Fréttablaðið - 24.07.2013, Side 1
FRÉTTIR
BÍÓ HEFUR ÁHRIF Á FERÐAVAL
Kvikmyndir hafa áhrif á ferðalöngun fólks, að því er kemur
fram í könnun sem hotels.com gerði í Danmörku. Svo virðist
sem annan hvern Dana langi til að ferðast þegar fallegt um-
hverfi er sýnt í bíómynd. Kvikmyndir geta því haft áhrif á
næsta áfangastað í sumarfríinu.
EKTA AMERÍSKNAUT
Skipholti 29b • S. 551 0770
ÚTSALA!
Á BÓLAKAFI
Í GRÍNI
BJÖRN BRAGI RANNSAKAR GRÍNÞÆTT-INA OG BRANDARANA SEM BREYTTU HÚMOR ÍSLENDINGA Í FRÆÐANDI OG FYNDNUM ÞÁTTUM SEM HEFJAST Á
STÖÐ 2 Í ÁGÚST.
OZ HEFUR SLEGIÐ Í GEGN HJÁ ÍSLENDINGUM Á FERÐ UM LANDIÐ
GAME OF THRONES
Tökur hefjast hér á landi á
næstu dögum.
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 201310. TÖLUBLAÐ 1. ÁRGANGUR
DAGSKRÁRBLAÐ STÖÐVAR 2
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Miðvikudagur
10
2 SÉRBLÖÐ
Stöð 2 | Fólk
Sími: 512 5000
24. júlí 2013
172. tölublað 13. árgangur
SKOÐUN Taka þarf stjórnarskrárbreyt-
ingar út úr hráskinnaleik flokkastjórn-
mála, skrifar Árni Páll Árnason. 11
MENNING Íris Hera Norðfjörð súpu-
gerðardrottning opnar veitingastað í
gamla Framsóknarhúsinu. 26
SPORT Aron Jóhannsson fær mikið
ábyrgðarhlutverk hjá AZ Alkmaar í
hollensku úrvalsdeildinni. 22
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 SÍMI 568 9090 • www.sm.is
24.990
PANASONIC DMCSZ7
VER ÁÐ ÐUR 34 99. 0
ALVÖRU MYNDAVÉL FYRIR
KRÖFUHARÐA NÚ Á ÁÐUR
ÓÞEKKTU VERÐI
14.1 milljónir punkta
Nú er opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
ÁKVEDDU ÞIG Á WOW.IS
HEILBRIGÐISMÁL „Staða kynsjúk-
dóma á Íslandi í dag er skelfileg,“
segir Baldur Tumi Baldursson, yfir-
læknir á húð- og kynsjúkdómadeild
Landspítalans.
Fleiri klamydíusmit hafa greinst
á Íslandi nú í ár en á sama tíma í
fyrra. Baldur hefur áhyggjur af því
að margar stúlkur séu sýktar án
þess að vita af því.
„Það er hópur af ungum stúlkum,
allt að fimm prósent á aldrinum 18
til 25 ára, sem er með króníska
klamydíu án þess að vita af því.
Við erum með flestar klamydíu-
greiningar miðað við fólksfjölda í
Evrópu,“ segir Baldur.
„Þetta leiðir til gríðarlegrar
óhamingju þegar stúlkurnar eiga
síðan í miklum erfiðleikum með að
eignast börn,“ bætir Baldur við en
bendir þó á að taka beri mælingum
með fyrirvara. Þótt hér sé hæsta
hlutfall klamydíusmita miðað við
höfðatölu megi það líka þakka því
að eftirlit með smitum sé gott hér í
samanburði við önnur lönd.
Undir þetta tekur Guðrún Sig-
mundsdóttir, yfirlæknir á sótt-
varnar sviði hjá Landlækni. „Ég
efast stórlega um að við séum
Evrópu meistarar í klamydíu smitum
í raun, þó að við séum með svona
margar greiningar,“ segir Guðrún.
- js/ sjá síðu 6
Eigum met í klamydíu
Hvergi í Evrópu greinast fleiri á aldrinum 18 til 25 ára með klamydíu en á Íslandi.
Íslendingar veigra sér við að nota smokk. Kynhegðun þeirra er óábyrgari en ann-
arra Norðurlandabúa. Einkennalaus klamydíusmit oft ástæða ófrjósemisvanda.
Samkvæmt rannsókn Laufeyjar Tryggvadóttur faraldsfræðings frá árunum
2004 til 2005 hafði fimmta hver íslenska kona sem fædd var eftir 1973
greinst með kynfæravörtur. „Áhættukynhegðun íslenskra ungmenna í kynlífi
er alltaf að færast í aukana,“ segir Laufey.
Í rannsókn Laufeyjar kemur fram að ungar íslenskar konur sofa nú hjá fleirum
en stöllur þeirra á Norðurlöndunum. Fyrir vikið er tíðni klamydíusmita og
kynfæravörtusmita hærri hér en þar.
Íslendingar stunda hættulegt kynlíf
Bolungarvík 14° NA 5
Akureyri 20° NA 3
Egilsstaðir 18° A 4
Kirkjubæjarkl. 17° A 5
Reykjavík 17° NA 3
BONGÓBLÍÐA Í dag verður hæg
austlæg átt og bjartviðri en þokuloft
allra austast. Hiti 13-25 stig, hlýjast inn
til landsins. 4
HÚSAVÍK Hvalasafnið á Húsavík fær
14.000 Bandaríkjadali, eða um 1,7
milljón króna, í styrk frá auðugum
bandarískum hjónum.
Hjónin eiga ferðaskrifstofu og
komu fyrst hingað til lands með
einkaþotu árið 2001. Stórt skemmti-
ferðaskip á þeirra vegum siglir til
Húsavíkur um helgina. Að sögn
framkvæmdastjóra Hvalasafnsins
hrifust þau strax af safninu.
„Þegar þau heyrðu af baráttu
okkar við að fá til Húsavíkur beina-
grind af steypireyði sem Náttúru-
fræðistofnun er með hjá sér núna
langaði þau að hjálpa til,“ segir
Einar Gíslason, framkvæmdastjóri
Hvalasafnsins á Húsavík.
Eftir að steypireyðina rak á land
á Skaga árið 2010 voru beinin þurrk-
uð og hreinsuð. Nokkur
sveitarfélög sýna þeim
áhuga.
Það var þó Hvalasafnið á
Húsavík sem fyrst falaðist eftir
grindinni. Undirbúningur fyrir
flutning beinanna þangað hefur
staðið í þrjú ár. Einar segir að féð
muni koma sér einkar vel.
„Féð fer allt til verkefnisins sem
snýr að því að fá steypireyðar-
grindina, hér á hún heima,“ segir
Einar. Sérstök
móttöku athöfn
ver ð u r fy r i r
hjónin á sunnudag. - mlþ
Styrkur frá bandarískum hjónum sem stefna skemmtiferðaskipi á Húsavík:
Fjórtán þúsund dalir í hvalasafn
ATVINNULÍF Engin starfsemi fer
fram í Sláturhúsi Vesturlands í
Borgarnesi þótt sláturhúsið hafi
verið tilbúið í tæpa fimm mánuði.
„Það er allt klárt. Við gætum
gengið inn, ýtt á takka og hafist
handa en þess í stað situr maður
og nagar neglurnar,“ segir Guð-
jón Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri Sláturhúss Vesturlands.
Ástæðan er sú að aðalskipulag
sem gerði ráð fyrir íbúabyggð í
Brákarey, þar sem sláturhúsið er,
tók gildi skömmu áður en Slátur-
hús Vesturlands keypti húsið.
Borgarbyggð reyndi að breyta
aðalskipulaginu en Skipulags-
stofnun féllst ekki á breytinguna
svo málið tefst um að minnsta
kosti tvo mánuði enn. „Þá er
náttúru lega sláturtíðin í septem-
ber að baki svo við missum af
henni,“ segir Guðjón.
- jse/ sjá síðu 4
Klemma í Borgarnesi:
Sláturhús fast í
aðalskipulagi
PRINSINN NÝFÆDDI Katrín hertogaynja og Vilhjálmur Bretaprins leyfðu almenningi og fj ölmiðlum að sjá aðeins í kollinn á
nýja ríkisarfanum þegar þau héldu heim af sjúkrahúsinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hundrað þúsund gestir
Hjónin á Þorvaldseyri undir Eyjafjöll-
um hafa tekið á móti eitt hundrað
þúsund gestum í safni sínu. Gestir fá
eiginhandaráritanir hjá Ólafi Eggerts-
syni bónda. 2
Ekki meiri kaupauki Hlutabréfagjöf
Landsbankans til starfsmanna er
ekki vísbending um frekari kaupauka,
segir formaður bankaráðs. 2
Fer illa um leiðsögumenn Leið-
sögumenn kvarta undan óþægilegum
sætum, lélegum öryggisbeltum og
þrengslum í rútum. 4
Lítið fyrir dósirnar Skilagjald fyrir
einnota umbúðir drykkjaríláta er í
sumum tilfellum meira en fjórfalt
hærra í Danmörku en hér. Samt eru
skilin á Íslandi um níutíu prósent. 8
EVRÓPA Undanfarna tvo áratugi
hefur fiðrildum fækkað um helm-
ing í Evrópuríkjum. Þetta þykir
sterk vísbending um að margar
tegundir fiðrilda og annarra skor-
dýra í Evrópu verði brátt komnar í
útrýmingarhættu.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
frá umhverfisstofnun Evrópusam-
bandsins, EEA.
Í skýrslunni segir að meginor-
sökina sé að finna í breyttri land-
nýtingu. Eftir því sem stærra land-
svæði er tekið undir landbúnað
dregur úr möguleikunum á fjöl-
breyttu lífríki. - gb
Áhrif breyttrar landnýtingar:
Helmingi færri
fiðrildi í Evrópu
FIÐRILDI Á ÍTALÍU Fækkun fiðrilda
þykir vísbending um æ fábreyttari lífs-
skilyrði. NORDICPHOTOS/AFP