Fréttablaðið - 24.07.2013, Side 18
ÓMISSANDI
Í VIKUNNI
2 MIÐVIKUDAGUR 24. júlí 2013
Sjónvarpsþættirnir Game of
Thrones eru margverðlaunaðir
og eiga aðdáendur um allan heim.
Á næstu dögum hefjast tökur á
fjórðu þáttaröðinni hér á landi
og verður meðal annars myndað
á Þingvöllum. Áður hafa tökur
staðið yfir að vetrarlagi en nú
verður Ísland í sumarbúningi.
Tvær fyrri þáttaraðir voru einnig
teknar upp að hluta til hér á landi.
Leikarar þáttanna hafa fallið fyrir
landinu og sagt frá því í viðtölum
víða um heim. Þar á meðal er einn
aðalleikaranna, Kit Harington,
sem túlkar Jon Snow í þáttunum.
Game of Thrones er risavaxið
verkefni og þess vegna er ánægju-
legt að Ísland hafi orðið fyrir
valinu fyrir upptökur. Einnig er
tekið upp í Króatíu og á Írlandi.
Mikill búnaður fylgir kvikmynda-
tökuliðinu sem er komið til lands-
ins og allt er að vera klárt fyrir
tökur. Fjöldi Íslendinga starfar við
gerð þáttanna.
Þá hefur íslenska ferðaþjón-
ustufyrirtækið The Traveling
Viking í samstarfi við Iceland
Travel boðið sérstakar Game of
Thrones-ferðir hingað til lands
frá Bretlandi. Ferðirnar hefjast í
byrjun október og standa í fimm
daga. Ekið verður um þá staði þar
sem kvikmyndin gerist, meðal
annars til Mývatns.
Talið er að rúmlega ellefu millj-
ónir manna hafi fylgst með þriðju
þáttaröðinni af Game of Thrones í
heiminum en hún var nýlega sýnd
á Stöð 2. Þættirnir hafa verið til-
nefndir til 26 Emmy-verðlauna og
tveggja Golden Globe-verðlauna,
auk annarra. Á síðasta ári hafði
þáttaröðin unnið til 32 verðlauna,
þar af átta Emmy-verðlauna og
einna Golden Globe-verðlauna,
og verið tilnefnd til 56 annarra
verðlauna. Leikarinn Peter Dink-
lage, sem fer með hlutverk Tyrion
Lannister, hefur hlotið flest verð-
laun fyrir leik sinn í þáttunum.
GAME OF THRONES
AFTUR Á ÍSLANDI
Íslensk náttúra gegnir aftur stóru hlutverki í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones
sem Stöð 2 hefur sýnt en tökur standa nú yfir hér á landi. Aðdáendur víða um heim
eiga þess nú kost að kaupa ferð hingað þar sem farið verður á slóðir þáttanna.
Við upptökur við Skaftafell árið 2011. MYND/VILHELM
Uppáhaldsþættir Sigríðar Maríu Egilsdóttur, ræðu-
manns Íslands, eru Game of Thrones og Newsroom.
„Game of Thrones eru fyrir fantasíuaðdáendur eins
og mig. Fyrir mér eru þeir eins og nammiland fyrir
nammifíklum á laugardögum.“
„Newsroom er svo algjört meistaraverk. Þættirnir
eru fullkomin blanda. Þeir eru upplýsandi, dramatískir
og fyndnir, ásamt því að vera skuggalega vel skrifaðir,“
segir Sigríður María. „Svo eru þættirnir Parks and Rec-
reation yndislegir. Amy Poehler er svo brjálæðislega
fyndin.“ Sigríður segist ekki geta beðið eftir því að Jon
Stewart byrji aftur að stjórna The Daily Show og hún
bíður spennt eftir nýrri þáttaröð af Newsroom.
Nýverið kom út á netinu fyrirlestur sem Sigríður
María flutti. Hann var birtur á ted.com, sem er ein
frægasta fyrirlestrasíða í heimi. Í fyrirlestrinum
fjallaði hún um femínisma. Fyrirlesturinn hefur fengið
frábær viðbrögð um allan heim.
ÁHORFANDI VIKUNNAR
FORFALLINN FANTASÍUAÐDÁANDI
DALLAS
Miðvikudag kl. 20.45
BESTA SVARIÐ
Föstudag kl. 20.10
TOTAL WIPEOUT UK
Laugardag kl. 19.45
CROSSING LINES
Sunnudag kl. 21.40
BOSS
Mánudag kl. 22.20
ORANGE
IS THE NEW BLACK
Þriðjudag kl. 21.10
BREAKING BAD
Fimmtudag kl. 21.30
Uppáhalds-
þættir Sigríðar
eru Game of
Thrones og
Newsroom.