflur eftir síðasta áfenga drykk-
inn, áður en farið er að sofa. Ef
drykkja áfengis stendur í lengri
tíma má taka 1-2 töflur eftir hvern
drykk. Aldrei skal taka fleiri en sex
töflur að kvöldi.
Varúð: Aðeins ætlað fólki eldra
en 20 ára. Ekki ætlað barnshafandi
konum eða mjólkandi mæðrum.
Geymið þar sem börn ná ekki til. Ef
önnur lyf eru tekin að staðaldri ber
að ráðfæra sig við fagfólk áður en
töflurnar eru teknar. Í tilfellum þar
sem of stórir skammtar eru teknir
skal hafa strax samband við lækni.
DrinkOff fæst í öllum apótekum
og í verslunum Hagkaups.
BETRI
LÍÐAN Birna
Gísladóttir hjá
Icecare segist
hafa heyrt frá
ánægðu fólki
sem prófað
hefur Drinkoff.
„Þetta svín-
virkar.“
DRINKOFF
Innihaldsefni í
Drinkoff eru:
Succinic-sýra
Fumaric-sýra
L-Glútamín
C-vítamín
Kalínklóríð
Fólinsýra
Efnin hraða
niðurbroti áfengis
í líkamanum og
auðvelda lifrinni
afeitrun.
Jóhanna Þorvaldsdóttir fékk reglulega
mjög sársaukafulla ristilkrampa sem
enduðu oftast með því að hún leið nánast
út af. „Ég var yfirleitt dágóða stund að
jafna mig eftir ristilkrampaköstin. Ég kveið
fyrir að fara á mannfögnuði og í matarboð
því ég var hrædd um að fá ristilkrampa-
kast þegar ég var ekki heima við. Ég ræddi
þetta við lækna sem vissu ekki hvers vegna
ég fékk köstin og áttu engin sérstök ráð
handa mér. Svo var mér bent á af vinkonu
að prófa Bio-Kult Candéa,“ segir Jóhanna.
„Ég hafði svo sem engu að tapa og
keypti mér einn pakka og byrjaði að taka
inn hylkin. Ég fann nánast strax mun.
Meltingin varð allt önnur og núna tæp-
lega tveimur árum eftir að ég byrjaði að
taka Bio-Kult hef ég ekki enn fengið ristil-
krampakast. Ég fagna þessu vitanlega því
bæði líður mér betur í maga, ég get treyst
meltingunni og ég er laus úr viðjum ristil-
krampans.
Ég hika ekki við að mæla með Bio-Kult
Candéa við vini mína og kunningja og geri
það óspart.
LAUS VIÐ KLÁÐA
„Dóttir mín á unglingsaldri var búin að
við óþægindi og kláða á kynfærasvæði að
stríða í nokkra mánuði og hafði prófað
ýmis lyf við sveppasýkingu. Ekkert
virkaði á vandamálið. Ég las um Bio-Kult
Candéa og ákvað að kaupa pakka fyrir
hana til að prófa, það sakaði ekki þar sem
öll sveppalyfin náðu ekki niður
kláðanum. Fljótlega fann hún
mun á sér og núna passar hún
vel upp á að gleyma ekki að taka
hylkin, því í sumar, þegar hún
gleymdi að taka hylkin í nokkra
daga, blossaði sveppasýkingin
upp aftur. Við mæðgur viljum
þakka fyrir, því að það er svo
gott að geta leyst vandamálin á
náttúrulegan hátt í staðinn fyrir
að nota lyf við sveppasýkingu,“
segir Linda sem er þakklát fyrir
þessa lausn.
Bio-Kult Candéa fæst í öllum
apótekum, heilsuverslunum og
heilsuhillum stórmarkaða.
BIO-KULT CANDÉA VIRKAR VEL Á SVEPPASÝKINGUNA
Bio-Kult Candéa er blanda af vinveittum gerlum, hvítlauk og þrúgukjarnaþykkni sem virkar sem
öflug vörn gegn Candida-sveppasýkingu í meltingarvegi kvenna og karla. Einkenni sveppa-
sýkingar geta meðal annars verið munnangur, fæðuóþol, pirringur, skapsveiflur, þreyta,
meltingartruflanir, brjóstsviði, verkir í liðum, mígreni og alls kyns húðvandamál.
BIO-KULT
CANDÉA
Virkar vel á þá
sem eru með
óþægindi í maga.
DRINKOFF Engin þynnka lengur.
MYND/ARNTHOR
Ásdís Lára finnur mikinn mun á sér eftir að
hún byrjaði að taka inn Femarelle. MYND/GVA
Mín upplifun af notkun Femarelle er mjög góð.
Þótt ég sé ekki enn orðin fimmtug er ég búin
að glíma við ýmiss konar vandamál varðandi
blæðingar og tíðahvörf í mörg ár. Þetta byrjaði
með gríðarlegri fyrirtíðaspennu þegar ég fór
að nálgast fertugt,“ segir Ásdís Lára Runólfs-
dóttir. „Samhliða mjög slæmum skapsveiflum og
andlegri vanlíðan þá jókst tíðni mígreniskasta
gríðarlega. Ég fékk alltaf mígreni daginn sem ég
byrjaði á blæðingum,“ segir hún enn fremur.
„Ég prófaði allt, breytti matar æðinu, tók
inn ýmiss konar vítamín og bætiefni en ekkert
virkaði. Síðastliðin þrjú ár hef ég prófað mig
áfram í gegnum úrvalið af því sem hefur verið í
boði vegna einkenna tíðahvarfa.
Ekkert virkaði nógu vel og á sama tíma fór
meira að bera á einkennum sem gátu eingöngu
átt við tíðahvörf. Það tók mig langan tíma að átta
mig á að ég væri að fara inn í tíðahvörf því eldri
konur í minni fjölskyldu hafa ekki þekkt þetta
vandamál. Í lok síðasta árs prófaði ég hormóna-
töflur í þrjá mánuði með slæmum árangri, þá
leið mér enn verr,“ segir Ásdís.
„Þegar Femarelle kom á markaðinn var ég
alveg komin að því að gefast upp.
Hitaköstin urðu stöðugt verri og verri. Ég
vissi ekki hvernig ég átti að klæða mig lengur.
Svefnlausar nætur vegna nætursvita og hita-
kasta. Mér leið eins og ég logaði innan frá. Það
tók Femarelle um það bil tvær vikur að virka, á
þriðju viku fann ég ekki fyrir neinum einkennum.
Nú líður mér mjög vel bæði andlega og líkam-
lega. Ég þarf ekki lengur að rífa mig úr fötunum
þegar ég sit í sófanum á kvöldin vegna óbærilegs
hita og sef mjög vært í langerma náttkjólum á
næturnar.“
HÆTTI Á HORMÓNUM OG LÍÐUR VEL MEÐ
FEMARELLE
Kristín Bjarnadóttir fór í
aðgerð þar sem þurfti að
fjarlægja móðurlíf og báða
eggjastokka árið 2000. „Þar
sem ég var aðeins 44 ára á
þeim tíma var mér ráðlagt
af kvensjúkdómalækni mín-
um að fara á hormónalyf
sem ég hef tekið síðan. Um
síðustu áramót fór ég að
velta fyrir mér að hætta að
taka hormón. Ég var samt
í vafa því ég hafði áhyggjur
af hvernig mér mundi líða
án þeirra og eins hvað ég
mundi geta tekið í staðinn
til þess að draga úr einkenn-
um breytingaskeiðs.
Ég ákvað að prófa Femarelle og sé ekki
eftir því. Ég komst að því að ég hafði verið
með miklar aukaverkanir af hormónunum en
mér líður miklu betur að öllu leyti eftir að ég
byrjaði að taka Femarelle. Verkir í stoðkerfi hafa
minnkað stórlega og svæsnum og þrálátum
höfuðverkjaköstum hefur fækkað en þau stóðu
oft yfir í nokkra daga.
Í dag líður mér miklu betur að öllu leyti,
þökk sé Femarelle.“
FEMARELLE ER ÖRUGGUR KOSTUR
Loksins er komin á markaðinn náttúruleg lausn fyrir konur á breytingaaldri. Femarelle er úr jurtaefnum og slær á einkenni tíðahvarfa.
FEMARELLE
– ÖRUGGUR KOSTUR
Femarelle er náttúrulegt jurtaSERMi
(Selective Estrogen Receptor Modula-
tor) gert úr jurtaefnum. Innihald
hylkjanna er: 322 mg DT56a (tofu
extract) og 108 mg hörfræjaduft.
FEMARELLE ER EKKI HORMÓN OG
INNIHELDUR EKKI ÍSÓFLAVÓNÍÐA.
Fæst í öllum apótekum, heilsu-
vöruverslunum og í heilsuhillum
stórmarkaða.
UPPLÝSINGAR
www.icecare.is og Femarelle á
Facebook.