Fréttablaðið - 15.08.2013, Page 14

Fréttablaðið - 15.08.2013, Page 14
HÁTÍÐIR HELGARINNAR VEÐUR Föstudagur 8-16°C HLÝJAST A- LANDI Suðvestlæg eða breytileg átt. Rigning með köflum en þó síst A-lands. Lokað fyrir umferð um brú á yfirfalli við Hrauneyjafoss- virkjun á Sprengisandsleið vegi 26 vegna framkvæmda. Umferð verður hleypt á hjáleið um Hrauneyjafossvirkjun á meðan. Nánari upplýsingar Vegagerdin.is Blómstrandi dagar 15. - 18. ágúst Menningar- og fjölskylduhátíð í Hveragerði. Hápunktur hátíðarinnar er á laugardeginum. Listsýningar og fjölbreyttir tónlistarviðburðir eru í bænum þessa daga ásamt heilsu- tengdum atriðum. Grenivíkurgleði 16. - 18. ágúst Fjölskylduhátíð í Grenivík þar sem áherslan er lögð á smáfólkið. Laugardagur 5-16°C BJART MEÐ KÖFLUM SYÐRA Skýjað og lítilsháttar væta N- og A-lands. Bjart með köflum syðra en skúrir síðdegis. Mildast á Suðurlandi. Sunnudagur 10-15°C STÖKU SKÚRIR Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og stöku skúrir S-til. heimild/vedur.is HÁLENDIÐ | FRÉTTIR FERÐIR | 12 Hið árlega tímabil berjatínslu er að ganga í garð. Nú þegar hafa fundist bláber víðs vegar á landinu. „Það lítur ekki vel út sunnanlands í á r,“ seg i r Þorvaldur Pálma- son, áhugamaður um ber. Hann h e l d u r ú t i vef síðunni Berja- vinir, þar sem fjallað er um berjahorfur og fréttir af berja- tínslu. Á síðunni eru fjölskyldur hvattar til þess að tína ber og skapa skemmtilegar samverustundir, auk þess sem berin eru meinholl. Rann- sóknir hafa sýnt að bláber hafa mikla andoxunarvirkni og eru full af vítamínum. Þorvaldur berjavinur segir dapran berjavöxt vera í sumar sunnan og vestanlands. „En það eru ber á Vestfjörðum,“ fullyrð- ir hann. „Þau koma vonandi á Norður- landi og að öllum líkindum verða ber fy r i r austan.“ Búist er við því að berin komi seinna í ár en áður. Berjavöxtur veltur á veðurfarinu. „Það var kalt vor og sumarið hefur ekki verið gott fyrir berjasprettu. Það eru betri skilyrði fyrir ber þegar það er sól,“ útskýrir Þorvaldur. 1. Bláberjadagar á Súðavík Til stendur að halda Bláberja- daga á Súðavík um helgina. Þar er þemað, eins og nafnið gefur til kynna, bláber. Berin vaxa villt allt í kringum Súðavík og verður skemmtidagskrá fyrir gesti á milli þess sem berjatínslan fer fram. „Uppskeran lítur vel út,“ segir Eggert Nielson, fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar. „Það er fjölbreytt dagskrá, tónlist á þremur mismunandi stöðum, dansleikur á laugardagskvöldinu, blá- berja- bökuáts- keppni þar sem aðeins má nota andlitið og söngur við varðeld.“ Einnig verður keppni um stærsta berið, skrýtnasta berið og Bláberjahlaup. Búist við nokkur hundruð manns á hátíð- ina. 2. Djúpavík á Ströndum Fjölmargir leggja leið sína á Strandir á haustin til þess að tína ber og er Djúpavík margrómaður berjastaður. 3. Héðinsfjörður Í Héðinsfirði eru mikil og ósnortin berjalönd. Nýbyggð Héðinsfjarðar- göng auðvelda aðgengi að hinum gróskumiklu berjasvæðum. 4. Skeið í Svarfaðardal Friðsæll og kyrr dalur umkringdur Tröllaskagafjöllunum. Auk berja- svæða er mikið af áhugaverðum jurtum fyrir áhugasama. 5. Sólbrekka í Mjóafirði Við Sólbrekku er gott berjaland og þegar vel árar býr Mjóifjörður yfir fjöldanum af safaríkum berjum. Þar er einnig gistihús. 6. Fjarðarsel við Seyðisfjörð Inn við Fjarðarsel er mikið berja- land þar sem tína má bláber, aðalbláber og krækiber. Falleg gönguleið er að berjunum og hægt er að heimsækja í leiðinni elstu starfandi riðstraumsvirkjun landsins. nannae@365.is Blánar yfir berjamó Berjalönd á Íslandi vakna til lífsins í síðari hluta ágústmánaðar. Helst má finna ber á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi í ár, segir Þorvaldur berjavinur. „Ég hef alltaf haldið mikið upp á Dimmuborgir,“ segir Katrín Júlíus dóttir alþingiskona. Nánast öll hennar föðurætt er ættuð frá Húsavík og því ber hún sterk tengsl norður í land. Katrín sækir mikið norður í land og þykir gott að koma þangað. Henni þykir erfitt að velja uppáhaldsstað þar sem hún ferðast mikið. „Við eigum stórkostlegt land,“ segir hún en Dimmuborgir eiga sérstakan stað í hjarta hennar. „Þegar ég kom fyrst í Dimmu- borgir þá greip mig einhver tilfinn- ing sem ég fékk sem barn,“ útskýrir hún. „Mér fannst staðurinn svo æðislegur og að ganga þarna um er töfrum líkast. Sérstaklega ef þú ert með ríkt ímyndunarafl.“ Katrín mælir með því að fólk heimsæki Dimmuborgir ekki alveg í björtu. „Að koma þangað í þoku er ekki verra.“ Hún hlakkar til að sýna yngstu sonum sínum Dimmuborgir þegar þeir verða eldri. „Þú sérð staðinn kannski öðruvísi þegar þú ert fullorðinn en ég fer aftur til baka í þennan barnslega töfraheim þegar ég kem í D i m mu - borgir.“ - nej KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR Aftur í barnslegan töfraheim UPPÁHALDSSTAÐURINN MINN Á ÍSLANDI DIMMUBORGIR ÞORVALDUR PÁLMASON FRÁ SÚÐAVÍK Bláberjadagar standa yfir á Súðavík um helgina og má telja víst að fleiri en þessi blómarós noti tækifærið og fylli þar fötur sínar af góð- metinu. MYND/ ÞÓRÐUR SIGURÐSSON 1 2 34 5 6

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.