Fréttablaðið - 15.08.2013, Side 4
15. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
STJÓRNSÝSLA Ríkisskattstjóri segir
að þeir sem tilheyra svokölluðum
lánsveðshópi þurfi ekki að
hafa áhyggjur af því að fá ekki
sérstakar lánsveðsvaxtabætur
sem síðasta ríkisstjórn lögfesti
rétt fyrir þinglok í vor. Frestur til
að sækja um bæturnar til Ríkis-
skattstjóra
rennur út eftir
mánuð og þar
til í gær hafði
embættið ekki
kynnt opinber-
lega hvernig
fólk ætti að
bera sig að við
umsóknina.
Fólk sem til-
heyrir hópnum
hefur haft samband við Frétta-
blaðið og furðað sig á því að enn
hafi ekkert verið gert í þessum
efnum þegar svo stutt sé orðið til
stefnu. Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri segir að fyrir-
varinn sem gefinn var í lögunum
hafi verið mjög stuttur. „Þetta
helgast bara af því að lögin voru
samþykkt rétt áður en þingið
fór heim og það hafa verið mjög
miklar annir við að framkvæma
ýmsar aðrar lagabreytingar,“
segir Skúli, sem segir embættið
hafa þurft að taka upp á annað
hundrað laga breytingar undan-
farin ár.
„Ríkisskattstjóri kom því
sjónar miði á framfæri að þetta
væri stuttur fyrirvari. En látum
það nú vera, þetta er orðið að
lögum í landinu,“ segir Skúli. „Það
sem Ríkisskattstjóri mun gera er
að taka saman leiðbeiningar um
þetta mál og setja á vefinn, birta
almenna auglýsingu og gera grein
fyrir því í hverju þessi réttur felst
og hvaða skyldur eru þarna.“
Í lögunum er kveðið á um
að umsóknarfrestur sé til 15.
september og að umsækjendum
beri að afhenda ríkisskattstjóra
þau gögn sem hann telur
nauðsynleg vegna ákvörðunar
bótanna. Hins vegar segir einnig í
lögunum að embættinu sé heimilt
að taka til greina umsóknir sem
berast eftir þetta tímabil í allt að
tvö ár.
Meðal annars í þessu ljósi
segist Skúli ekki óttast að fólk
hafi of knappan tíma til stefnu.
„Þeir sem heyra þarna undir
þurfa ekki að hafa áhyggjur af því
að réttur þeirra verði fyrir borð
borinn. Þetta er ekki þannig að
menn lokist inni á þessum fresti.“
Síðdegis í gær vakti Skúli svo
athygli Fréttablaðsins á því að
frétt um lánsveðsvaxtabæturnar
og tilheyrandi upplýsingar væru
komnar á vef stofnunarinnar, rsk.
is. Þar kemur fram að umsóknar-
eyðublað verði tilbúið í lok
mánaðar. stigur@frettabladid.is
Ekki haft tíma til að
auglýsa vaxtabætur
Frestur til að sækja um sérstakar lánsveðsvaxtabætur rennur út eftir mánuð en
umsóknarferlið hefur enn ekki verið auglýst. Óþarfi að hafa áhyggjur, segir ríkis-
skattstjóri. „Þetta er ekki þannig að menn lokist inni á þessum fresti,“ segir hann.
ÞINGHOLTIN Eigendur heimila sem á hvíla lánsveð eiga að fá sérstöku vaxta-
bæturnar sem uppbót fyrir aðra mismunun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SKÚLI EGGERT
ÞÓRÐARSON
Sérstöku vaxtabæturnar fyrir lánsveðshópinn voru hugsaðar sem sára-
bætur fyrir hann, þar sem hann hafði greitt hærri vexti af höfuðstól en
þeir sem fengið hafa lækkun eftir svonefndri 110 prósenta leið. „Markmið
þessarar aðgerðar er að bæta honum að hluta til þann mismun,“ segir í
greinargerð með frumvarpinu til laganna.
Greiðslurnar geta þó ekki orðið hærri en 160 þúsund krónur hjá ein-
staklingum og 280 þúsund krónur hjá hjónum og sambúðarfólki.
Ætlunin að bæta mismun
BANDARÍKIN, AP Flutningaflugvél á vegum UPS-póstflutningafyrirtækis-
ins fórst í lendingu við alþjóðaflugvöllinn í Birmingham í Alabama í
morgun. Flugmaður og aðstoðarflugmaður vélarinnar létust.
Vélin sundraðist í nokkra parta og tvær eða þrjár sprengingar
heyrðust þegar hún lenti á jörðinni, en talið er að þær sprengingar
tengist eldsneyti vélarinnar.
Íbúar í grennd segja einkennileg hljóð hafa borist frá vélinni, eins og
eldsneytisgjöfin hafi orðið of mikil. „Við töldum að þeir væru að reyna
að komast til flugvallarins. En nokkrum mínútum seinna heyrðist mikil
sprenging,“ hefur AP-fréttastofan eftir Sharon Wilson, sem varð vitni að
slysinu. - gb
Póstflutningavél fórst í Birmingham í Alabama:
Tveir menn fórust með vélinni
FRÁ SLYSSTAÐ Vélin sundraðist í nokkra parta en sprengingar heyrðust þegar hún
hrapaði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Gísli, ertu búinn að láta Odd
vita?
„Nei, en hann fær vitaskuld að vita
ef skerst í odda.“
Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi
er nefndur meðal þeirra sem líklegir eru í
oddvitaslag Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
SKIPULAGSMÁL Umhverfis- og
skipulagsráð Reykjavíkurborgar
samþykkti tillögu minnihlutans
í gær um að boðað yrði til
almenns íbúafundar strax á
næstu dögum um breytingar
á skipulagi Hofsvallagötu og
framkvæmdir á götunni. Fyrst
og fremst verður tilefni fundar-
ins að kalla eftir samráði,
hugmyndum og athugasemdum
frá íbúum.
Sjálfstæðisflokkurinn lagði til
að umdeildum framkvæmdum
við götuna yrði frestað þar til
fundurinn hefði verið haldinn.
Það var fellt. -vg
Vilja hugmyndir frá íbúum:
Fundað vegna
Hofsvallagötu
VIÐSKIPTI Sextíu og þrír milljarðar
fást fyrir tuttugu og átta prósenta
hlut ríkisins í Landsbankanum
ef miðað er við bókfært eigið fé
bankans.
Samkvæmt lögum um sölu-
meðferð eignarhluta ríkisins í
fjármálafyrirtækjum er ríkissjóði
heimilt að selja þennan hlut í bank-
anum á næsta ári. Skilyrði fyrir
henni eru þau að bankasýslan þarf
að mæla með henni og heimild þarf
að vera fyrir henni í fjárlögum.
Fyrrverandi fjármálaráðherra,
Steingrímur J. Sigfússon, hafði
viðrað þá hugmynd að salan færi
fram gegnum Kauphöll Íslands.
Páll Harðarson, forstjóri Kaup-
hallarinnar, tekur vel í það og
segir að sala á hlut ríkisins myndi
styrkja atvinnulífið og býst hann
við mikilli eftirspurn eftir þessum
bréfum. „Ég held að það sé mjög
æskilegt að nokkur hluti þessara
banka komist í hendur almennra
fjárfesta. Ég held að það sé gott
fyrir atvinnulífið. Jafnframt tel ég
að það sé leið fyrir ríkið að fá sem
hæst verð fyrir Landsbankann,“
segir hann. - þþ
Forstjóri Kauphallar telur sölu á 28 prósenta hlut í Landsbanka örvandi:
Hátt í sjötíu milljarðar fyrir hlutinn
PÁLL HARÐARSON Í KAUPHÖLLINNI
Forstjórinn segir að sala á 28 prósenta
hlut ríkisins í Landsbankanum örvi auð
og æru. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Verktaki var dæmdur
í Héraðsdómi Norðurlands
eystri í vikunni til þess að
greiða fjarskiptafyrirtækinu
Mílu rúmlega 700 þúsund
krónur í skaðabætur.
Verktakinn sleit stofnstreng
á Þórshöfn þegar hann var að
grafa fyrir svokallaðri drenlögn
í júní árið 2010. Fjarskiptasam-
band fór af stórum hluta Þórs-
hafnar af þessum sökum. Verk-
takinn krafðist sýknu þar sem
uppdráttur af fjarskiptalínum á
svæðinu, sem var frá 1992/1993,
reyndist rangur. Dómurinn
hafnaði því. -vg
Verktaki eyðilagði stofnlögn:
Rauf allt fjar-
skiptasamband
ÍSRAEL, AP Ísraelar og Palestínu-
menn settust að samningaborðinu í
gær, daginn eftir að Ísraelar leystu
26 palestínska fanga úr haldi.
Fundurinn er haldinn í Jerú-
salem en þetta er í þriðja sinn frá
aldamótum sem reynt er að semja
um framtíðarstöðu Palestínuríkis
við hlið Ísraels. Þær viðræður hafa
lítinn árangur borið og hafa legið
alveg niðri í þrjú ár.
Miki l leynd hví l ir yfir
viðræðunum en Ísraelsstjórn sendi
þó í gær frá sér stutt myndskeið
þar sem aðalsamningamenn þjóð-
anna sjást takast í hendur á óupp-
gefnum stað í Jerúsalem.
Friðarviðræður hefjast nú,
eina ferðina enn, einkum fyrir
eindregin tilmæli frá John Kerry,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
sem leggur mikla áherslu á að þoka
þessum málum áfram.
Hann fékk Palestínumenn til að
fallast á viðræður þrátt fyrir að
framkvæmdir ísraelskra landtöku-
manna haldi áfram á hernumdu
svæðunum. Hann fékk einnig
Ísraela til þess að láta lausa ríflega
hundrað palestínska fanga, sem
setið hafa í ísraelskum fangelsum
fyrir ofbeldisverk gegn Ísraelum.
- gb
Ísraelar og Palestínumenn settust að samningaborðinu eftir langt hlé:
Mikil leynd yfir viðræðunum
LAUSIR
Ættingjar
palestínskra
fanga fagna
lausn þeirra
og komu á
landamæra-
stöð Beit
Hanoun við
Gasa í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS
LAKK FYRIR
BÍLINN Í ÚRVALI
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9, Funahöfða 13
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð!
GÆÐA-
VÖRUR
FYRIR BÍLINN
EX
PO
-
w
w
w.
ex
po
.is
ÚTGÁFUMÁL Auglýsingakápa frá
365 miðlum fylgir Fréttablaðinu
í dag. Auglýsing af þessu tagi
er nýbreytni hjá útgáfunni en
stendur öðrum auglýsendum
jafnframt til boða.
Í auglýsingunni er kynnt til-
boð á áskrift að enska boltanum,
þar sem með í pakkanum fylgir
háhraðainternettenging og
heimasími. Áhugasamir geta
kynnt sér málið nánar á vefjum
Stöðvar 2 og 365, stod2.is og
365.is. - óká
Nýbreytni hjá Fréttablaðinu:
Kynningarefni
utan um blaðið