Fréttablaðið - 24.07.2013, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 24.07.2013, Blaðsíða 32
24. júlí 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 20 Penelope Cruz og Javier Bardem eignuðust sitt annað barn í Madrid á mánudaginn en þá kom lítil stúlka í heiminn. Stúlkan fæddist á sama degi og prinsinn í Bretlandi og því deila börnin afmælisdegi. Stúlkan er annað barn þeirra Cruz og Bardems en fyrir eiga hjónin hinn tveggja ára Leonardo. Parið reynir hvað það getur til þess að halda sér sem mest frá sviðsljósinu. „Ég vil að sonur minn og börn, ef ég eignast fleiri, vaxi úr grasi í eins mikilli fjarlægð frá sviðsljósinu og mögulegt er,“ sagði Cruz eitt sinn í viðtali. Eignaðist stúlku HAMINGJUSÖM Penelope Cruz og Javier Bardem hafa nú eignast sitt annað barn saman. GETTY/NORDICPHOTOS Viðskiptajöfurinn John Casa- blancas lést í Ríó de Janeiro á laugardag, sjötugur að aldri. Casablancas var stofnandi Elite- umboðsskrifstofunnar og hafði mikil ítök í tískuheiminum. John Casablancas fæddist í New York árið 1942 en sótti menntun sína til Sviss. Hann stofnaði Elite-umboðs skrif- stofuna árið 1971 og frá stofnun hennar hafa margar af þekktustu fyrirsætum heims verið á samn- ingi hjá stofunni, þar á meðal Cindy Crawford, Naomi Camp- bell, Carol Alt, Linda Evangel- ista, Claudia Schiffer, Andie MacDowell, Kim Alexis, Paulina Porizkova, Iman, Heidi Klum og Gisele Bündchen. Casablancas var þó nokkuð umdeildur og var þekktur fyrir að eiga í ástarsamböndum við fyrirsætur, sem voru margar undir aldri. Samband hans og hinnar fimmtán ára gömlu fyrir- sætu Stephanie Seymour vakti mikla athygli enda var stúlkan ólögráða og Casablancas þá 41 árs gamall og kvæntur. Umdeildur umboðsmaður látinn John Casablancas, stofnandi Elite, lést í Brasilíu á laugardag sjötugur að aldri. UMDEILDUR John Casablancas, stofnandi Elite- umboðsskrif- stofunnar, er látinn. Hann þótti mjög umdeildur. NORDICPHOTOS/GETTY Aðdáandi Robbie Williams bað söngvarann um að árita afturenda sinn á tónleikum kappans í Gautaborg í síðustu viku. Robbie fékk hina sænsku Lone Martinsen upp á svið eftir að hafa séð hana veifa skilti með skilaboðunum „Plís áritaðu rassinn minn svo ég geti breytt árituninni í húðflúr“. Lone var ekki lengi að tilkynna vinum sínum á Facebook að Robbie hefði hrósað henni fyrir flottan afturenda. Lone átti hins vegar erfitt með svefn í kjölfar tónleikanna þar sem hún óttaðist að skemma pennakrotið og ekkert yrði úr húðflúrinu. „Þetta er svo frábært en ég svaf varla neitt. Ég þorði ekki í sturtu og það var svo hrikalega heitt,“ sagði Lone. Robbie áritaði rass Sænsk stúlka biðlaði til Robbies Williams um að árita á sér aft urendann á tónleikum kappans í Gautaborg. MEÐ FLOTTAN RASS Robbie Williams tjáði Lone Martinsen að hún væri með flottan afturenda áður en hann áritaði svæðið. GETTY/NORDICPHOTOS EGILSHÖLLÁLFABAKKA KRINGLUNNI MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT SPARBÍÓ AKUREYRI KEFLAVÍK ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS WOLVERINE 3D KL. 5.20 - 8 - 10.40 14 WOLVERINE 3D LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40 14 GROWN UPS 2 KL. 5.40 - 8 - 10.10 L SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 3D KL. 3.20 L SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 2D KL. 3.20 - 5.40 L RIPD KL. 3.20 -5.50 - 8 10 THE HEAT KL. 8 - 10.10 12 THIS IS THE END KL. 10.30 16 WOLVERINE 3D KL. 5.20 - 8 - 10.40 14 GROWN UPS 2 KL. 5.40 - 8 – 10.10 L RIPD 3D KL. 5.50 - 8 10 PACIFIC RIM KL. 9 10 THE HEAT KL. 5.30 12 THIS IS THE END KL. 10.10 16 WOLVERINE 3D KL. 8 - 10.20 14 RIPD 3D KL. 5.50 10 GROWN UPS 2 KL. 8 - 10 L THE HEAT KL. 5.50 12 NEW YORK POST Miðasala á: og G.D.Ó., MBL DAGSKRÁIN ER Á WWW.BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS WOLVERINE 8, 10.10 3D GROWN UPS 2 6, 8, 10.30 R.I.P.D. 8, 10 3D SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 3.50, 6 2D SKRÍMSLA HÁSKÓLINN 3.50 3D THE HEAT 5.30 -Empire -Entertainment Weekly 5% Urð og grjót; upp í mót, orti skáldið eftir minnilega beint í hjörtu þjóðarinnar svo jafnvel þeir sem alfarið halda sig fjarri fjallgöngum tengja og kinka kolli. Um helgina fór ég í fjallgöngu og með í för var tengdamóðir mín. Við höfum báðar gaman af gönguferðum. Það getur orsakað vandamál. ÁÐUR en lengra er haldið skal viður- kennast að ég verð afskaplega kapps- full við minnsta tækifæri. Á fjöllum finn ég stundum hvernig þetta kapp hellist ofan í mig og fyllir mig svoleiðis að ég æði af stað. Þá hverf ég jafnframt í minn eigin heim og einbeiti mér að því hvert sé best að stökkva til að halda jafnvægi og missa ekki fótanna. Ég horfi því niður fyrir mig. Vel mér næsta stein.Tengdamóðir mín er jafnsólgin í kappsopann og ég en þarna þeysti ég fram úr henni. Það hlakkaði í mér. Ég viðurkenni það. SVO þarna var ég komin, langt á undan hópnum, stökkvandi og skopp- andi. Golan lék um hárið og ég hugs- aði með sjálfri mér: „Svakalega er ég mikil fjallageit.“ Sem er svo sem nógu hallærislegt en varð enn kjánalegra þegar ég heyrði hróp að baki mér: „Ertu nokkuð komin í sjálfheldu?“ Þá leit ég upp. Ég var stödd í brattri hlíð og lausri möl. Minnsta hreyfing og mér skrikaði fótur. Hvernig gat þetta gerst? Ég leit aftur fyrir mig og sá að hópurinn gekk aðra leið. Á milli okkar var brött brekka og lausir steinar. ÞETTA var alls ekki í fyrsta sinn sem ég lendi í nákvæmlega þessu. Aftur og aftur gleymi ég að horfa fram fyrir mig og velja bestu leiðina. Oft er hún lengri en það er eflaust fórnarkostnaður skárri bein- brotum og svöðusárum. Það er ágætt að komast lifandi á áfangastað. Þar sem ég hrundi niður brattann varð mér hugsað til annars hruns og annarrar fjallgöngu. Ég vona sannarlega að stjórnvöld horfi fram fyrir sig og velji skynsam legustu leiðina. ÉG aftur á móti ætla að halda áfram að æða beint af augum. Það er svo miklu skemmtilegra. Passa bara að velja steinana vel. Kappsfyllerí á fj öllum BAKÞANKAR Höllu Þórlaugar Óskarsdóttur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.