Fréttablaðið - 24.07.2013, Blaðsíða 16
FÓLK|FERÐIR
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Reykjanesskaginn er vanmetið úti-vistarsvæði sem landsmenn ættu að gefa meiri gaum að, enda staðsettur
í túnfæti höfuðborgarbúa. Hraunið setur
sterkan svip á landslagið og þar er að
finna margar skemmtilegar gönguleiðir og
fjöll af öllum stærðum og gerðum. Rann-
veig Lilja Garðarsdóttir leiðsögumaður er
ein þeirra sem lengi hafa stundað útivist
á þessum slóðum en hún stendur fyrir
vikulegum gönguferðum um skagann yfir
sumartímann.
„Að mínu mati er Reykjanesskaginn
ákaflega vanmetinn sem útivistarsvæði.
Gamlar þjóðleiðir, eftir hesta og göngu-
garpa fyrri alda, liggja víða um skagann
og eru vel greinanlegar í landslaginu. Hér
er einnig að finna úrval fjalla sem henta
ólíkum hópum. Mörg þeirra eru ekki mjög
há og því heppileg fyrir þá sem vilja fara í
stuttar og þægilegar fjallgöngur.“
Flatlendið í bland við fjöllin er einnig
mikill kostur því það þarf ekki að ganga
marga metra upp til að fá dásemdarútsýni
yfir allan skagann.
Keilir er trúlega vinsælasta og þekkt-
asta fjallið á Reykjanesi en Grænadyngja
og Trölladyngja eru líka vinsæl fjöll að
sögn Rannveigar, enda ægifagurt útsýni
ofan af þeim.
„Af öðrum fjöllum má nefna Fagradals-
fjall, sem er skemmtilegt fyrir þá sem vilja
lengri og erfiðari fjallgöngur. Þorbjarnar-
fell er mjög vinsælt en í toppi þess eru
stórar og tilkomumiklar gjár sem hægt er
að ganga um.“
Af vinsælum gönguleiðum nefnir hún
Skógfellaveg, gamla þjóðleið sem liggur á
milli Voga á Vatnsleysuströnd og Grinda-
víkur, Prestastíg, gamla þjóðleið sem liggur
frá Hafnavegi að Húsa tóttum í Grindavík,
og Ketilsstíg, sem liggur frá Seltúni yfir
Sveifluháls, fram hjá Arnarvatni og Arnar-
nípu og að katlinum í Móhálsadal.
Aðstaða til göngu- og fjallaferða á
Reykjanesi er með miklu ágætum að sögn
Rannveigar. Hún segir margar stikaðar
gönguleiðir vera frá Hafnarfirði út allan
skagann, auk þess sem hægt sé að nálgast
göngukort í upplýsingamiðstöðvum.
„Það er hægt að komast á bíl að öllum
gönguleiðum hér og gott aðgengi er einn af
kostum svæðisins.“ ■ starri@365.is
VANMETIN
ÚTIVISTARPERLA
HEILLANDI REYKJANES Reykjanesskaginn býr yfir fallegum gönguleiðum og
skemmtilegum fjöllum. Flatlendið er mikið og gott útsýni víða.
FEGURÐ
Reykjanesskaginn býr
yfir ótal gönguleiðum og
fallegum fjöllum.
MYND/RANNVEIG LILJA
Veiði er tilvalið áhugamál fyrir fjölskylduna. Börn þurfa
ekki að vera há í loftinu til að geta kastað fyrir fisk og
allir fjölskyldumeðlimir geta tekið þátt í veiðinni. Að
sögn Ingimundar Bergssonar hjá Veiðikortinu hefur
þátttaka yngri fjölskyldumeðlima í veiði aukist mikið
síðustu árin, enda tiltölulega ódýrt áhugamál sem sam-
einar fjölskylduna.
„Þetta er tilvalin leið til að draga krakka frá tölvunni
og kynna þau fyrir náttúrunni. Ef þeir verða heppnir
og fá fisk fljótlega eða lenda í góðri veiði er ekki aftur
snúið. Þá fara krakkar að suða í foreldrum sínum um að
koma í veiði.“
Það er tiltölulega ódýrt að fjárfesta í veiðibúnaði
fyrir börn. Ingimundur segir ódýrar stangir fást víða,
til dæmis í veiðibúðum og á bensínstöðvum. „Þegar
ódýrar stangir eru keyptar fyrir börn er gott ráð að
skipta um línu. Hún vill stundum verða erfið eftir smá
notkun. Svo er ágætt að eiga nokkra spúna og öngul.
Maðka er hægt að kaupa víða og svo geta börn auð-
vitað tínt hann sjálf í rigningu.“
Gott er að huga að nokkrum þáttum þegar veiði
er kynnt fyrir börnum að sögn Ingimundar. „Það er
lykilatriði að þau séu vel búin og klædd svo þeim verði
ekki kalt. Eins er gott að venja þau á að vera með sól-
eða hlífðargleraugu. Svo þarf að fylgjast vel með þeim
og aðstoða eftir þörfum.“
Ógrynni vatna er að finna um allt land og kostar lítið
að veiða í mörgum þeirra. „Sá sem kaupir sér Veiði-
kortið hefur aðgang að 35 vötnum um allt land. Eitt
kort dugar því fullorðinn getur tekið með eins mörg
börn og hann vill.“
Mörg skemmtileg vötn eru í nágrenni Reykjavíkur
sem gott er að byrja á. „Það fiskast til dæmis oft vel í
Þingvallavatni. Þar er mikið líf en murtan er stundum
á undan að stela beitunni. Krökkum finnst það reyndar
oft allt í lagi og bara gaman að veiða þennan litla fisk.
Yfirleitt eru þetta bleikja eða urriði í vötnum lands-
ins þótt það sé misjafnt eftir tímabilum hvað fiskurinn
tekur. Einnig má benda á Elliðavatn og Meðalfellsvatn í
Kjós sem er vinælt hjá ungum veiðimönnum landsins.“
■ starri@365.is
VEIÐIN SAMEINAR FJÖLSKYLDUNA
GÓÐ STUND Í SUMAR Veiði er skemmtilegt og ódýrt áhugamál fyrir fjölskyld-
una. Hægt er að byrja með ódýran búnað og vötn er að finna víða um land.
FALLEGUR FISKUR Efnilegur veiðimaður við sjóbleikjuá á
Norðurlandi. MYND/ÚR EINKASAFNI
Lokað á
laugardögum
Silk Hydration sólarvörn
rakakrem og sólarvörn
létt og silkimjúkt
kókosilmur
Nýtt frá
Hawaiina Tropic
Save the Children á Íslandi
REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR KEFLAVÍK SELFOSS HAFNARFJÖRÐUR
19.990
RAZER CARCHARIAS
Vinsælustu leikjaheyrnartólin
r Ra er. Y r ur a hljó ur
assi. Hentar l ka yrir O .