Fréttablaðið - 20.07.2013, Blaðsíða 64
Mest lesið
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Nú er
opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
ALDUR 22 ára
FORELDRAR Ellen Kristjánsdóttir og
Eyþór Gunnarsson.
Sísý Ey hitaði upp fyrir Nile Rodgers í
vikunni og hann hreifst svo af Elínu að
hann kallaði hana Tracy Chapman Íslands.
Elín Ey
Tónlistarkona
NÆRMYND
„Elín er bara stórkostleg á allan hátt.
Sem dóttir, listamaður, barnabarn
og manneskja. Hún er eiginlega full-
komin og hefur alltaf verið. Rosalega
flinkur kokkur sem hefur gaman að
því að elda og finnst gott að fara
út í sveit og lesa ljóð og taka því
rólega. Það segir töluvert um hana að
uppáhaldsdýrið hennar er
letidýr og ég meina það á
góðan hátt.“
Ellen Kristjánsdóttir
móðir
„Hún er ein uppáhaldsmanneskjan
mín í heiminum. Rosalega góð vin-
kona og alltaf til staðar fyrir vini
sína. Það er gott að leita til hennar
og hún hefur þann eiginleika að fólki
finnst gott að tala við hana. Hún
hreyfir sig í dálítið öðrum takti en
annað fólk og er stundum eins og
hún sé ekki beint á staðnum en sá
taktur hentar mér
mjög vel og mér
finnst frábært
að vinna með
henni.“
Myrra Rós
vinkona
„Elín er litla, yndislega, fallega systir
mín. Ég hef verið ánægð með hana
frá því daginn sem hún fæddist, hún
er svo hæfileikarík og góð. Stundum
hreyfir hún sig ekki alveg jafn hratt og
ég myndi vilja, ég er smá
ofvirk en hún er van-
virk. En mér finnst það
oftast bara krúttlegt.“
Sigríður Eyþórsdóttir
systir